03.05.1924
Neðri deild: 62. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2350 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)
149. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg get ekki verið sammála hv. 2. þm. Rang. (KlJ) um það, að í þessu frv. felist nokkur úrlausn á gengismálinu. Bankarnir hafa viðurkent, að þeir hafi nú yfirráð yfir öllum erlendum gjaldeyri og hafi haft það á síðasta ári. En þegar svo er komið. — hvaða ástæða er þá til að gefa stjórninni heimild til að gefa út fyrirskipanir um, að allur erlendur gjaldeyrir skuli renna til bankanna! Ástæðan fyrir þessu frv. held jeg, að sje engin önnur en sú, að milli bankanna sje ekki fult samkomulag um skiftingu gjaldeyrisins og yfirfærslur, svo og það, að Landsbankinn er nú orðinn stórskuldugur erlendis, en fær ekki nægan gjaldeyri frá viðskiftamönnum sínum til þess að standast þær yfirfærslur, sem hann þarf að inna af hendi fyrir ríkissjóðinn, og þá ekki síst ríkisverslanirnar. Gjaldeyririnn eykst ekki við samþykt þessa frv. Jeg veit það, að finnist mönnum, að kreppa eigi frekar að sjer, þá má búast við, að þeir einmitt þá reyni að skjóta undan þeim erlendum gjaldeyri, sem þeir hefðu annars fengið bönkunum til umráða, ef um enga þvingun hefði verið að ræða.
Þar sem bankarnir nú með góðu samkomulagi hafa fengið til umráða allan erlendan gjaldeyri viðskiftamanna sinna, þá er alt á rjettri leið. Jeg vil því, alveg öfugt við hv. 2. þm. Rang., vara hæstv. stjórn við að beita þessum þvingunarákvæðum um afhendingu erl. gjaldeyris, nema brýn nauðsyn beri til, og með því skilyrði get jeg samþykt þetta meinlitla frv.
Menn hafa hjer látið ýmsar skoðanir í ljós á málinu og sumar ærið fáránlegar. Tel jeg ekki að þessu sinni ástæðu til að fara langt út í það. Hinsvegar er það víst, að gengið lagast eftir því, sem ástæður okkar batna gagnvart erl. viðskiftum, og eftir útlitinu nú er full ástæða til að vænta rjettingar síðari hluta þessa árs.
Hv. 2. þm. Rang. sagði, að það væri sjerstaklega Íslandsbanka að kenna, að málið kæmi svo seint fram frá nefndinni. En mjer sem nefndarmanni er alls ekki kunnugt um, að nokkur svör hafi komið frá bönkunum — hvorugum þeirra — fyr en nú fyrir örfáum dögum. Jeg held því, að þetta sje báðum bönkunum að kenna. Segi jeg þetta ekki til þess að afsaka Íslandsbanka, heldur af hinu, að mjer finst rjett að segja hverja sögu eins og hún gengur.
Má vel vera, að hv. þm. (KlJ) viti eitthvað í þessu mál, sem mjer eða öðrum nefndarmönnum er hulið, en sje svo ekki, sje jeg ekki að hann hafi neina ástæðu til að saka Íslandsbanka frekar hinum um dráttinn, sem orðið hefir á málinu.
Menn tala mikið um það, að gengisskráning, eins og nú er gert ráð fyrir, muni verða til mikilla bóta. Ekki get jeg sjeð það. Það mun bara þykja fara betur á því, að henni verði hagað eins og ætlast er til í frv. Það er þegar upplýst, að bankarnir hafa nú umráð yfir öllum erlendum gjaldeyri í landinu, og þeir hafa á hendi gengisskráninguna í raun og veru, þó einn stjórnskipaður maður sje með í ráðum. Það er ekki til neins að skírskota til ársins 1921. Einn bankastjóri Íslandsbanka rjeði því þá illu heilli, að bankarnir keyptu erlendan gjaldeyri á jafngildi, en seldu hann síðan hærra verði, danska krónu t. d. á kr. 1.20. Þetta gerði auðvitað ilt verra. Menn kærðu sig auðvitað ekki um að selja bönkunum erlendan gjaldeyri og þurfa síðan að kaupa hann aftur með 20 aura skatti á hverri krónu. Þeir skutu því undan öllum þeim erlendum gjaldeyri, er þeim var unt, og að þessu bjó síðan landið og býr jafnvel enn. En nefndur bankastjóri fór síðan frá bankanum, ef ekki að verðleikum, þá að minsta kosti með miklum verðlaunum.
Einasta úrlausnin á þessu gengismáli er sú, að útflutningurinn verði meiri en það, sem inn er flutt, — og svo miklu meiri, að fyllilega nemi vöxtum og afborgunum af erlendum skuldum. Sumir álíta, að heppilegast sje, að gjaldeyrisnefnd útbýti erlendum gjaldeyri. Verð jeg að segja það, að þá færu fyrst að verða alvarleg mistök í gjaldeyrisversluninni, því að jeg veit ekki, eftir hvaða reglum sú útbýting ætti að fara fram, til þess að ekkert misrjetti ætti sjer stað. Hvernig ætti slík nefnd að velja úr beiðnum utan af landi, sem henni bærust í þúsundatali! Þetta myndi leiða til þess, að allur innflutningur kæmi gegnum Reykjavík, eins og á stríðsárunum. Rjetta leiðin í þessu efni er sú, að bankarnir hafi á hendi sölu gjaldeyrisins, og sú leið er einmitt farin nú og var að minsta kosti farin síðasta ár.
Hv. 1. þm. N.-M. (HStef) kom í ræðu sinni fram með mjög gamla kenningu í þessu máli, sem sje þá, að gengisskráningin sje skráning á gildi seðlanna. Þessi kenning er nú fyrir löngu borin í gröfina af reynslunni. Menn hjeldu, að ef seðlarnir væru innleysanlegir með gulli, þá lagaðist alt af sjálfu sjer. Skal jeg nú taka dæmi:
Segjum, að Íslandsbanki innleysti nú með gulli sínar 5 miljónir seðla og leyft yrði að flytja gullið út. Mundi þetta bæta úr? Jú, það mundi bæta úr í bili, en ísl. króna mundi falla enn meira eftir örfáa mánuði, því þá yrði aftur að kaupa gull til þess að tryggja þá seðla, sem út væru gefnir í stað þeirra, sem Íslandsbanki hefði innleyst.
Aðrar þjóðir hafa margreynt, að útflutningur gulls er skottulækning; gengið hækkar í bili, en fellur þess meir síðar. Sama yrði þótt seðlarnir væru gerðir innleysanlegir með gulli, ef útflutningur á gulli væri bannaður. Það mundi ekki hækka gengi ísl. krónu, en auðga þá, sem væru nógu ófyrirleitnir í að smygla gullinu út úr landinu.
Vjer höfum sjeð þess mörg dæmi, að gengi hefir hækkað og lækkað í ýmsum löndum, án tillits til þess, hvort seðlar þeirra voru innleysanlegir með gulli eða ekki. Það hefir komið í ljós bæði á ófriðartímum og fyrir ófriðinn mikla. Þetta átti sjer stað á Spáni um alllangt skeið. Mynt Spánverja, pesetinn, á að jafngilda franka, eða 72 aurum í vorum peningum. En á árunum 1897–1914 stóð pesetinn í 55–60 aurum. Þó voru seðlarnir innleysanlegir með gulli. Það er sem sje traustið á landinu og kaupgeta þess, sem ræður genginu. Ef vjer gætum á einu ári greitt allar erlendar skuldir, svo að vjer fengjum ekki sí og æ kröfur frá erlendum þjóðum, mundi gengið lagast samstundis, þó að seðlar vorir væru ekki innleysanlegir. En þar sem vjer erum nú skuldugir, eins og Spánverjar voru á árunum 1897–1914, gæti það ekki hjálpað oss, þó að seðlar vorir yrðu gerðir innleysanlegir. Menn vissu það þá um Spánverja, að þeir gátu ekki staðið í skilum erlendis, þurftu sífelt að fá frest á greiðslum eða convertera lánunum. Þetta var meðal annars af því, að ríkisstjórnirnar höfðu ekki vilja eða getu til þess að leggja á þá skatta, sem þurfti til þess að stöðva sívaxandi tekjuhalla ríkissjóðsins.
Nú er þetta breytt orðið. Pesetinn stendur langt til í gullgengi, þrátt fyrir það, þótt ekki sje skylt að innleysa seðla með gulli.
Jeg vil í þessu sambandi minnast á eitt, sem gæti verið hættulegt, ef satt er. Hv. 1. þm. N.-M. kvað það ganga staflaust um bæinn, að bankarnir hefðu lofað einhverjum fiskkaupmönnum að lækka gengi krónunnar, þegar greiðslur á fiskinum eiga að fara fram nú seinni hluta árs. Þetta er hættulegt, ef satt væri. Það er svo mikil ásökun í þessum orðum, að jeg vildi óska, að hv. þm. tilgreindi sögumann sinn. Ef þessi orðrómur bærist út til annara þjóða, er jeg hræddur um, að gengið mundi lækka fljótlega. Ætli menn, að þessi orðrómur sje sannur, á ekki að leyna honum. Það á að draga bankastjórnirnar til ábyrgðar, ef hann er sannur. En jeg trúi ekki þessari flugsögu, trúi ekki, að bankastjórnirnar ætli að tefla þannig með fjárhagslegt sjálfstæði vort. Það er skylda þeirra manna, er jafnþungar ásakanir flytja á þessum stað, að færa einhverjar sönnur á þær hjer eða annarsstaðar. Því að það ætti að vera meira mark takandi á orðum þeim, sem vjer mælum innan þessara veggja, heldur en því, sem einhver og einhver segir úti á götunni.
Jeg skal svo ekki fjölyrða frekar um málið. Býst jeg við, að hv. þm. vilji láta það fá fljóta afgreiðslu úr deildinni.