06.03.1924
Efri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (1835)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Flm. (Jónas Jónsson):

Jeg skil það mæta vel, að hv. þm. Seyðf. vilji leggja lækninum á Seyðisfirði liðsyrði sitt, þar sem hann hefir gefið hv. þm. 30 seðla til að fljóta á inn á þing. Alt annað væri vanþakklæti. Jeg skil það vel, að þeir sjeu vinir, og tek það ekki illa upp fyrir hv. þm., þó margir staðlausir stafir hafi komið yfir varir hans. En viðvíkjandi samanburðinum á mjer og lækninum, þá er það mjög leitt, að gamall dómari skuli hafa svo litla dómgreind, að bera saman mann, sem máske hefir drukkið 2 staup af víni alla æfina, og landskunnan drykkjumann. En hjer sannaðist máltækið: Sannleikanum verður hver sárreiðastur. Hv. þm. Seyðf. veit, að skjólstæðingur hans hjer og verndari við þingkosningar hefir verið magnaður ofdrykkjumaður um mörg ár, og að rjettu lagi hefði fyrir löngu átt að vera búið að svifta hann embætti þessvegna. Nú í haust, þegar hann var að hjálpa vini sínum, dómaranum í Rvík, inn í þingið, var hann svo illa fyrirkallaður, að hann varð að vera heima og gefa sjálfum sjer vottorð um, að hann gæti ekki mætt á kjörfundi. En í rúminu gaf hann út ávísanir um heilsufar fólks úti um bæ, sem hann gat ekki litið á. Svona eru þeir embættismenn, sem fá að vera í embætti.

Hvað snertir Þingtíðindin og hv. 4. landsk. (JM), þá skal jeg taka það fram, að jeg tel ummæli hans hið mesta hrós um mig. Hv. andstæðingar Framsóknarflokksins hjer í þessari deild eru svo hræddir við dóm almennings, að þeir vilja fela sig í lokuðu þingi. Jeg þori aftur á móti að leggja hvert orð mitt undir dóm kjósenda. Það sýnir aðstöðumuninn til málefnanna. En hvað það snertir, að umr. í dag sjeu orðnar langar, þá má hv. þm. ekki gleyma því, að það er hans sök, en ekki mín.

Hv. þm. Vestm. (JJós) beindi þeirri ósk til mín, að jeg tæki málið út af dagskrá. Jeg vildi alt gott fyrir þann hv. þm. gera, en þetta væri vondur hlutur, því vil jeg það ekki. Auk þess hefir það verið rjettilega tekið fram, að það er ekki einsdæmi hjer á þingi, að sama mál hafi verið rætt samtímis í báðum deildum. Það gætir nokkurs misskilnings hjá væntanlegum stuðningsmanni væntanlegrar stjórnar, er hann vildi, að stuðningsmenn fráfarandi stjórnar ljetu hana koma þessu í gegn. Jeg hefi fyrst og fremst ekki stutt stjórnina mikið, og ef jeg hefði óskað eftir því, að hún kæmi þessu fram, þá hefði það verið ómögulegt án þingssamþyktar.