30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2324 í B-deild Alþingistíðinda. (1744)

84. mál, aukaútsvör ríkisstofnana

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):

Ræður hv. þm. hafa alls ekki skorið úr um það, hvort brtt. muni verða frv. að fótakefli, ekki einusinni ræður hæstv. atvinnumálaráðherra. Enda er þess ekki að vænta, því að hjer er enginn maður, sem vald hefir til að rannsaka hjörtu og nýru hv. Ed.

Hv. 2. þm. Árn. sagði, að við bærum ábyrgð á því, hvort þetta frv. dagaði uppi eða ekki. Fer þá skörin að færast upp í bekkinn, ef þeir, sem nú vilja þegar ráða málinu til lykta, eiga að bera ábyrgð á þeim töfum, sem hv. 2. þm. Árn. og hans fylgismenn orsaka. Nei, beri þeir sjálfir fjanda sinn. Annars er jeg ekkert spentur fyrir þessu frv., þó að jeg hafi gengið inn á hundraðsgjald. Má það fyrir mjer sofna og rísa aldrei upp.

Jeg er sammála hæstv. atvinnumálaráðherra um það, að rjett sje að þræða sanngjarnan milliveg í málinu. En hvort er sá vegur 5 eða 10%? Jeg lít svo á, að 10% sje sanngjarnt.

Í þessu frv. er gert ráð fyrir, að í bæjarajóð greiði Landsverslun tekjuskatt í stað útsvars. Ef reiknað er samkvæmt lögunum um tekjuskatt til ríkissjóðs, yrði hann 26% af svona tekjum, og það er augljóst, að almenn útsvör verða að vera að minsta kosti eins há, ef eftir sömu reglum væru reiknuð. Millivegurinn er þá nær 10%, sem er alt að því helmingurinn. 5% eru aftur á móti ekki einu sinni ¼. Jeg greiði þess vegna atkvæði með því, að skatturinn verði 10% — eða þá með þeirri till., sem næst fer því.