23.02.1924
Neðri deild: 7. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (1801)

31. mál, fiskveiði í landhelgi

Flm. (Ágúst Flygenring):

Ástæðurnar fyrir þessu frv. er að finna í greinargerðinni, og eru þær svo skýrar, að jeg vonast til, að flestir háttv. þm. geti sjeð af þeim, hver nauðsyn er á þessu máli. En sökum þess, að ýmsir munu vera meðal háttv. þm., sem ekki þekkja vel til í Hafnarfirði, þá vil jeg nú skýra það litlu nánar.

Það eru nú 30 ár síðan útlendingar tóku að reka fiskiveiðar í Hafnarfirði, og hafa einhverjir jafnan stundað þær síðan. Var það enskt fjelag, sem fyrst reið hjer á vaðið. Hafði það eitt skip við veiðarnar, og það var fyrsta skipið, sem veiddi í botnvörpu hjer við land, er jafnframt lagði upp aflann. En tap varð á rekstrinum, og varð fjelagið að hætta hjer. En það tap varð aðeins fyrir eigendur skipsins. Hafnarfjörður hlaut gróða af því fyrirtæki, eins og öllum atvinnurekstri útlendinga þar. Bæði nutu bæjarbúar nokkurrar atvinnu á meðan það starfaði, og auk þess lærðu þeir að fara með þetta veiðarfæri, botnvörpuna, sem síðan hefir dregið okkur drýgst til framfara fiskiveiðanna. Nokkru síðar hófu Norðmenn fiskiveiðar úr Hafnarfirði. Leigðu þeir stöð þar og hafði bærinn mikinn hagnað af verslun þeirra og viðskiftum. Þjóðverjar og Hollendingar hafa einnig rekið þar fiskiveiðar. Hafa viðskifti þessara útlendinga ekki einasta verið vatn á mylnu Hafnfirðinga, heldur fjölda annara manna, er sóttu atvinnu til Hafnarfjarðar, og einnig ríkissjóðsins. Það er nú, að öllu þessu athuguðu, engin furða, þegar kipt er með löggjöf fótunum undan aðalatvinnurekstri kaupstaðarins, eins og gert var 1922, það er engin furða, segi jeg, þótt menn fyllist gremju og óvild til þings og stjórnar út af slíku. Hjer eru þúsundir manna sviftir atvinnu sinni án þess að þeim sje veitt nein önnur atvinnuhjálp í staðinn. Jeg er og fullviss um, að þær nefndir, sem höfðu þetta mál til meðferðar, þeim hefir ekki verið allskostar ljóst, hvað þær voru að gera, nfl. sjávarútvegsnefndir þingsins. Hefi jeg talað um þetta við tvo af þeim mönnum, sem þá áttu sæti í Nd.-nefndinni, og hafa þeir játað, að nefndin hafi ekki búist við, að lögin yrðu „praktiseruð“ á þennan hátt. Myndi nefndin aðallega hafa haft síldveiðarnar í hyggju, er hún gaf út nefndarálit sitt. (PO: Hvaða nefnd er það, sem háttv. flm. á við?). Sjávarútvegsnefnd Nd. 1922. Er jeg viss um, að þessir menn, sem jeg talaði við, gengu þess duldir, hvað af þessum lögum mundi leiða. En nú er komið sem komið er. Eitt er víst, og það er það, að einhver ráð verður að finna til að bæta úr ástandinu í Hafnarfirði. Og þau einu ráð, sem að gagni koma, eru aukin atvinnubrögð og þar með peningar. Er jeg að vísu sannfærður um, að stjórn og þing hafa svo stórt hjarta, að þau vilja eigi sjá menn falla niður úr hungri án þess að gera eitthvað að. En hvað sem um það er, þá verð jeg hins vegar að benda á, að það væri vanráðið að ætla sjer að bjarga Hafnarfirði með hallærisláni. Sæmilega stöðug atvinna er það eina, sem bygt verður á og vit er í. Jeg hefi nú komið fram með þetta frv. í þessari mynd, til þess að bæta úr vandræðum bæjarbúa, án þess þó að skerða fiskiveiðalöggjöfina. Þótt þetta frv. verði samþykt, er samt sem áður alls ekki opnuð sú leið fyrir útlendum peningastraum, sem ýmsir hafa máske ótta af, að oss geti orðið til ills. Tel jeg sjálfsagt og nauðsynlegt, eins og ástatt er, að stíga þetta spor, þar til við erum sjálfir orðnir svo öflugir, að við höfum bolmagn til að hrinda af stað nægum atvinnurekstri. En það er fjarri því, að svo sje ennþá. Peningamagn okkar er svo lítið, að við getum ekki aukið útgerð okkar svo sem þyrfti til þess að geta lifað og komist úr skuldum; en aukning og efling atvinnuveganna er þó eina ráðið til þess að auka velmegun þjóðarinnar.

Því hefir löngum verið veifað, að við Hafnfirðingar ættum að vera sjálfum okkur nógir. Það kysum við líka langhelst. En við erum ekki svo staddir peningalega, að við getum komið okkur upp nægilegum skipastól. Og hjer er ekki nein stofnun, sem fær er um að leggja það fje fram. Bankarnir segjast hafa ráðstafað svo fje sínu, að þeir hafi ekkert aflögu til nýbygginga eða nýkaupa fiskiskipa. Og annarsstaðar er svarið það sama. Víðast aðeins góð orð, en getan engin. Með öðrum orðum: peningarnir eru ekki fáanlegir, af því að búið er að brúka þá til annara hluta.

Jeg og margir aðrir, sem grandskoðað hafa þetta mál, hafa að lokum komist að þeirri niðurstöðu, að eina hagkvæma leiðin yrði að nota það fje, sem býðst þarna frá útlendingum, til að auka rekstur þessa atvinnuvegs. Fyrst við erum ekki færir um að gera þetta sjálfir, þá erum við knúðir til að bjarga okkur á þennan hátt, þar til okkur vex sjálfum fiskur um hrygg. Við eigum að fara að dæmi annara þjóða í þessum efnum. Höfum við til þessa ekki verið svo tregir að elta útlenda siði, að við ættum að þurfa að fyrirverða okkur, þótt við tækjum þá upp í þessu efni, síst þegar um þjóðhagslega nauðsyn er að ræða. Skulum við nú til dæmis virða fyrir okkur, hvernig Englendingar fara að í þessu efni. Setjum svo, að jeg vilji reka fiskiveiðar frá Grimsby eða Hull. Hafi jeg einungis nægilegt fje á boðstólum, þá er ekkert til fyrirstöðu að jeg geti keypt heila skipakví í þessum bæjum og gert út svo stóran skipaflota sem mjer sýnist. En vilji jeg aftur á móti leita mjer atvinnu sem sjómaður á togurum þeirra, þá aftaka þeir það þegar í stað, segjast ekki hafa of mikla atvinnu fyrir sína eigin landa og benda mjer á dyrnar. Hjá okkur Íslendingum er þetta algerlega á hinn veginn. Við höfnum auðmanninum, þótt fátækir sjeum, en hirðum hinn, sem ekkert hefir að færa, til að auka á atvinnuleysið, rjett eins og það væri það eina, sem okkur vanhagaði um. Mjer finst þetta ekki eiga allskostar við, eins og sakir standa hjer á landi nú, og held, að það sje mál til komið að breyta því. Vænti jeg þess, að háttv. þm. hugsi sig tvisvar um áður en þeir fella frv. þetta og kjósa þar með heldur þá leiðina, sem stefnir beint til meiri fátæktar.

Jeg vænti þess, að hv. þm. gefi einnig gaum að þessu, þegar þeir íhuga fjármál landsins, og hugsi sig sem sagt tvisvar um, áður en þeir loka alveg fyrir fje úr þessari átt.

Ef 3–6 útlend skip fengju leyfi til að stunda fiskveiðar frá Hafnarfirði, mundu þau veita miklum fjölda manna atvinnu, þau mundu færa bæjarfjelaginu stórfje, lyfta undir allar framfarir, skapa líf þar, sem nú er dauði. Hvert skip mundi greiða 30–40000 kr. í opinber gjöld, og mundi það koma ríkissjóði og bæjarsjóði í góðar þarfir. Mjer finst ógerningur að spyrna á móti að færa sjer þetta í nyt, þar sem það verður gert án þess að skerða vora dýrmætu! fiskveiðalöggjöf á nokkurn hátt.

Sumir menn munu ef til vill telja óviðfeldið að gefa Hafnarfjarðarkaupstað einum þessa undanþágu, að hjer sje farið fram á að veita þeim bæ sjerrjettindi, sem fleiri ættu að njóta góðs af. Þetta getur rjett verið, en jeg hygg, að lítil líkindi sjeu til þess, að aðrir kaupstaðir en Hafnarfjörður geti fært sjer þetta í nyt. Þess er að gæta, að þetta hefir áður verið talið frjálst, en útlendingar hafa þó aldrei neytt þessa nema í Hafnarfirði og að litlu leyti í Reykjavík.

Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál. Vona jeg, að hv. þm. telji það varhugavert að kasta þessu litla frv. fyrir borð, heldur telji reynandi að samþykkja það, ef það kynni að koma að gagni, sem má telja nokkurnveginn fullvíst. Til ills getur það á engan hátt orðið. Jeg skal því leyfa mjer að mælast til, að málinu verði hraðað eftir megni, því að ekki er loku fyrir það skotið, að það geti þá komið að gagni þegar á þessu ári. Jeg vildi óska, að það þyrfti ekki að orka mjög tvímælis, að þessi leið er útgjaldaminst fyrir oss til að firra kaupstaðinn vandræðum, þar sem ekkert fje er lagt fram og engu teflt í voða, hvorki fiskiveiðalöggjöfinni nje öðru.