06.03.1924
Efri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (1830)
44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum
Flm. (Jónas Jónsson):
Jeg hefi ekki ástæðu til að bæta miklu við það, sem jeg hefi áður sagt í þessu máli, sjerstaklega þar sem engin ný rök hafa komið fram frá þeim hv. þm., sem mælt hafa á móti frv. Hinsvegar virtist mjer gæta misskilnings hjá hv. 1. þm. Rang. (EP), þar sem hann heldur því fram, að jeg hafi í fyrri ræðu minni ráðist á Hannes Hafstein. Jeg mintist eigi á hann persónulega, en aðeins á það, sem gerst hafði í stjórnartíð hans, sem mjer að vísu virtist einn af hv. deildarmönnum vildi eigna sjer. — Jeg vildi aðeins taka það fram, að mjer þykir það æðiundarlegt, að það er eins og mönnum standi það á sama, þó að hjer á landi sjeu bæði druknir prestar, læknar og sýslumenn. Það er ekki verið að ónáða þá menn, þó að þeir geri sig seka um slíkt athæfi. Jeg vildi í þessu sambandi leyfa mjer að beina þeirri spurningu til hv. deildarmanna, hvort þeir taki fyrir góða og gilda vöru þá skoðun, að engir fleiri embættismenn þjóðarinnar en mentaskólakennarann eigi skilið að vera settir af fyrir ofdrykkju. Jeg veit, að það eru til þeir menn hjer á landi nú, sem vilja láta kaupa sig dýrum dómum úr embætti sínu, en eru þó druknir daglega. Og mjer er kunnugt um embættismann einn á Austurlandi, sem hefir verið fullur svo að segja daglega um margra ára skeið og gaf bæði drukkinn og veikur í rúminu vottorð, sem bygð var á kosning eins þm. í þessari hv. deild. En honum er ekki vikið frá embætti.
Þá er það einnig misskilningur hjá hv. 1. þm. Rang. (EP), að það þurfi ekki nema þingsályktun til þess að fá landsstjórnina til þess að flytja menn úr einu embætti í annað. Slík uppástunga sýnir aðeins hina fáránlegu vanþekkingu þessa hv. þm. Ef einhver af hinum 4 ólöglegu kennurum við mentaskólann er látinn fara, er það hægt skaðabótalaust, og má spara heilt embætti með því að flytja grískudócentinn í hans stað.
Frv. mitt er því í raun og veru aðeins trygging fyrir því, að slíkur flutningur geti átt sjer stað. Jeg veit vel, að til eru margir menn, og það menn í flokki hv. þm., sem halda því fram, að ekki megi svifta Bjarna Jónsson styrk þeim, sem hann hefir til Faustþýðingarinnar, þó að þeir viti það, að verk það er tilgangslaust. Jeg skal játa það, að jeg álít eigi hægt að leggja niður dócentsembættið, nema maður sá, sem í því situr, fái eitthvað í staðinn, vegna ranglætis þess, er maðurinn var beittur upprunalega. En jeg álít á hinn bóginn alveg nauðsynlegt að leggja embættið niður.
Þar sem þetta mun vera síðasta ræða mín í máli þessu, þá vil jeg að endingu áskilja mjer rjett til stuttrar athugasemdar, ef hv. þm. Seyðf. skyldi bera brigður á orð mín um lækninn á Seyðisfirði.