11.03.1924
Neðri deild: 20. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (1847)

57. mál, veð

Flm. (Magnús Torfason):

Jeg vil fyrst svara hv. þm. Ak. (BL) nokkrum orðum. Mjer þykir það mjög leiðinlegt að heyra það, hve vondum mönnum hann hefir kynst þarna fyrir norðan, og er það líka sannast að segja, að hann gefur þeim ekki góðan vitnisburðinn.

Jeg vil annars halda því fram, að það sje aldrei hægt að girða fyrir það, að menn brjóti lögin. Lögin eru ekki gerð fyrir eintóma lögbrjóta og misindismenn, heldur fyrir þjóðfjelagið í heild sinni. Verður einstaklingurinn að beygja sig undir það og reyna að halda almennar reglur. Háttv. þm. (BL) tók það fram, að ef þetta kæmist á, þá gætu bændur ekki skift um skepnur, þótt þeim bráðlægi á. Þetta er misskilningur. Hjer er aðeins um tiltekna áhöfn að ræða, en sama, hvernig skepnan er lit. Jeg veit, að í Danmörku er þetta venja, og er það gert í því skyni, að girða fyrir það, að menn lendi í hegningarhúsinu, þótt þeir skifti um skepnur.

Þá skal jeg snúa mjer að hv. sessunaut mínum (BSt). Hann sagði, að frv. þetta myndi fyrirbyggja það, að menn eignuðust sjálfir skepnur. Mjer hefir aldrei dottið í hug, að leiguliðar tækju við stærri áhöfn en svo, að hún væri aðeins nokkur hluti þess, sem jörðin getur borið. Hinsvegar sje jeg ekki, að áhöfnin þurfi að vera þeim nein plága, því þar er þá um lán að ræða, sem þeir njóta altaf bestu vaxtakjara af. Það er annars undarlegt, hvað þm. af Norðurlandi virðist illa við kúgildi. 1919 kom þm. þaðan með frv. um að fella þau niður, og varð jeg þá ásamt öðrum þm. til þess að fella það frv. Og nú er svipað hljóð að heyra hjá hv. 2. þm. Eyf. (BSt). Mjer finst það annars dálítið skrítið, ef menn eru svo mjög á móti því að fá áhöfn með svo hægu móti því eins og menn vita, þá stendur það mörgum efnilegum, ungum manni í vegi fyrir, að hann fái reist bú, hve erfitt er að fá góðar skepnur með hæfilegu verði.

Þá kem jeg að því atriði, sem mestur kostur fylgir, en það er, að fylgi bústofn jörðinni, þá verður það til þess að greiða mjög fyrir flutningi til sveitanna.

Að því er snertir þetta, hve háður leiguliði verði jarðeiganda, þá vil jeg benda á það, að nú er gersamlega horfin sú gamla kúgun í þeim efnum, sem áður ríkti. Nú er þessu fyrir komið eins og hverjum öðrum peningaviðskiftum manna á milli.

Jeg er sammála hv. þm. (BSt), að það væri heppilegast, ef bændur þyrftu ekki að skulda meira en svo, að jarðirnar hrykkju að veði. En það er nú svo í reyndinni, að margir bændur skulda miklu meira en því nemur. Út af því verða þeir oft að sæta okurvöxtum, og fer stundum svo, að menn verða af með stórfje af þeim sökum, og er þetta til þess að bæta úr því.