02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í B-deild Alþingistíðinda. (185)
1. mál, fjárlög 1925
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vona, að hv. þdm. virði mjer það til betri vegar, hversu tamt mjer er að vitna til fornra sagna.
Datt mjer í hug að minnast í upphafi máls þessa orða, sem mælt voru fyrir rúmum 700 árum síðan norður í Þingeyjarsýslu.
Þeir eltu þá grátt silfur Arnór Tumason, höfðingi Skagfirðinga, og Guðmundur góði. Var hart sótt og varið á báða bóga og átti Arnór títt um sárt að binda. Þó fanst Arnóri ilt, ef deilurnar fjellu niður nokkuð langa hríð; hafði það áhrif á heilsufar hans og skaplyndi. Bera þau þess vitni orðin, er honum fjellu af munni, er honum bárust fregnir af hernaði í Þingeyjarsýslu og bændur báðu hann liðsinnis gegn biskupi. Þá kvað hann svo á: ,,í sumar hefir mjer verið kvellingasamt, en er mjer komu orð Reykdæla, að þeir þyrftu liðs við, hóf af mjer allar vámur, svo jeg kenni mjer hvergi ilt.“
Jeg hefi nú þegar setið í 20 klst. undir þessari 3. umr. og hefir sótt að mjer svefn og leiði, en jeg verð að játa, að einkum þegar hæstv. fjrh. (JÞ) tók til máls og veittist að mjer, þá „hóf af mjer allar vámur, svo að jeg kendi mjer hvergi ilt.“ Treysti jeg, að það endist, enda skal ný aðför hafin.
Jeg vona, að hæstv. forseti (BSv) leyfi mjer að fara dálítið út fyrir efnið, því hæstv. fjrh. hefir vissulega stofnað til þess, að umr. í dag og gær yrðu að töluverðum eldhúsdegi.
En áður en jeg snýst við hæstv. ráðherrum (MG og JÞ), ætla jeg að víkja örlítið að því, sem jeg geymdi vísvitandi í fyrri ræðu minni. Í hinni fyrri ræðu sneri jeg mjer að stórpólitíkinni, og því geymdi jeg þetta vísvitandi, að jeg vildi, að einmitt í sambandi við það efni kæmist engin pólitík að. Jeg á hjer við þá einu fjáreyðslutill., sem jeg hefi komið fram með og mun bera fram, þá brtt. mína við 18. gr. fjárlaganna, að setja Þorstein Gíslason við hliðina á öðrum rosknum og viðurkendum skáldum. Inn í þetta vildi jeg engri pólitík blanda, og það er mjer mjög óljúft, að það hefir verið gert af ýmsum.
Mjer er það ljóst, að sumir segja, að styrkur þessi til gamalla skálda eigi ekki að vera til. Liggur hjer fyrir till. um að fella hann niður til sumra. Verði horfið að því ráði að fella niður skáldastyrkinn til Einars H. Kvarans og Indriða Einarssonar, skal jeg ekki halda fast í þessa till. En hinu verð jeg ákveðið að halda fram, að verði það ekki gert, eigi Þorsteinn Gíslason að skipa bekkinn með elstu og bestu skáldum okkar, þeim Valdimar Briem, Einari H. Kvaran og Indriða Einarssyni.
Við erum tveir flm., jeg og hv. 3. þm. Reykv. (JakM). Hann hefir að fornu og nýju verið pólitískur andstæðingur þessa manns, og svo hefi jeg nú verið í nokkur ár. Því er það ljóst, að ekki á till. að rekja rót sína til pólitíkurinnar. Heldur viljum við með henni sýna það, að hvað sem líður hörðustu deilum á því sviði, þá erum við manna fúsastir til að viðurkenna verðleika og sóma þessa andstæðings okkar.
Jeg tel svo ástæðulaust að orðlengja þetta frekar. Jeg vona, að hv. þdm. sýni till. velvild sína og blandi ekki frekar stjórnmálum inn í. Mun jeg aldrei gera það ótilneyddur, og þó hv. þm. Ak. (BL) gæfi sjerstaklega fult tilefni til þess, ætla jeg að sneiða hjá því.
Þá kem jeg að eldhúsverkunum. — Mun jeg þá snúa mjer að þeim tveim hæstv. ráðherrum (MG og JÞ), sem hjer sitja, og fyr að þeim, sem jeg þarf minna við að tala, hæstv. atvrh. (MG).
Fyrst vil jeg þó segja það, að jeg á ekki upptökin að því, sem gerst hefir hjer í gær og dag, og heldur ekki á jeg upptökin að því, að rjett í þingbyrjun hófst umræða um fyrv. fjármálastjórnir. Hæstv. fjrh. hóf það verk, og gerði jeg ekki annað en vitna í hann í gær. Hafði ekkert verið gert frá minni hálfu til þess að deila á ný á hæstv. atvrh., en hstv. fjrh. hefir valdið því með ræðu sinni í gær, að þessi 3. umr. fjárlaganna verður sannkallaður eldhúsdagur.
Að þessu loknu vil jeg minnast stuttlega á fáein atriði í ræðu hæstv. atvrh.
Fyrsta og stærsta atriðið, þegar um það er að ræða, hvernig honum hafi farist fjármálastjórnin 1920–21, og það atriðið, sem aðfinslur mínar eru mest á bygðar, er að sjálfsögðu mesta málið — enska lánið.
Hæstv. atvrh. hóf afsakanir sínar með því, að margir hefðu hvatt til þess, að lán yrði tekið. Það er nú svo og svo. Jeg og margir aðrir mjer meiri voru þessu mótfallnir, og svo er á hitt að líta, að sitthvað er að hvetja til að taka lán með góðum kjörum og að taka lán með hvaða kjörum sem er, ekki síst með verstu ókjörum.
Jeg er þess fullviss, að margir, sem hvöttu til lántökunnar, hefðu strax kipt að sjer hendinni þegar þeir hefðu frjett um ókjörin, því enska lánið er ekki eingöngu mesta lánið, sem tekið hefir verið, heldur og það versta. Og vona jeg, að önnur eins ógæfa verði aldrei leidd yfir þjóðina aftur.
Jeg get gert dálítinn samanburð, til þess að finna orðum mínum stað. Nú er nýbúið að taka næststærsta lánið, sem tekið hefir verið á þessu landi. Nú er það Landsbankinn, sem tekur lánið, í hitt skiftið var það landið. Hvernig er samanburðurinn á þessum tveimur lánum? Sá að af enska láninu var útborgað 84% c vextirnir voru 7%, en af Landsbankaláninu er útborgað 94½% og vextirnir eru 6½%
Þó er það vitanlegt, að ríkin fá ætíð hagkvæmari kjör en einstakir bankar og eins að miklu betra var fyrir Ísland að taka lán áður en enska lánið var tekið heldur en á eftir. (MG: Til hve langs tíma er þetta lán?). Jeg veit það ekki; er ekki svo kunnugur öllum gögnum, en það vildi jeg segja, jeg vildi að hamingjan hefði gefið, að enska lánið hefði verið til styttri tíma, svo þjóðin gæti fyr losnað við bölvun þess.
Þegar þessar tvær lántökur eru bornar saman, þá verður það ljóst, að enska lánið er einhver mesta hörmung, sem yfir þetta land hefir dunið, og sú versta ógæfa, sem hent hefir hæstv. atvrh. Og jeg veit, að hann sjer mjög eftir þessu og vildi það feginn ógert.
Önnur höfuðafsökun hæstv. atvrh. var sú, að átt hefði að kaupa hluti í Íslandsbanka fyrir lánið. Það er tómur fyrirsláttur, ekkert var keypt og honum eða öðrum datt það ekki í hug, af ástæðum, sem jeg ætla ekki að fara út í hjer.
Enn var atriði í ræðu hæstv. atvrh., sem jeg vildi víkja að. Honum var svo ákaflega hugleikið að skjóta sjer á bak við þingið og kasta allri ábyrgðinni á það um fjármálastjórnina. Þetta er ósköp þægilegt. Jeg efast ekkert um, að Björn í Mörk hafi kunnað ósköp vel við sig að baki Kára, og svo muni hæstv. atvrh. vel þykja unandi að baki þingsins.
En jeg vil minna á tvo ráðherra, sem tekið hafa við á eftir honum. Hv. 2. þm. Rang. (KlJ) stöðvaði ýmsar framkvæmdir, þegar hann var ráðherra, og hæstv. núverandi fjrh. (JÞ) segist ætla að stöðva margt líka og gæta þess, að ekki verði greiddar neinar umframgreiðslur. Þetta eru dæmi um það, hvað ráðherrar eiga að gera. Í þessu sambandi, hvort leyfilegt sje að draga þannig úr, vil jeg minna á orð, sem fjellu hjer á þingi ekki alls fyrir löngu. Einn hv. þm., sem nú situr hjer, var þá spurður að því viðvíkjandi framkvæmd fjárlaga, hvort skoða bæri fjárlög sem skipun eða heimild um fjárveitingar. Hann svaraði — með leyfi hæstv. forseta (BSv): „Þær eru ýmist skipun eða heimild. — Það er alls ekki tilætlunin að greiða alt, sem veitt er í fjárlögum. Það getur ýmislegt komið fyrir, sem veldur því, að ekki skuli greiða styrki. — — Stjórnin verður því að meta eftir atvikum, hvort rjett sje að greiða eða ekki.“ — Og litlu síðar: „Þá verð jeg að segja það, að jeg tel rjett að líta á fjárlögin sem sjerstaka tegund laga og eigi jafnbindandi og önnur lög.“
Jeg veit ekki, hvort hæstv. atvrh. (MG) vill nú mótmæla þessum orðum, en jeg vil minna hann á, að þetta er hann sjálfur, sem sagði, að fjárlögin sjeu ekki jafnbindandi og önnur lög. Þetta voru hans eigin orð, sem jeg las, og svo ætlar hann nú að skjóta sjer á bak við þingið og skella ábyrgðinni á það.
Hæstv. atvrh. sagði, að mjer væri mikið í mun að spilla á milli sín og hæstv. fjrh. Jeg hefi ekki viljað gera það; jeg hefi aðeins látið tölurnar tala, sem hæstv. fjrh. kom fram með. Hæstv. atvrh. svaraði mjer ýmsu; jeg vil svara honum með vísu:
„Skjóttu geiri þínum þangað,
sem þörfin meiri fyrir er.“
Hæstv. atvrh. hefði átt að svara hæstv. fjrh. Það eru tölurnar hans, sem ákæra hann. Og nú hefir hæstv. fjrh. enn hert á og heimtar, að hæstv. atvrh. beri allar umframgreiðslur undir sig. Hæstv. atvrh. sagði, að þá yrðu hinir ráðherrarnir eins og brúður. Jeg verð að dást að því, hve þolinmæði hans er mikil.
Áður en jeg skilst við hæstv. atvrh. vil jeg reyna að gera mjer og öðrum grein fyrir því, hvers vegna hann talar öðruvísi en hann framkvæmir, t. d. hvað snertir enska lánið, haftamálið og fjármálastjórnina. Jeg held, að hjer sje um sálfræðilega ástæðu að ræða, og vil þar sem oftar vitna í fornt mál. Jeg held, að öfugt geti átt við hæstv. atvrh., það sem sagt var um Guðmund góða.
Sturlunga segir um Guðmund góða: „Var biskup minni leiðingarmaður og alt ráðgjarnari en svá sem Kolbeinn ætlaði.“
Jeg held, að það gagnstæða eigi við um hæstv. atvrh. Jeg hygg, að hann hafi reynst meiri leiðingarmaður og alt óráðgjarnari en stuðningsmenn hans bjuggust við. Jeg ætla, að hann hafi látið aðra, sem honum voru harðari og klókari, ráða fyrir sjer; jeg óttast, að hann sje of þolinmóður.
Jeg vil að lokum aðeins geta þessa: Jeg mun hafa látið þau orð falla í hinni 12 álna löngu og tíræðu ritdeilu okkar hæstv. atvrh., að hann kynni að geta batnað, að jeg vonaðist eftir því, að hann hefði gott af árás minni og yrði verkbetri næst þegar hann tæki við. Jeg ætla að vona, að þetta rætist, að hann reynist nú minni leiðingarmaður og alt ráðgjarnari en áður. Jeg þykist líka hafa sjeð merki þess, að svo muni kunna að fara; jeg þóttist sjá merki þess í fyrradag. Því þegar tóbakseinkasalan var til umr., virtist það vera annar hæstv. ráðherra, sem farinn væri að sveigja til, og væri sú sveifla í völdum hæstv. atvrh. Jeg tek þetta sem fyrirboða þess, að nú verði það hæstv. fjrh., sem reynist meiri leiðingarmaður og alt óráðgjarnari en áður, eins og var um hæstv. atvrh. fyr, en hæstv. atvrh. verði harður á höftum o. fl.
Með þessari heillaósk, að þetta rætist á stjórnmálaferli hans nú, ætla jeg að kveðja hæstv. atvrh. í bili.
Þá kem jeg að hæstv. fjrh. (JÞ).
Jeg vil þá í upphafi máls míns minna á það, að hann fór snemma í sinni fyrri ræðu að tala mikið um frið og að halda frið. Síðan heldur hann þessa dómadagsræðu til að hella olíu í eldinn og sem verður þess valdandi, að 3. umr. fjárlaganna verður að eldhúsdegi og helst enn langt fram á nótt. Í sambandi við það, að hæstv. fjrh. hleypti þessu öllu af stað, þykir mjer rjett að minnast yfirleitt á þingsögu hans á þessu þingi, sem virðist varpa ljósi á margt.
Rjett í byrjun þings kom hæstv. fjrh. frá útlöndum með makt og miklu veldi og hóaði saman borgurum bæjarins og hjelt ákaflega stóra ræðu. Hann gerði þá alt svart og málaði grýlur á veggina. Hvers vegna? Það er enginn vafi á, að það var vegna þess, að hann ætlaði sjer þá að verða kóngur yfir Íslandi eftir fáa daga, taka við forstöðu hins íslenska ríkis innan skams, og í því skyni að það skini sem bjartast á eftir, vildi hann mála ástandið sem svartast nú.
Þá hirti hann ekki um það, að hátt væri reitt til höggs; þá hirti hann ekki um, hver varð fyrir höggunum. Nú, þegar alt er hrunið, verður hann að taka til hins — nú verður hann að reyna að mýkja þau sár, sem hann veitti hæstv. atvrh. (MG) og hæstv. forsrh. (JM). — Svo stórt var af stað farið, svo var úr garðí riðið, en, eins og Einar H. Kvaran segir, hann var altaf að tapa — eins hefir hæstv. fjrh. altaf verið að bogna síðan. Jeg ætla að telja dálítið upp — jeg hefi áður talið upp syrpur. Hæstv. fjrh. hefir nýlega gengið undir 5 jarðarmen.
1. jarðarmenið, sem hæstv. fjrh. gekk undir, var það, að hann gat ekki myndað stjórn, þrátt fyrir allar biðilsfarirnar, sem jeg mun síðar víkja að.
2. jarðarmenið, sem hæstv. fjrh. varð að ganga undir, var að verða undirráðherra í ráðuneyti hæstv. forsrh. (JM) og samverkamaður hæstv. atvrh. (MG) — skipa sess með þeim mönnum, sem tölurnar hans áfeldu harðast. Og ekki verður ósamræmið minna við að benda á það, að hann um leið spyrnir úr stjórn þeim manni, sem hann lofaði mest fyrir fjármálastjórnina fram að 1916.
3. jarðarmenið, sem hæstv. fjrh. gekk undir, var að taka sæti í þriggjamannaráðuneyti, en því fyrirkomulagi hafði hann ekki síst kent um vandræðaástandið.
4. jarðarmenið gekk hæstv. fjrh. undir í fyrradag, þegar hann bognaði í tóbaksmálinu og varð að afneita því máli, sem blöð hans flokks og samherjar höfðu aðallega barist fyrir í kosningunum.
Nú gengur hann undir 5. jarðarmenið sitt í kvöld — og það meira að segja tvöfalt. Hann hefir flutt tvær ólöglegar tillögur, sem báðum mun verða vísað frá. Hvergi mun sagan hafa slíkt frá öðrum fjármálaráðherra að segja. Og hann heldur sjer jafnvel fast við rjettmæti þessara till. enn. Þá fórst honum þó viturlegar, er hann bað á þingi 1921 fyrirgefningar á því frumhlaupi, er hann fór að krassa í gerðabók milli funda.
Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) sagði, að ef sú regla væri tekin upp að breyta gildandi lögum með fjárlögum, mætti með sama rjetti afnema alt kristnihald í landinu með fjárlögum. Með sama rjetti mætti afnema bæði dómara og lögreglu alla. Jeg býst við, að mönnum sje þetta svo ljóst, að ekki þurfi að fjölyrða um þetta, — en óneitanlega er það vel af sjer vikið, að hafa gengið undir fimm jarðarmen á ekki lengri tíma — og að hið síðasta skuli vera tvöfalt. — Jeg hefi minst á þetta í sambandi við ummæli hans um fljótfærni okkar beggja, sem jeg vík þó betur að síðar.
Þá mun jeg víkja að einstökum atriðum í ræðu hæstv. fjrh.
Hann talaði um slæleik í framkvæmdum fjármálastjórnarinnar, og þó sjerstaklega um það, að fje hefði verið borgað út samkvæmt sjerstökum lögum og þingsályktunum. Jeg er alveg sammála honum í þessu. En hvern hittir þessi ásökun hæstv. fjrh. fyrst og fremst? Auðvitað núverandi samverkamenn hæstv. fjrh., hæstv. atvrh. og hæstv. forsrh. Síst af öllu á þetta við fyrv. fjrh. Framsóknarmanna (KlJ). En hitt er mjer ekki kunnugt, hvert tilefnið er til þess, að hæstv. fjrh. beitir þessu nú gegn samverkamönnum sínum, fremur en mjer er kunnugt um tilefni hans til yfirlýsingarinnar um umframgreiðsluna, sem jeg er honum þakklátur fyrir, eins og jeg hefi áður tekið fram. Jeg tel vafalaust, að öll ummæli hæstv. fjrh., er að þessu hnigu, hafi verið á reynslu bygð, en gátan er aðeins sú, hversvegna hann kastar þessu nú framan í samverkamenn sína og flokksbræður, hæstv. forsrh. og hæstv. atvrh.
Þá talaði hæstv. fjrh. um samfeldari skoðanir í stjórn nú en verið hefði nokkru sinni fyr. Þetta er merkileg yfirlýsing. Eins og menn muna, var Pjetur heitinn Jónsson einu sinni í stjórn með þeim núverandi forsrh. og atvrh. Yfirlýsing hæstv. fjrh. segir því, að þessir núv. ráðherrar sjeu skyldari hæstv. núv. fjrh. en þeir voru Pjetri heitnum Jónssyni. Jeg efa ekki þessa yfirlýsingu. Allir vita, hvað þeim P. J. og núv. fjrh. bar á milli. En jeg beini þessari yfirlýsingu til athugunar nánustu stuðningsmönnum hæstv. atvrh., bændum í Íhaldinu, — og jeg beini henni til bænda um land alt. Hjer er fengin eins augljós viðurkenning fyrir innlimuninni í Reykjavíkur- og kaupmannavaldið eins og frekast verður á kosið.
Þá skal jeg víkja að þeim samanburði á fljótfærni okkar beggja, sem hæstv. fjrh. talaði svo lengi um. Það er nú fyrst og fremst, að það ætti að vera hægt að gera töluvert hærri kröfur til hæstv. fjrh. í þessu efni en til mín, og ber margt til þess. Fyrst og fremst: Jeg er miklu yngri en hstv. fjrh. Jeg er ekki fjármálaráðherra. Jeg hefi ekki ætlað mjer að verða forsætisráðherra. Jeg fyrir mitt leyti geri hærri kröfur til fjármálaráðherra en eins yngsta þingmannsins. Og þar sem hæstv. fjrh. talar um fljótfærni mína á liðnum fiferli, finst mjer ekki úr vegi að athuga að nokkru liðinn æfiferil hans sjálfs í þessu sambandi — og sjá hver skjöldinn ber.
Einu sinni tók Reykjavík upp mó — sællar minningar. Kostnaður varð margfaldur við það, sem við var búist, og megn gremja hjá almenningi yfir stjórn verksins. Þó var það mjög lærður verkfræðingur, sem hafði yfirumsjón með verkinu.
— Hvor var fljótfærari þá — á liðnum æfiferli — hv. fjrh. eða jeg!
Reykvíkingar þekkja frægan sementdrumb — bunka fyrir utan Kveldúlf. Það er minnisvarði frægs verkfræðings.
— Hvor var fljótfærari þá — á liðnum æfiferli!
Einn af prófessorum háskólans talaði í haust af svölum Alþingishússins. Hann talaði um að illa gengi að fá vatn í pípur rafmagnsveitunnar, þegar „haustrigningar brygðust“, og beindi því til lærðs verkfræðings — Hvor var fljótfærari þá — á liðnum æfiferli?
Það er stutt síðan, að maður nokkur fjekk umboð konungs til að mynda stjórn hjer á landi. Hann reyndi alt, sem hann gat, en tókst ekki. Þvílíkt hefir aldrei fyr komið fyrir í sögu landsins. Einsdæmin eru verst. — Hvor var fljótfærari þá — á liðnum æfiferli?
Þessi maður varð ráðherra — en ekki forsætisráðherra. Hann flutti tvær ólöglegar tillögur á einum og sama degi. Einsdæmin eru verst. — Hvor var fljótfærari þá — á liðnum æfiferli?
Jeg talaði áðan um fimm jarðarmen, sem þessi ráðherra hefði gengið undir. Það var hæstv. fjrh., sem fór að rifja þær minningar upp. — Hvor var fljótfærari þar — á liðnum æfiferli?
Síðast þessara atriða skal jeg að nokkru drepa á biðilsfarir þær, sem hæstv. atvrh. og hæstv. fjrh. og hv. þm. Ak. gerðu sjer svo tíðrætt um. Jeg mun tala um þetta mál í tvennu lagi, og mun þá fyrst drepa á biðilsfarir hæstv. fjrh. Þessi hæstv. ráðherra upplýsti það — eða vildi upplýsa — að Framsóknarflokkurinn hefði ætlað að gera hann að ráðherra 1917. Þetta er rjett að því leyti, að einstaka maður úr flokknum grenslaðist eftir, hvort þetta væri tiltækilegt. Hæstv. fjrh. virtist nú draga dár að þessu. Jeg skal því svara honum nokkrum orðum. Framsóknarflokkurinn er frábrugðinn öðrum flokkum í því, að þar gengur enginn með ráðherra í maganum. Því getur hann leitað að mönnum, sem kunna að standa nærri honum um framkvæmdir á áhugamálum hans, án tillits til þess, hvort þeir eru í flokknum eða ekki. Flokkurinn miðar altaf við mál, en ekki menn. En vitanlega reyndist alt of mikið djúp staðfest milli hæstv. fjrh. og Framsóknarflokksins, er til kom, svo að ekkert varð úr þessari biðilsför, sem flokkurinn þarf ekki að bera kinnroða fyrir. En sagan var dálítið lengri, og hæstv. fjrh. gleymdi að segja frá seinni hluta hennar, sem gerðist á þessu þingi. Sá hluti sögunnar hljóðaði um biðilsfarir hans sjálfs. Hann fór í allar áttir í þær biðilsfarir sínar og leitaði ekki síst til Framsóknarflokksins. Ef nokkur maður á skilið á þessu þingi að bera nafnið biðill, þá er það hæstv. fjrh. En alstaðar fjekk hann hryggbrot, eins og raun ber vitni um — og lýkur hjer biðilsfararsögu hæstv. fjrh.
Þá skal jeg minnast á hæstv. atvrh. og hans biðilsfarir, en um þær get jeg þó verið stuttorður, og skal jeg þar einkum geta tveggja atriða.
Fyrst og fremst er það, að jeg hugði, að til væru óskráð lög um það, jafnt í pólitískri baráttu sem annari, að orð gætu farið á milli manna í trúnaði, sem ekki yrðu notuð að vopni opinberlega. Þetta á svo að vera drengja á milli, og nauðsyn á, að það haldist, enda hefi jeg hingað til getað treyst þessu um alla — jafnt flokksbræður sem andstæðinga — nema einn, og það er hæstv. atvrh. Slík framkoma hlýtur að hafa sínar alvarlegu afleiðingar.
Í öðru lagi er það að segja, að á þeim tíma, 1922, er biðilsförin á að hafa farið fram, mun jeg alls ekki hafa talað meir en 20–30 orð við hæstv. atvrh. og ekkert orð um það mál. Það, sem hann vitnar í, er alt úr lagi fært. Engum Framsóknarflokksmanni datt í hug að gera hann að fjármálaráðherra, og þó voru fjáraukalögin miklu þá ekki komin til sögunnar. Þó var hugsanlegur möguleiki til þess, að hann fylgdi fram einu af aðaláhugamálum flokksins — innflutningshöftum — gerði það sem atvinnumálaráðherra. Framsóknarflokkurinn hefir ávalt látið málefnin vega meira en menn. En alt var þetta mjög lauslegt umtal, sem hæstv. atvrh. notar nú á sinn hátt. Og er þetta í eina skiftið, sem jeg veit til, að rofin hafi verið óskráð lög um að mega talast við í trúnaði. — Skal jeg svo láta þetta vera útrætt.
Hæstv. fjrh. kallaði þetta atriði rúsínuna og kvartaði yfir því, að hv. þm. Ak. hefði bitið í hana áður. En þessi rúsína, sem hryggbrotnasti biðill þingsins hampar, er skemd rúsína.