23.02.1924
Neðri deild: 7. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (1803)

31. mál, fiskveiði í landhelgi

Flm. (Ágúst Flygenring):

Jeg skal ekki orðlengja um þetta frv., því að svo lítur út, sem tækifæri verði til að ræða það betur síðar. Nú skal jeg einungis víkja að því, er hv. þm. Borgf. (PO) vildi vefengja það, sem jeg sagði, að nefndarmenn í sjútvn. 1922 hefðu búist við öðrum afleiðingum af þessum lögum en orðið hafa. Því til sönnunar vitnaði hann meðal annars í ræðu frsm. í Ed., en hann tók þar einmitt fram, að hann byggist við, að lögunum yrði beitt á sama hátt sem áður, er kemur til fiskveiða, þannig að kaupmenn fái að kaupa afla úr erlendum fiskiskipum. Honum farast svo orð, með leyfi hæstv. forseta (MG):

„Jeg stend hjer upp út af því, að mjer virðist kenna nokkurs misskilnings um það, hvernig beri að skilja 3. gr. Það er bannað öðrum en íslenskum ríkisborgurum að flytja í land og selja síld. Er það hið sama og kemur fram í tilsk. 1872. Hinsvegar hefir það verið skilið svo, að útlendingum sje eigi bannað að flytja í land síldina og selja hana fastakaupmönnum. Þessu hefir eigi verið breytt. Nefndin lítur svo á, að þó að gerður sje fastur samningur af útlendum kaupmönnum um að kaupa alla veiðina, þá verður eigi skoðað sem þeir hafi fast aðsetur hjer, og falla þeir því eigi undir fyrri part greinarinnar. Hefir þannig verið litið á og því þannig framfylgt um þorskveiði, en ekki síldveiði. Tek jeg þetta fram til þess að fyrirbyggja misskilning um þetta atriði.“

Það var einmitt þetta, sem jeg hjelt fram, að nefndarmenn hafi álitið, að lögin mundu ekki breyta því, sem venja hafði verið áður um þorskveiði. Tveir þeirra, hv. 2. þm. Reykv. (JBald) og Einar Þorgilsson, þáverandi 1. þm. G.-K., hafa báðir tjáð og lýst yfir því á fundi, að þeim hafi komið á óvart, að lögunum yrði framfylgt sem gert hefir verið að því er þorskveiðarnar snertir. Þeir litu svo á, að þar sem lögin væru í raun og veru hin sömu sem áður, mundi engin breyting verða á um þorskveiðar. En þetta er smáatriði, úr því að svo er komið, sem nú er. Stjórnin hefir skýrt lögin á sinn hátt, og enginn heldur því fram, að sú skýring sje röng. Í þessu felst einungis afsökun Hafnfirðinga á því, að þetta skyldi koma þeim alveg á óvart.