06.03.1924
Efri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (1834)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Einar Árnason:

Jeg hefi ekki miklu við umræðurnar að bæta. Jeg stóð aðeins upp út af uppástungu þeirri, er fram er komin um það að taka málið út af dagskrá, þar sem nú væri verið að ræða svipað mál í hv. Nd.

Hv. 1. þm. Rang. (EP) taldi það nýtt í þingsögunni, að samskonar mál væri rætt í báðum deildum í senn. En jeg vil upplýsa hv. þingmann um það, að þetta er alls ekki nýtt í þingsögunni. Dæmin eru mörg. Á síðasta þingi t. d. voru 2 frv. um breytingar á vörutollsl. flutt sitt í hvorri deild samtímis og sett í nefndir á svipuðum tíma. Efrideildarnefndin geymdi sitt frv. þar til sjeð voru forlög neðrideildarfrumvarpsins. Sje jeg því enga ástæðu til þess að láta ekki þetta frv. ganga til 2. umr. og nefndar.