03.03.1924
Neðri deild: 13. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í C-deild Alþingistíðinda. (1789)

9. mál, hjúalög

Frsm. (Jón Kjartansson):

Eins og sjest á nál. á þskj. 57, þá hefir allshn. ekki getað orðið á eitt sátt um frv. Hv 2. þm. Reykv. (JBald) vill leggja til, að frv. gangi fram, þó með breytingum, en sjerstakt nál. er þó ekki fram komið frá honum. Aðrir nefndarmenn leggja það til, að frv. verði felt.

Jeg býst við, að það, sem komið hefir hæstv. stjórn til þess að leggja þetta frv. fyrir hv. deild, sje það, að á þinginu 1922 var samþ. till. til þál. frá þáverandi 1. þm. Árn. (EE), um að skora á hæstv. stjórn að endurskoða landbúnaðarlöggjöfina. Þar var m. a. minst á hjúalöggjöfina, en aðalefnið var hin önnur landbúnaðarmál, ræktunar- og ábúðarlögin. Það verður því varla sagt, að slík krafa hafi komið fram um þetta, frá þeim aðiljum, sem mál þetta snertir aðallega, sem sje bændum og vinnuhjúum, að það geti talist ástæða til þess að fara að breyta vinnuhjúalöggjöfinni. En einmitt slík krafa, sprottin af því, að gildandi lög þættu ófullnægjandi, væri eðlileg ástæða fyrir því, að þau yrðu endurskoðuð.

Jeg hefi átt tal um þetta mál við ýmsa bændur, og hefir þeim öllum borið saman um það, að ónauðsynlegt sje að breyta lögum þeim, sem hjer er um að ræða, og að það sje sjerstaklega óheppilegt, þar sem nú sjeu miklir erfiðleikar á því að fá vinnuhjú í sveitum. Og ekki verður það heldur sjeð, að óskir hafi komið fram um breytingar á þessari löggjöf frá hinum aðiljanum, vinnuhjúunum. Samband þeirra og húsbænda byggist nú að mestu á fullkomnu samningafrelsi, og verður það að teljast bæði eðlilegast og báðum aðiljum hagkvæmast. Það er rjett, sem hæstv. atvrh. (KlJ) hefir tekið fram, að hjúatilskipunin sje orðin gömul, en það stendur líkt á með hana sem mörg önnur lög frá sama tíma, að til þeirra hefir verið óvenjulega vel vandað. Þessvegna hefir henni heldur ekki verið breytt síðan, því jeg tel ekki til verulegra breytinga ákvæðin í fátækralögunum, sem eru nokkru fyllri. Það bendir og á það, hvað skýr og glögg ákvæði þeirrar tilsk. eru, hvað örsjaldan hafa fallið dómar í málum milli húsbænda og hjúa út af þeim.

Það er ekki svo að skilja, að meiri hl. allshn. hafi ekki sjeð, að einhverjar breytingar á hjúatilsk. 1866, og sem frv. þetta hefir fram að færa, mættu leiða til bóta, en hún taldi þær allar þess eðlis, að ástæðulaust er að fara að koma með sjerstakar brtt. Það er t. d. gott að lögfesta vistráð hjúa í kaupstöðum, missirisvistráðin, að þau skuli lúta ákvæðum hjúalaganna, en í sjálfu sjer óþarft ákvæði, þar sem alment mun talið, að þessi vistráð falli undir ákvæði hjúatilsk. 1866. Hvað viðvíkur 8. gr. frv., sem nefndin telur til bóta, þá er víst venjan sú, að samið er um mánaðarkaup í kaupstöðum, og þá víst talið, eftir almennri reglu, að það falli í gjalddaga við lok hvers mánaðar, ef ekki er öðruvísi um samið. Hinsvegar gæti jeg hugsað mjer, að óheppilegt væri að lögfesta, hvenær greitt skuli hjúakaup í sveitum. Það mun eflaust vera frjálst samningamál milli húsbænda og hjúa, hvenær kaupið skuli greitt, enda er það venjulegast besta úrlausnin og ekki kunnugt, að það hafi rekið sig á hagsmuni hjúanna, þar sem húsbændur munu fá hjúi sínu það fje, sem það þarf með í þann og þann svipinn; en hinsvegar er verslun bænda oft svo varið, að illa getur komið sjer að binda greiðslu kaupsins við ákveðna daga með lögum.

Þá get jeg ekki varist því að finnast sum ákvæði frv. á hinn bóginn miða til hins verra frá því, sem nú er. Skal jeg þar sjerstaklega tilnefna 30. gr. frv., sem kveður svo á, að með mál milli húsbænda og hjúa út af vistarráðunum skuli farið sem með venjuleg einkamál. Samkv. tilsk. 1866 eiga þau mál að sæta meðferð einkalögreglumála. Þar sem hjer er aðallega um að ræða hjú innan 21 árs aldurs, og þurfa því sjerstakrar verndar bæði fyrir aldurs sakir og oft fátæktar, þá liggur í augum uppi, að óheppilegt er, að þau þurfi að hefja málsókn til þess að ná rjetti sínum. Eins og nú er, þurfa þau ekki annað en snúa sjer til hlutaðeigandi lögreglustjóra til að fá mál sitt rjett, sjer að kostnaðarlausu. Þá eru enn ákvæði frv., sem miða til þess að bæta kjör hjúa, svo sem ákvæðið í 7. gr., sem áskilur þeim rjett til að krefjast að sofa eitt sjer í rúmi o. s. frv. Í sjálfu sjer er þetta gott og virðingarvert, en þó mun víða húsnæði enn þá vera svo háttað í sveitum, að þetta er lítt framkvæmanlegt, eða að minsta kosti valda oft talsverðum erfiðleikum. Hefir það líka tíðkast frá alda öðli, að hjú hafa verið látin sofa tvö saman í rúmi, og má ætla, að það sje ekki svo varhugavert, að banna þurfi það með lögum, með því hreinlæti, sem gera má ráð fyrir að alment sje gætt nú orðið.

Eins og jeg vjek að í byrjun, þá hafa enn þá ekki komið fram neinar brtt. frá hv. 2. þm. Reykv. (JBald). En það er augljóst, að þar sem hann hefir ekki getað orðið samferða meirihl. nefndarinnar, þá sjeu þær þannig vaxnar, að meirihl. geti ekki verið með þeim. Vil jeg svo ekki orðlengja þetta frekar, en vænti þess, að hv. deild taki ástæður meirihl. allshn. til greina og felli frv.