17.03.1924
Neðri deild: 25. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í C-deild Alþingistíðinda. (1855)
71. mál, einkasala á saltfiski
Flm. (Jón Baldvinsson):
Það væri náttúrlega ekki rjett að segja, að óhugsandi væri, að mistök gætu komið fyrir hjá landsversluninni. En það má slá því föstu, að reynslan gefur ekki ástæðu til þess að ætla, að þau mistök yrðu jafnmikil og hjá einstaklingunum. Því fyrir hvert mistak hjá ríkisversluninni er óhætt að gera ráð fyrir 100 mistökum hjá einstaklingunum, enda hefir ríkisverslunin enga aðra hvöt en þá að fá sem best verð fyrir vöruna, og enga ástæðu til að bralla.
Háttv. 1. þm. G.-K. (ÁF) sagði, að Norðmenn hefðu betri markað fyrir sína vöru en við, og stæðu því betur að vígi, og sannar það, að meira þarf að gera en gert hefir verið til að afla nýrra markaða. Hefir lítið verið gert til þess, en það þó verið styrkt af ríkinu, t. d. einn maður farið til Suður-Ameríku, og er mjer ekki kunnugt um, að útgerðarmenn hafi viljað eða getað notfært sjer árangurinn af þeirri för.
Háttv. þm. (ÁF) játaði, að gott væri fyrir fisksöluna að koma á samvinnu meðal hinna ýmsu útflytjenda, og sannar það rjettmæti þess, sem frv. fer fram á, að besta fyrirkomulagið sje einkasala ríkisins. Því eins og hv. þm. (ÁF) tók fram, þá þýðir ekki að ætlast til, að menn bindist frjálsum samtökum í þessu efni.
Jeg mótmæli því, að með frv. þessu sje skert persónufrelsi manna, frekar en með öðrum lögum. Og það er enginn skaði talinn, að leggja höft á einstaklingana til þess að þeir noti ekki frjálsræði sitt þjóðfjelaginu til óhagnaðar.
Það skín í gegnum ræðu háttv. þm. —- eins og við var að búast af svo reyndum manni — að hann telur aukna samvinnu nauðsynlega. Hann kemur fyllilega auga á gallana, og ætti því að fara þá leið til bóta, sem frv. leggur til, fyrst hann játar, að samvinnan fáist ekki með frjálsri samkepni. Og því frekar ætti að grípa til þessa ráðs, þar sem hv. þm. (ÁF) viðurkendi, að ekki er hægt að afla sjer markaðs í Suður-Ameríku nema með samtökum. Myndi ríkissalan því eiga þar góða aðstöðu.