02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

1. mál, fjárlög 1925

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg stend nú aðeins upp til þess að svara fyrirspurn hv. 2. þm. Eyf. (BSt), um styrk til Grímseyjarbátsins. Eins og jeg tók fram í gær, var búið að ráðstafa öllum styrknum, nema einum 10 þús. kr. þegar jeg tók við. Og er þó eftir að veita styrk til Breiðafjarðarbátsins, Austfjarðabátsins, Flateyjarbátsins, Hvalfjarðarbátsins og Eyjafjarðarbátsins. Hvað sem hinum líður, þá verður alls ekki komist hjá að veita Breiðafjarðarbátnum styrk, einkum þar sem Suðurland á ekki að hafa hafnirnar sunnan á Snæfellsnesi. En því get jeg lofað hv. þm. (BSt), að sje mjer það mögulegt, skal jeg láta Grímseyjarbátinn fá einhvern styrk. í fyrra voru veittar til hans 750 kr., en svo hárri upphæð býst jeg ekki við, að hægt verði að sjá af til hans nú. En jeg vona, að það verði ekki minna en 500 kr., þó að jeg vilji alls engu lofa.

Jeg veit það mjög vel, að eftir staðháttum er nauðsynlegt að veita styrkinn, því að ekkert hjerað og engin sveit er eins afskekt og Grímsey. En fleiri eiga við erfiða staðhætti að stríða, og er hart að þurfa að fella niður styrk til Flateyjar- og Hvalfjarðarbátanna, og mun jeg reyna að gera hvað jeg get til þess, að þeir fái eitthvað. Gæti líka verið, að unt væri að láta Breiðafjarðarbátinn fá eitthvað minna í ár, vegna þess að Esja mun koma við á fleiri höfnum við Breiðafjörð en í fyrra. Ákveðnar get jeg ekki svarað og vona, að hv. þm. (BSt) láti sjer þetta nægja.