02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

1. mál, fjárlög 1925

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Það hefir nú svo margt borið á góma um allskemtileg efni, að jeg er alveg kominn út úr því að hugsa um þessi atriði, sem jeg þarf að svara fyrir hönd nefndarinnar. Það er heill sólarhringur síðan jeg kvaddi mjer hljóðs, og er jeg því búinn að gleyma mörgu af því, sem jeg þurfti að taka fram. En þetta sakar ekki svo mjög, enda fylgir sá kostur, að jeg get nú orðið mjög stuttorður.

Jeg þarf ekki að kvarta undan því, að hv. deildarmenn hafi ráðist á mig, því hlýju hefir andað úr ræðum þeirra flestra til nefndarinnar. Jeg þarf því ekki að svara neinum árásum, en af því jeg í fyrri ræðu minni talaði ekki neitt um brtt. hv. þm., þá mun jeg nú með fáum orðum taka fram afstöðu nefndarinnar til þeirra.

Jeg kem þá fyrst að brtt. hæstv. fjrh. (JÞ). Jeg hefi lítið um þær að segja frá sjónarmiði nefndarinnar, og gildir það að mestu leyti fyrir mig einan, sem jeg segi um þær. Jeg er samþykkur því, að teknir verði upp í tekjuhlið fjárlaganna vextir af viðlagasjóði og sömuleiðis að undir „endurgreidd lán og andvirði seldra eigna“ verði færð afborgun af skuld landsverslunar. Að því er snertir till. um að heimila forsetum að leggja niður prentun á umræðuparti Alþingistíðindanna, þá tók nefndin enga afstöðu til hennar; hún leit svo á, að þar væri um lagaspursmál að ræða, sem hún þóttist ekki einfær um að leysa, eða vildi ekki úrskurða um. Sama er að segja um till. um landhelgissjóðinn, að nefndin hefir óbundin atkvæði í því máli.

Hv. 2. þm. Rang. (KlJ) tók það fram, að vissara væri að hækka 7. gr. sökum þess, að gengisfallið yrði meira nú en áður. Það má vera, að talsvert sje í þessu, en nefndin átti hinsvegar óhægt með að slá föstu, hvað það myndi verða á næsta ári. Er það og von hennar, að það verði aftur komið í horfið við lok ársins 1924 eða á árinu 1925, og að ekki þurfi því sjerstaklega að gera ráð fyrir að hækka í þessu skyni. Þá þótti hv. 2. þm. Rang. nefndin hafa veitt of mikið til Eimskipafjelagsins. Þessi styrkur er ætlaður sem uppbót til strandferðanna, og þótt hann sje nokkuð hár, samanborið við fólksfjölda, þá er hins að gæta, að lega og ásigkomulag landsins valda því, og verður því að telja hin mestu vandræði, að geta ekki haldið uppi þessum ferðum, því ella verða þeir, sem búa á útkjálkum landsins, fyrir tilfinnanlegu misrjetti. Að þessi styrkur er aðeins ætlaður til strandferða, stafar af því, að fjelagið tapar sjerstaklega á strandferðunum. Og það er enginn annar kostur en að veita þetta fje, því ella myndi fjelagið ekki verða samkepnisfært við hin fjelögin, sem keppa við það um flutningana, en eru að því leyti betur sett, að þau geta valið arðsömustu viðkomustaðina. Annars er þessi styrkur einungis skilyrðisbundinn og á ekki að útborgast nema þörf krefji. Og alveg samskonar og á þessu ári. Að því er snertir þá aths., að finna megi ef til vill einhver ráð til að koma strandferðunum í ódýrara horf, þá er það ráð ennþá ekki fundið, og því ekki um neitt slíkt að ræða. — Það var svo ekki fleira. sem hv. 2. þm. Rang. tók fram, að öðru leyti en því, að hann lauk lofsorði á nefndina fyrir till. hennar, og kann nefndin honum þakkir fyrir það.

Háttv. 1. þm. G.-K. (ÁF) mintist á Flensborgarskólann og taldi hann brtt. nefndarinnar gera það óumflýjanlegt, að skólinn legðist niður. Þetta er misskilningur hjá hv. þm. Breytingin hjer er í raun rjettri ekki önnur en sú, að skólagjöldin verða notuð sem tekjur fyrir skólann í stað þess styrks, sem hjer er numinn burt, og ætti það að koma nokkurn veginn í sama stað niður.

Þá kem jeg að hv. þm. Mýra. (PÞ). Hann mintist á styrkinn til sjúkrahúsa og vildi, að honum væri ekki skift niður í fleiri staði en svo, að einhverju munaði fyrir þá, sem fengju hann. Vildi hann helst leggja það til, að hann væri ekki látinn koma niður á meira en svo sem tvo staði. Nefndin álítur, að úr því að tillögum hennar var ekki tekið, sje ekki annars úrkosta en hallast að því, að ríkisstjórnin sje látin ráða, hvernig styrknum verði útbýtt.

Sami hv. þm. mintist líka á tillag til sýsluvega. Nefndin telur það óviðeigandi, að veitt verði tillag til þeirra jafnframt því, sem felt sje niður tillag til þeirra vega, sem ríkissjóðnum ber fyrst og fremst að annast.

Þá hefir sami hv. þm. enn komið fram með brtt., þess efnis, að fje sje veitt til að halda uppi bygð á einu fornu höfuðbóli landsins. Nefndin varð mjög undrandi er hún sá þessa brtt., enda mun það vera einstætt, að ríkissjóður leggi fje til slíks, einkum eins og nú stendur á. — Jeg býst líka við, að þessi brtt. sje fram komin í sambandi við sjerstaka styrkbeiðni, sem jeg hirði ekki að nefna, en sem nefndin treystist ekki til að taka upp, vegna þess, að hún taldi þar vera varasamt fordæmi. Nefndin getur því ekki heldur aðhylst þessa till.

Þá er hjer enn brtt. um styrk til Grímsneslæknishjeraðs, sem hv. 1. þm. Árn. (MT) hefir borið fram. Við 2. umr. hljóðaði tillagan um 9 þúsund kr. styrk, og var þá látið svo heita, að það mundi vera nærri sanni. — En nú þykist háttv. þm. (MT), við ítarlegri athugun málsins, hafa komist að annari niðurstöðu. Ætli það væri nú ómögulegt, ef hv. þm. legðist niður enn á ný og breiddi feld yfir höfuð sjer, að hann kynni að komast að einni niðurstöðunni enn. Það kemur svo oft fyrir hjá þessum hv. þm., að ein niðurstaðan leysir aðra af hólmi, og má það æra óstöðugan að eltast við þær. En nefndin þykist nú fyrir sitt leyti einnig hafa athugað málið allítarlega, og hefir hún komist að þeirri niðurstöðu, að aðhyllast ekki till. Hv. þm. sagði, að þetta mál hefði verið notað sem árásarefni á þáverandi fjrh. (Magnús Jónsson). Sú árás hefir þá sannarlega náð tilgangi sínum, úr því að ráðherrann varð að fara frá. Sýnir það einnig, að árásarefnið var talið allalvarlegt, og verður það til að styðja málstað nefndarinnar.

Næsta brtt. þessa hv. þm. er um styrk til bryggjugerðar á Eyrarbakka. Nefndinni þykir sárt að þurfa að vera á móti þessum styrk, því hún veit vel, að hjer er um mjög gagnlegt fyrirtæki að ræða. En hún treystist ekki til þess, sökum þess, að hún óttast, að það muni draga þann dilk á eftir sjer, sem ekki verði við ráðið.

Þá er hjer brtt. frá sama hv. þm. um styrk til júbil-ljósmóður. Nefndin getur ekki heldur aðhylst þá till., og er það ekki af því, að henni vaxi þessi litla fjárhæð í augum, heldur af hinu, að hún skoðar þetta sem fordæmi. Auk þess hefir það og vakað fyrir nefndinni, að ef því yrði komið á, að júbil-ljósmæður fengju styrk, þá gæti það haft í för með sjer þá hættu, að ljósmæður yrðu óhæfilega lengi við starfa sinn. Auk þess er á það að líta, að þessi styrkur er hvort sem er ekki svo hár, að nokkuð verulega muni um hann til framfærslu.

Sami háttv. þm. drap á það, hvort nefndin hefði athugað það, að nú þyrfti að auka fjeð til tollgæslu. Nefndin hefir að vísu ekki rætt um þetta enn, en jeg skal játa, að það er mjög líklegt, að auka þurfi tollgæsluna samkvæmt þeim lögum um höft og tolla, sem nú verða afgreidd frá þinginu.

Háttv. 1. þm. N.-M. (HStef) þarf jeg ekki að svara miklu, en jeg get ekki leitt hjá mjer að minnast á eitt atriði viðvíkjandi þessum hv. þm. Hann er eini maðurinn, sem hefir farið lengra en fjvn. í því að bera fram lækkanir á fjárlögunum. Hann hefir nú komið fram með till. þess efnis og fengið miklar ávítur fyrir af sumum hv. deildarmönnum. Það ríkja náttúrlega mismunandi skoðanir í þessum efnum, en frá sjónarmiði nefndarinnar er það bara eitt, sem nú ber að horfa á, og þetta eina er það, að koma ríkissjóðnum í það horf, að einhver stuðningur geti orðið að honum í framtíðinni. Með þetta fyrir augum hefir verið gripið til úrræða, sem ekki hafa þekst hjer áður, en það er að fella niður allar verklegar framkvæmdir. Eftir að þetta hefir verið gert, þá á í raun rjettri enginn liður fjárlaganna neinn rjett á sjer framar. Það er því fjarri því, að jeg taki til þess, þótt þm. komi fram með róttækar sparnaðartill. sem þessar, er hv. 1. þm. N.-M. hefir nú borið fram. Hjer er heldur ekki nema aðeins um frestun að ræða. Önnur þessi till. hefir því ekki ómaklega fengið lof hjá hv. 2. þm. Rang. (KlJ), og hvað fjvn. snertir, þá kom það til umr. í nefndinni að fella niður öll ólögbundin eftirlaun af 18. gr. Það varð þó ekki ofan á. En nú hefir nefndin, til þess að vera sterkari, tekið upp það ráð að standa fast saman í málum, og verða hv. þm. að sætta sig við þá ákvörðun nefndarinnar. Af þessum sökum mun nefndin vera á móti þessari till., þótt hún hinsvegar telji hana að ýmsu leyti rjettmæta.

Hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) talaði, eins og hv. þm. Mýra. (PÞ), um tillagið til akfærra sýsluvega, og þarf jeg ekki að svara því frekar en jeg hefi þegar gert. Þá mintist hann á klæðaverksmiðju á Reyðarfirði. Nefndin er enn á sömu skoðun og áður, og er sammála um það að leggja á móti tillögunni. Það snertir ekkert skoðun nefndarinnar á því, hvort klæðaverksmiðjur eigi að vera hjer ein eða tvær eða fleiri. Og þó að nefndin væri þeirrar skoðunar, að verksmiðjan ætti ekki að vera nema ein, þá sker hún hjer með ekkert úr því, nema hún eigi að vera á Austurlandi. En aðalatriðið er það, að nefndin telur málið ekki nægilega rannsakað og þessa till. ekki tímabæra, því hjer hefir ekki verið safnað til fyrirtækisins nema ca. 85 þús. kr., en farið er fram á 180 þús. kr. ábyrgð frá ríkinu, sem þó er ekki nema 2/5 stofnkostnaðar, og því alveg óhugsanlegt, að málið komist í framkvæmd fyr en eftir ófyrirsjáanlegan tíma. Það er því ekki til annars, ef ábyrgðin er veitt, en að því er sama sem slegið föstu, að þarna eigi verksmiðjan að vera. Inn á það vill nefndin ekki ganga sem stendur. Það atriði þarf ítarlegri rannsóknar við áður en það sje fastákveðið.

Aftur er jeg samdóma hv. þm. (SvÓ) um það, að óheppilegt sje að kaupa mikið af kembi- og lopavjelum og setja niður víða um landið. Jeg vil ekki slá því föstu fyrir nefndarinnar hönd, að það sje hennar skoðun, að þetta sje óheppilegt. En það er mín persónulega skoðun.

Þá talaði þessi sami hv. þm. um ábyrgð ríkisins fyrir Norðfjarðarhrepp og um gerðir nefndarinnar í því að fella niður þá ábyrgð, sem samþykt var við 2. umr. fyrir Bessastaðahrepp. Hv. 2. þm. Eyf. (BSt) drap líka á þetta atriði, sem jeg vildi draga fram við framsögu málsins, að hjer er fordæmi gefið og hætt við, að fleiri komi á eftir. En auk þess er önnur sjerstök ástæða og sjálfsögð leið, sem nefndinni við nánari athugun þótti hin eina rjetta. Eins og menn vita, eiga hjeraðsstjórnir að hafa yfirfjárræði hreppanna með höndum, og er því í raun og veru engin önnur leið rjettari en sú, að hrepparnir leiti fyrst til sýslunefndar og sýslan sjái hreppunum farborða meðan aðrir hreppar sýslunnar fá undir því risið. Og að þá fyrst sje leitað til ríkisins, þegar sýslan getur ekki lengur staðið straum af sínum hreppum. Það er augljóst, hvernig það færi, ef ríkið gengi í ábyrgðir fyrir fjölda hreppa úti um land, og ætti svo að ganga fyrst að þeim og síðan að sýslunum, ef hrepparnir gætu ekki borgað. Dæmið liggur ljóst fyrir frá Vestmannaeyjum, hafnargerðinni þar, þar sem ábyrgðir ríkisins hafa smáhlaðist saman, en ekkert fæst greitt. Þetta er auðsjáanlega ófært ástand, enda getur nefndin ekki mælt með þessum málaleitunum hreppanna. Það kemur málinu alls ekki við, hvernig stendur á þessum vandræðum hreppanna. En jeg vil þó geta þess, að kringumstæður þeirra eru misjafnar og sú þörf, sem liggur til grundvallar fyrir beiðni þeirra. En ef inn á þessar brautir er farið, þá verður að minni hyggju óhjákvæmilegt þegar á næsta þingi að skera niður fjölda slíkra beiðna. Af þessari ástæðu áleit nefndin rjettast að taka aftur tillögu sína um ábyrgð ríkisins fyrir Bessastaðahrepp.

Hæstv. atvrh. (MG) talaði um sjúkrastyrk til manns vestan úr Dalasýslu. Jeg get ekki fallist á þessa till. fyrir nefndarinnar hönd. Hún kynti sjer þetta mál ítarlega, er það lá fyrir henni. Og eftir þeim gögnum, sem fyrir nefndinni lágu, var eiginlega ekki hægt að sjá, hvað gera ætti. Hún gat ekki sjeð á þeim læknisvottorðum, sem umsókninni fylgdu, hvaða líkur væru til þess, að sjúklingurinn fengi bót, þó að hann færi til útlanda sjer til lækninga, nje heldur, hvort ekki gæti skeð, að hann gæti fengið samskonar bót hjá læknum hjer. Þetta var svo óákveðið, að nefndin gat ekkert af því ráðið, og varð því niðurstaðan sú, að hún tók ekki upp umsóknina. Annars lágu fyrir fleiri slíkar beiðnir, sem nefndin sá sjer ekki fært að sinna. Þá var annað atriði, sem hæstv. atvrh. vjek til nefndarinnar vegna breytingar á aths. við 16. gr. 3, um styrk til búnaðarfjelaganna. Þessa breytingu sagði hann að yrði að skilja svo, að búnaðarfjelögin ættu að kosta jarðabótamælingar í hreppunum. Nefndin hefir engu lýst yfir um þetta og lætur það afskiftalaust, en býst við, að sett verði ákvæði í reglugerð um þetta efni, hvernig því verði hagað. Enda er ekkert um það sagt í athugasemdinni.

Jeg þarf litlu að svara hv. þm. V.-Sk. (JK). Hann talaði um stúdentastyrkinn og tillögu nefndarinnar viðvíkjandi sáttmálasjóði. Jeg hefi áður talað um það, hver tilgangur nefndarinnar sje með þessu, og þarf ekki að ítreka það. Og nefndin vonar, að háskólaráðið sjái þörfina á því að hlaupa hjer undir bagga. Þó þetta fje, sem háskólaráðið hefir til umráða, sje ekki mjög mikið, þá er það þó trygt. En hagur ríkissjóðs stendur með ýmsum blóma; stundum hefir hann eitthvað, stundum ekkert fje aflögu. Í sambandi við þetta talaði hæstv. forsrh. (JM) um það, að háskólaráðið mundi sjá sjer fært að leggja fje til stúdentagarðsins, og er það ánægjulegt. Hjer er um svipað að ræða, og virðist háskólaráðið þar með hafa viðurkent, að verðugt sje að styrkja stúdenta og rjett, eftir tilætlun stofnskrár sáttmálasjóðsins. Sami hv. þm. (JK) talaði um námsstyrk stúdenta erlendis og kvað það hart að lækka hann. Það er satt, að þetta er hart. En nefndinni þótti rjettara að svifta þá styrk, sem ekki hafa verið nema eitt ár ytra, heldur en lækka um of á hinum, sem lengra eru komnir. Það er óhugsandi, að ríkið geti styrkt hvern sem er á þann hátt, sem verið hefir, en hinsvegar verður þessu ekki breytt nema með því móti, að einhver hafi halla af. Og úr styrkhæðinni, eins og hún hefir verið undanfarið, verður ekki dregið, nema með því að takmarka tölu þeirra stúdenta, sem styrksins njóta. Það ætti öllum að vera ljóst, að það er óhyggilegt og ópraktiskt fyrir ríkið að leggja fram mikið fje til þess að stúdentar lesi ytra hin og önnur fræði, sem ekki geta komið að notum hjer í neinu starfi, og styrkja þannig menn, sem ekki taka við neinu embætti hjer, en ganga í þjónustu hjá erlendri þjóð. Það kom fram hjá háttv. þm., að Danir mundu vera fúsir til að styrkja íslenska stúdenta til náms við Kaupmannahafnarháskóla. Það er gott að heyra. Það var helst að heyra á hv. þm., að Danir hefðu fje, sem þeir væru í vanda með að koma í lóg. Hæstv. forsrh. vildi lítið taka undir þetta, og því vafasamt, hvort hv. þm. V.-Sk. (JK) fer hjer rjett með.

Jeg hefi nú vikið nokkuð að ræðu hæstv. forsrh. jafnframt orðum hv. þm. V.-Sk. Þó vil jeg enn minnast á eitt atriði í ræðu hans, sem sje veðurathuganastofuna. Það hafa heyrst miklar raddir um það, að nefndin hafi hjer gengið of langt. Jeg hefi áður tekið það fram, að nefndin bygði einmitt hjer á ítarlegri eftirgrenslan og rannsókn heldur en í mörgum öðrum atriðum. Og hún komst að þeirri niðurstöðu, að með góðri samvinnu við landssímastjórann mundi mega komast af með 12 þús. kr. til skeytasendinga. Og þá verða 8 þús. kr. eftir til hins nauðsynlegasta. Nefndin vill ekki verða til þess, að þessi stofnun falli niður, sem hæstv. forsrh. segir, að sje bráðnauðsynleg, og gæti því gengið inn á það, ef stjórnin sæi sjer fært og sæi nauðsyn á að veita meira. En það hafa engar sönnur verið færðar á það, að 30 þús. kr. væru nær rjettu en 20 þús. kr. Nefndin leggur því á móti brtt. eins og hún er.

Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) á hjer brtt. um fjárveitingu til geitnalækninga. Það lá erindi um þetta fyrir nefndinni, en hún tók þetta þó ekki upp og hefir ekki lagt til, að það verði samþykt; því þó að hún yrði að telja það þarflegt, að þessar lækningar yrðu framkvæmdar, þá sá hún ekki annað en það gæti þolað bið eins og svo margt annað. Annars er nefndinni þetta ekki kappsmál, en hún verður nú samt að leggja á móti því.

Þá var þessi sami hv. þm. að tala um styrkinn til Esju; og í því sambandi benti hann á það, að breyta þyrfti áætlun hennar. En þar sem hv. þm. var að tala um það, að það ætti að haga strandferðunum alt öðruvísi en nú er, þannig, að skipið kæmi ekki við nema á fáum stöðum, þá held jeg, að það sje nokkuð fljótlega álitið. Það er ekki vert að slá því föstu, að maður úr Reykjavík eða af Akureyri, þó það sjeu hinir hærri staðir, kunni ekki að eiga erindi nema á stærstu hafnir. Þeir þurfa alveg eins að koma á hina smærri staði. En hjer verður að gera öllum svo jafnt undir höfði sem unt er. Þeim mönnum, sem búa á smáhöfnunum, á að gera eins auðvelt að komast frá sjer og til eins og öðrum. Mjer fanst hv. 4. þm. Reykv. líta á þetta mál nokkuð einhliða, eins og stór Reykjavíkurborgari. Honum þótti hart, að ríkissjóður væri að veita styrk til að halda uppi ferðum við þessar smáholur kringum landið. En þetta er vitanlega misskilningur hv. þm. Það verður að líta á þarfir allra í einu og reyna að bæta þörf allra jafnt.

Þá talaði hv. þm. um uppbót til talsímakvenna og gat þess, að þær hefðu uppeldi sitt að nokkru leyti annarsstaðar frá. Þetta var mjer ekki kunnugt, og jeg veit varla, hvernig á að skilja það. Þær gegna þá kannske símastörfum rjett að gamni sínu. Annars skal jeg enn taka það fram, að það, sem gerði það, að nefndin lagði á móti uppbótinni, var ekki það, að hún vilji ekki viðurkenna, að launin sjeu lág, heldur hitt, að hún vill ekki gera breytingu á laununum fyr en launalögin verða endurskoðuð í heild sinni 1925.

Loks mintist hv. þm. á till. um 50 þús. kr. ábyrgð til Jóhannesar Reykdals til fóðurmjölsverksmiðju. Nefndin leggur ekki á móti þessari till. af því, að hún álíti ekki slíkt fyrirtæki þarflegt. En henni virtist það svo illa undirbúið, að það væri ekkert hægt í því að gera fyrir ríkissjóð. T. d. ber till. ekki með sjer, að heimta eigi nokkra tryggingu. Þetta er alveg óvanaleg aðferð. Og þó að hv. flm. talaði um það, að það væri svo sem sjálfsagt, að ríkið heimtaði tryggingu, þá er stjórnin vitanlega ekki skyldug til þess, nema það sje tekið fram. Þetta er því illa um búið, og nefndin getur ekki mælt með tillögunni.

Hv. 2. þm. N.-M. (ÁJ) þarf jeg litlu að svara. Jeg hefi áður talað um ábyrgð ríkisins fyrir hreppana. Hann mintist á ábyrgðina fyrir Húsavíkurhrepp í þessu sambandi. En hjer eru alt aðrar ástæður fyrir hendi. Hjer er um það að ræða að afstýra hættu á lífi og heilsu manna, og því alls ekki sambærilegt við hinar ábyrgðarbeiðnirnar. Sami háttv. þm. talaði um styrkinn til ekkju Jóhanns heitins Sigurjónssonar. Jeg skal geta þess, að nefndin hefir óbundnar hendur um atkvgr. um þessa till.

Þá vil jeg minnast á ræðu hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) viðvíkjandi lækkun á fjárveitingu til sóttvarna innanlands. Það er ekki laust við það, að þessi till. hv. þm. sje dálítið einkennileg. Nefndin hefir átt tal við landlækni um þetta, og er það hans álit, að ekki sje hægt að komast af með minna en það, sem nefndin hafði lagt til. Nú veit jeg ekki, hvort þessa till. á að skilja svo, að meira megi ekki greiða til sóttvarnanna, hvort sem þarf eða ekki. En sje það ekki tilætlunin, þá er till. þýðingarlaus. Verði það gert, þá lítur það dálítið skrítilega út að taka þannig fram fyrir hendur á stjórn heilbrigðismálanna, ef nú kæmu upp næmir sjúkdómar og dýrar ráðstafanir þyrfti að gera. En rjett er að minna hæstv. stjórn á að fara gætilega í það að samþykkja alla reikninga, sem að þessu lúta. Það er gott að geta dregið úr þessum kostnaði, en jeg býst ekki við miklum árangri af slíkri till. sem þessari. Á síðasta ári voru engin sjerleg brögð að næmum sjúkdómum. Taugaveikin í Vestmannaeyjum kostaði að vísu allmikið fje, en kostnaðurinn við sóttvarnir innanlands varð samt í fyrra nær 20 þús. krónur. Mjer sýnist ekki hægt að fara vægilegar í sakirnar heldur en nefndin hefir gert.

Hv. sami þm. á fleiri brtt. Honum virtist sjerstaklega ofbjóða skilningsleysi fjvn. á vísindum og listum, og alt annað en fjárkláði væri henni lokuð bók. En nefndin ber engan kinnroða fyrir gerðir sínar í þessu máli. Fjárkláðinn er gamall og nýr skaðræðisgestur, og þegar hv. þm. V.-Ísf. segir, að hann vilji lækka eða því nær fella niður styrkinn til kláðalækninga, er það sama og hann segi, að hann vilji að fjárstofn landsmanna drepist án þess að nokkuð sje að gert. Þegar svo fjeð er dautt, getur hv. þm. sagt við þjóðina: Þetta málverk keypti jeg handa ykkur fyrir 2000 kr. af fje ríkissjóðs á því herrans ári, þegar fjárkláðinn drap 20000 af fje landsmanna. — Það getur vel verið, að hv. þm. sýni þarna meiri víðsýni en aðrir, en jeg býst þó við, að um það verði nokkuð skiftar skoðanir. Jeg hygg, að hjer sje meira í veði en menn alment gera sjer ljóst, og þetta er að mínu viti alls ekkert hjegómamál eða til að gera gys að. Það er auðvitað gott að geta keypt málverk af fátækum listamönnum, en hvar er þá tryggingin fyrir því, að málverkið hafi reglulegt listgildi! Jeg verð að segja það, að þó að jeg sje ekki nema lítilfjörlegur bóndi, þá þykist jeg hafa fullan rjett til að dæma með öðrum um það, hvað sje list. Jeg hefi sjeð margt af þessum málverkum, sem nú eru lofuð hástöfum, og jeg get ekki sjeð, að sum þeirra sjeu tveggja aura virði. Hika jeg ekki við að segja þetta, hvað sem hver segir um það, að jeg og mínir líkar berum ekkert skyn á þessa hluti. Jeg vil líka taka mjer í munn orð hv. 1. þm. N.-M. (HStef), það sem hann sagði um listamannastyrkinn, að þegar svona fje væri skift meðal margra lærlinga, þá yrði það þeim að litlu gagni, en teldi þeim aðeins trú um, að þeir væru listamenn, sem ekki hefðu þó snefil af listargáfu til að bera. Og yrði þá styrkurinn þeim frekar til skaða en hitt.

Þá kem jeg að till. hv. sama þm. (ÁÁ) um lán til að koma upp kembingarvjelum. Sjer nefndin ekki neina ástæðu til að gefa heimild fyrir slíku láni, þar sem hún sjer ekki, að neitt fje verði fyrir hendi. Ennfremur má benda á það, að rjettara virðist, að kembivjelarnar sjeu í sambandi við klæðaverksmiðju, en ekki settar upp sjerstakar hingað og þangað um landið. Nefndin er því á móti þessari till.

Þá talaði hv. sami þm. um styrkinn til Þórbergs Þórðarsonar. Taldi hann óviðeigandi, að nefndin kæmi með till. um lækkun, þar sem þegar hefðu verið greidd atkvæði um málið. En nefndin gengur þarna alls ekki lengra en sumir hv. þm. Nú hafa aðrir styrkir verið lækkaðir og sumir með öllu feldir niður. Sje líka litið á þörfina, finst mjer ekkert á móti því, að þessi styrkur sje lækkaður í samræmi við annað. Nefndin lítur svo á, að þar sem Þórbergur fær þó þennan styrk, geti hann varið nokkrum tíma til að taka á móti og halda í reglu þeirri viðbót, sem hann fær frá sjálfboðaliðum úti um land. Ætti það að vera honum hægur vandi, samhliða öðrum störfum, sem hann lifir á.

Á sumt það, sem háttv. 3. þm. Reykv. (JakM) talaði um, hefi jeg minst í svörum mínum til annara hv. þm., sem hafa um það rætt, svo sem styrkinn til símakvenna, veðurathuganastöðvarinnar og iðnskólans. Þó ætla jeg að minnast frekar á iðnskólann. Það má vel vera, að nefndin hafi ekki verið nægilega kunnug honum, til þess að geta metið þýðingu hans. Hugði hún skólann vera mestmegnis fyrir bæinn, en vel má vera, að það hafi verið misskilningur. Jeg skal ekki þrátta um það. En ef nefndin hækkaði styrkinn, yrði það misrjetti, litið til annara skóla.

Þá mintist hv. sami þm. á styrk til að gefa út Lög Íslands. Kvað hann nú víst, að lögin yrðu gefin út, svo að óhætt væri að veita styrkinn þess vegna. En jeg vissi ekki betur en Fjallkonuútgáfan hefði verið byrjuð á útgáfu laganna, og svo komið afturkippur í alt. Væri ekki ómögulegt, að eins færi nú. Hygg jeg líka, að lögfræðingar geti haldið áfram að togast um lagaskæklana, þó að einhver frestur kynni að verða á útgáfunni.

Sami hv. þm. mintist á styrkinn til Jóhannesar Lynge. Það má vel vera, að starf hans sje svo þarft og vel unnið, sem hv. þm. segir, en nefndin hefir fengið þær upplýsingar, að starfsþróttur hans sje orðinn frekar lítill og muni verk hans ekki vera mikils virði. En mönnum mun þá þykja till. nefndarinnar fara fram á of háa upphæð, hafi hún bygt á slíkum upplýsingum. En þess ber að gæta, að maðurinn hefir farið frá öðru starfi til þess að vinna þetta verk og þarf að lifa eins og aðrir. Telur nefndin því ekki rjett að skera um of við nögl sjer styrkinn. Sje maðurinn aftur á móti fyllilega starfshæfur, ætti hann að geta aflað sjer einhverra aukastarfa.

Þá er rannsókn á gróðri landsins. Sje jeg ekki, að það starf sje svo bráðnauðsynlegt, að því verði alls ekki frestað.

Um till. um styrk til Friðriks Klemenssonar er það að segja, að nefndin telur hann svo háan, sem hægt sje að hafa hann, ef gætt er samræmis við annað, og sjer sjer því alls ekki fært að mæla með, að hann verði hækkaður.

Næst er þá till. um styrk til Elínar Sigurðardóttur. Þar hefir kornið fram ný ástæða, þ. e. sú, að hún hafi verið í þjónustu landsins. Það má vel vera, að svo hafi verið; um það skal jeg ekkert fullyrða. En jeg hygg, að það hafi verið svo óverulegt, að ekki verði tekið neitt tillit til þess. Annars hefi jeg áður greinilega talað um þennan styrk.

Viðvíkjandi því, sem hv. 2. þm. Árn. (JörB) sagði um Skeiðaáveituna, skal jeg upplýsa það, að bankastjórnin vill alveg vera sjálfráð í því máli og tekur ekkert tillit til vilja þingsins í því efni.

Um aðrar tillögur, ef fram hafa komið, sje jeg ekki ástæðu til að tala. Hefir nefndin alls ekki tekið neina afstöðu til þeirra flestra og lætur menn sjálfráða um, hvernig þeir greiða um þær atkv. Held jeg, að jeg þurfi svo ekki að segja meira og láti hjer staðar numið.