30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2324 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)

84. mál, aukaútsvör ríkisstofnana

Atvinnumálaráðherra (MG):

Það skilur okkur hv. 1. þm. Árn. (MT), að hann vill bíða dómsins, en jeg ekki. Jeg sje enga ástæðu til að bíða dóms hæstarjettar, því að þó að hann verði ekki samkvæmur því, sem í þessu frv. er ákveðið, þá er hægt um hönd að koma á fullu samræmi eftir á.

Hv. þm. (MT) tók til dæmis dóminn um bú Vífilsstaðahælisins. En sá dómur er alls ekki afgerandi í þessu máli. Raunar er jeg sammála hv. þm. um það, að ríkisstofnanir sjeu ekki útsvarsskyldar. En jeg er ekki viss um, að við höfum rjett fyrir okkur. Einhver besti dómari landsins er á öðru máli en við.

Þegar hv. þm. segir, að það sje hugsunarvilla, að ríkisstofnanirnar sjeu útsvarsskyldar, þá er þar nokkuð þungum steini kastað á dóm einhvers besta dómara landsins. (MT: Á lögin, á lögin, segi jeg). Á lögin, — en hv. þm. verður að gæta þess, að hæstirjettur dæmir einmitt eftir sömu lögunum.

Það gleður mig, að hv. þm. er mjer sammála. En þó að hann sje mikill lögfræðingur og góður dómari, sem jeg efast alls ekki um að hann sje, er jeg þó ekki viss í minni sök, þar sem einhver ágætasti dómari landsins hefir litið öðruvísi á málið.