23.02.1924
Neðri deild: 7. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í C-deild Alþingistíðinda. (1808)

31. mál, fiskveiði í landhelgi

Flm. (Ágúst Flygenring):

Hæstv. atvrh. (KlJ) hjelt því fram, að með fiskiveiðalögunum hefði í raun rjettri engin breyting orðið á um þetta efni. En það er ekki rjett. Þegar lögin komu út, þá voru þau þegar birt í þeim tímaritum og blöðum nágrannaþjóðanna, sem um þessi mál fjalla, og Englendingar voru ekki seinir á sjer og gerðu þegar fyrirspurn til enska ræðismannsins hjer um það, hvernig skilja bæri 3. gr. laganna. Og skýringin var á þá leið, að útlendingum væri óheimilt að hafast við í landi eða á höfn um lengri tíma í þeim tilgangi að reka fiskiveiðar hjeðan. Og auðvitað er það, að ef lögin hefðu enga breytingu gert í þessum efnum, þá væri frv. það, sem hjer liggur fyrir, ekki fram komið. Og hvað því viðvíkur, að útlendingum hafi aldrei verið þetta heimilt, þá er því að svara, að um 12 ára skeið hefir firmað Bookless Bros. rekið útgerð frá eigin stöð í Hafnarfirði óátalið, og er þar þó bæjarfógeti og öll skjöl viðvíkjandi yfirfærslum og kaupum þess þinglesin þar.

Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) hafði ýmislegt við frv. að athuga, en væntanlega tekst honum þó ekki að gera það að þeirri grýlu, sem hann sýnilega vildi. En sumt var þó ekki órjettmætt, sem hann tók fram, þar á meðal það t. d., að ef undanþága sem þessi gæti orðið Ísfirðingum að verulegum notum, þá bæri líka að veita þeim samskonar ívilnun. Ekki skyldi mjer þá vera óljúft að styðja að því, að þeir yrðu hennar líka aðnjótandi. En að frv. var ekki rýmra, kom til af því, að þeir, sem hjer á landi reka útgerð með togara, reka hana eingöngu frá stöðvum við Faxaflóa, og má í því sambandi minna á, að þeir togarar, sem Vestfirðingar hafa haldið úti, hafa annaðhvort lagt upp í Reykjavík eða Hafnarfirði. En að öðru leytinu hafa togararnir stöðvar annaðhvort í Hull eða Grimsby; má segja, að þeir sjeu gerðir út þaðan helming ársins.

Um hitt atriðið, sem þingmaðurinn gerði mikið úr, að það sje óheilbrigt að byggja eingöngu á atvinnurekstri útlendra manna, þá er jeg því auðvitað fyllilega samdóma. En hann getur verið bjargráð um stundarsakir, þegar annað þrýtur, og að svo miklu leyti sem innlendi atvinnureksturinn fullnægir ekki atvinnuþörfinni. Það var þetta, sem fyrir oss, flm. frv., vakti. Það er eitt út af fyrir sig stórhagnaður, ef hægt væri nú að selja fiskverkunarstöðina fyrir ½ milj. kr., í stað þess að hún er nú arðlaus eign og eigendum sínum til byrði. Hinu þarf varla að gera ráð fyrir, að vjer af þessum ástæðum stöndum uppi með fulla bæi af atvinnulausu fólki. Svo mikið hafa Hafnfirðingar aldrei bygt á þessum atvinnurekstri. Allar þesskonar spár eru með öllu ástæðulausar grýlur. En sem sagt, jeg tel heppilegt, að vjer notfærum oss sem best þann hagnað, sem vjer getum haft af versluninni við útlendinga, og þar sem atvinnuleysið er annarsvegar, þá ættum vjer líka að geta mætt þeim á þeirri leið, ekki einungis og beinlínis vegna fjárskorts okkar, heldur vegna hins, að vjer þurfum einnig að leita til þeirra í sömu erindum, og er mjer ekki ljóst, hvernig slík viðskifti ættu að geta gert atvinnulífið óheilbrigt. Það er heldur ekkert smáatriði, að vjer verðum jafnan margt að læra af útlendingum, ef vjer eigum ekki að dragast aftur úr. Vjer höfum að minsta kosti hingað til orðið að leita til þeirra í þeim efnum, og jeg geri ráð fyrir, að svo verði eftirleiðis. Vjer lítum þannig á, að þegar útlendingar sækja um leyfi til þess að setjast hjer að, gera þeir það oft af einskonar æfintýralöngun, sem þeir jafnaðarlega hafa ekkert upp úr. En því á þá að spilla þessu og banna þeim að koma?

Þá talaði háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ) um það, að vjer ættum að hlynna að smábátaútgerðinni, vegna þess, að hana stunduðu flestir, og svo til þess, að atvinna hjeldist og skiftist á sem flestar hendur. Þetta er ágætt, svo langt sem það nær og er framkvæmanlegt. En vjer verðum að athuga, að fiskimið vor hafa gengið mjög úr sjer hin síðustu ár, þ. e. a. s. öll grunnmiðin. Fyrrum voru auðug fiskimið svo að segja inni á hverjum firði, en nú eru þau eydd, vegna þess að innlendir og erlendir botnvörpungar hafa tæmt þau og fiskur helst þar eigi lengur við. Fiskur gengur nú eigi lengur eins langt upp á grunnmiðin sem áður, en það eru mið opinna báta og smærri mótorskipa, og þegar þessi mið bregðast, verða stóru skipin að koma til. Auk þess hefir þessi atvinnuvegur smábátanna eigi reynst betur en svo, að hann gefur eigi trygga atvinnu eða arð, enda er hann að miklu leyti á sama stigi í ár og hann var fyrir þúsund árum síðan.