02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (187)

1. mál, fjárlög 1925

Ásgeir Ásgeirsson:

Eftir allar þessar eldhúsræður finst mjer eins og jeg verði að biðja hv. deild velvirðingar á því, að jeg ætla mjer að víkja lítið eitt að þeim till., sem hjer eru til umræðu.

Hv. frsm. (ÞórJ) sagðist hafa fundið til kulda í garð hv. fjvn. í ummælum mínum, en mjer þótti hann þar óþarflega hörundssár, og jeg þykist ekki hafa gefið honum tilefni til ýmsra þeirra útlegginga, sem honum fanst viðeigandi að viðhafa í minn garð.

Jeg og hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) höfum borið fram till. um að lækka útgjöld ríkissjóðs til sóttvarna niður í 8 þús. kr. Þetta gefur hv. frsm. tilefni til að spyrja, hvort ætlun okkar sje, að ekki verði farið fram úr þeirri upphæð undir neinum kringumstæðum. Nú veit hv. frsm. ósköp vel, að ef þessi hefði verið ætlun okkar, þá hefðum við sett í till. „alt að“, eins og venja er til. Meining okkar með till. er aðeins sú, að reynt verði að halda í þessi útgjöld, og nauðsyn þess drögum við af þeirri staðreynd, að eftir spönsku veikina hefir þessi útgjaldaliður verið miklu hærri en áður. Ef heilbrigðisstjórnin telur óhjákvæmilegt að verja svo miklu fje í þessu skyni nú, þá játar hún um leið, að sóttvarnarráðstafanir hafi verið vanræktar að mun áður en spanska veikin geysaði.

Jeg skal ekki segja, að miklu máli skifti, hvor fjárhæðin verður samþykt. því að vel má vera, að ekki þurfi að brýna hæstv. stjórn til að halda í þetta fje sem mögulegt er. Þessar 8 þús. kr. eru auðvitað áætlunarupphæð, og sama er að segja um upphæðina í till. okkar hv. 2. þm. Eyf. (BSt), sem háttv. frsm. gerði næst að umtalsefni; þeirri till., að verja lægri upphæð heldur en nefndin áætlar til fjárkláðalækninga. Ef jeg vildi sýna háttv. fjvn. sömu góðgirni og háttv. frsm. hennar sýnir mjer, þá ætti jeg að halda því fram, að hún vildi binda upphæðina til sóttvarna við 15000 kr., og ef drepsótt bærist til landsins, þá skyldi heldur allur landslýður farast en fram úr þeirri upphæð yrði farið. Og ef jeg ætti að útleggja gerðir hv. fjvn. í sama tón og hv. frsm. leggur út orð mín, þá ætti jeg að segja, að ekki mætti, samkv. áliti háttv. fjvn., veita meira en 10 þús. kr. til fjárkláðalækninga, jafnvel ekki þó að við borð lægi, að allur fjenaður landsmanna fjelli að öðrum kosti. Nú hafa þrír bændur hjer í þessari hv. deild talið fullnóg að áætla til fjárkláðalækninga 2500 kr., eins og brtt. okkar hv. 2. þm. Eyf. fer fram á, en vitanlega er upphæðin áætlunarupphæð, og hv. deild sker úr því, á hvora áætlunina hún trúir.

En vel má vera, að háttv. frsm. hafi tekið svo þunglega á orðum mínum vegna sambandsins, sem hann sá milli fjárkláðalækninganna og málverkakaupanna. Jeg fæ reyndar ekki sjeð, að hv. frsm. þyrfti að fyllast gremju yfir því, að jeg ásamt öðrum háttv. þm. (JBald) bæri fram tillögu um að verja 2000 kr. til málverkakaupa, því að aldrei verður því í alvöru haldið fram, að sá styrkur drepi 20 þús. fjár, eins og háttv. frsm. komst svo fjálglega að orði. Jeg sagðist ekki hafa metið málaralistina að verðleikum með því að bera fram svo hæversklega tillögu, en hinsvegar sagðist jeg vel geta skilið það tjón, sem fjárkláði gæti bakað þjóðinni. Út af þessum ummælum fann háttv. frsm. ástæðu til þess að lýsa skoðun sinni á málaralist alment, skoðun, sem mig undraði stórum, að væri að finna hjá jafngreindum manni og háttv. frsm. er, að dómi allra, sem þekkja hann. Hann sannaði, að háttv. fjvn. hefði ekki áhuga nje smekkvísi til þess að veita málverkasafninu nokkurn styrk, með því, hvernig hann talaði um listir. Sagðist hann hafa sjeð málverk, sem virt hefðu verið á 2000 kr., en hann vildi ekki gefa 2 aura fyrir. Það er nú svo. En jafnvel hin göfugasta list er hvorki tveggja aura nje heldur tveggja miljóna virði. Hún verður ekki metin til fjár. Það ber vott um álgerðan og mjög sorglegan misskilning, að vilja meta list eftir því, hversu mikið má hafa upp úr henni af peningum, en ekki eftir því, hvað hún er í raun og veru. Slíkt er greinilega dómur þeirra, sem sjálfir geta ekki orðið hrifnir af sköpunarverki sannrar listar. En þeir, sem hafa orðið snortnir af því, vita, að listin verður aldrei metin til fjár fremur en annað göfugt í mannlífinu. — Jeg ber kinnroða fyrir að þurfa að koma krjúpandi fram fyrir hið háa Alþingi með ósk um, að það veiti einar 2000 kr. til málverkakaupa. Þessi tötralega till. samsvarar engan veginn svo göfugu málefni. Háttv. fjvn. hefir sýnt, að hún kann þó að meta bókmentir nokkurs, og vil jeg nú vona, að hv. deild láti málaralistina ekki gjalda þess, að hún hefir engan málsvara átt í háttv. fjvn.

Þá talaði hæstv. fjrh. (JÞ) um landhelgisgæsluna, og hann ber fram brtt. þess efnis, að ríkissjóður leggi aðeins 50 þús. kr. til hennar, gegn öðrum 50 þús. kr. úr landhelgissjóði. Sjútvn. hefir athugað þetta mál, og sá hún ekki fært að leggja til, að veruleg fjárhæð væri þannig veitt úr sjóðnum til landhelgisgæslunnar, því ef gengið væri inn á þá braut að verja fje úr sjóðnum til landhelgisgæslunnar, þá tefur það mjög fyrir því, að sjóðurinn nái tilgangi sínum, sem er sá, að koma landhelgisgæslunni algerlega í hendur Íslendinga. Jeg hefi umboð frá sjútvn. til þess að lýsa yfir því, að hún heldur fast við þá till., sem samþykt var við 2. umr., að 100 þús. kr. sje varið úr ríkissjóði til strandvarna. Hún hefir ekki viljað skerða landhelgissjóðinn. Og ef það ætti að gera, þá þyrfti lagabreytingu til þess, en nefndin telur, að slíkt væri neyðarúrræði, því þeim mun seinna kæmi sjóðurinn að fullum notum.

Þá vil jeg víkja að brtt. hæstv. fjrh. um að fella niður prentun Þingtíðindanna og þeim orðum, sem hann vjek að mjer í því sambandi. Jeg hjelt því fram, að sparnaður af því yrði ekki meiri en 6–8 þús. kr. Hœstv. fjrh. sagði, að slíkt væri sjálfsblekking, og vil jeg því skýra það nokkru nánar. Alþingi stóð árið 1922 álíka langan tíma og gert er ráð fyrir, að þetta þing muni standa, og þá kostaði prentun Þingtíðindanna 19 þús. kr. Jeg geri ráð fyrir, að prentun umrœðupartsins kosti nú um 22 þús. kr., og gæti átt sjer stað, að hann færi upp í 24 þús. kr. En skrifstofu þingsins hefir talist svo til, að við að fella niður prentun umræðupartsins muni skjalaparturinn lengjast um 25 arkir, og þær muni kosta um 5000 kr. Þar að auki þarf að vjelrita minst 4 eintök af ræðupartinum, og það kostar ekki minna en 3000 kr. Þarna eru þá komnar 8000 kr. Þá eru eftir 14000 kr. af kostnaðinum, en ef sú till., sem jeg held, að óhætt sje að fullyrða, að hafi fylgi meiri hl. þm., að hafa þing aðeins annaðhvert ár, nær fram að ganga, þá verður sparnaðurinn aðeins 7000 kr. á ári. Á þessu bygði jeg það, þegar jeg sagði, að sparnaðurinn yrði ekki nema 6–8 þús. kr. á ári. Og jeg verð að segja það, að það hefir verið eytt öðru eins fje eins og þessu, þó að minna hafi verið í húfi en hjer er.

Og auk þess er kastað út vegna þessa sparnaðar 3000 kr. í vjelritun umræðupartsins, sem svo væri algerlega til einskis, þegar farið væri að prenta umræðupartinn aftur, því umræðuparturinn frá þessum þingum, sem ekki væri prentaður nú í bili, yrði þá vafalaust prentaður. Og þegar eytt er 3000 kr. til einskis, til þess að spara 6000 kr. á ári aðeins í svip, þá verð jeg að segja, að það er dýrt lán, og þó lán sjeu ekki góð, þá held jeg, að það væri betra að taka lán til þess að prenta Þingtíðindin jafnóðum en að fella niður prentun á þeim. Annars skal jeg ekki fara mikið meira út í það mál, en það hljóta allir að sjá, að það getur verið mjög skaðlegt að fella niður prentun Þingtíðindanna, því með því eru bestu kjósendur landsins sviftir heimildum sínum um það, hvað fram fer á þinginu. Hæstv. fjármálaráðherra bar saman málfærslu fyrir hæstarjetti og umræður á þingi og taldi, að ekki þyrfti frekar að prenta umræðupartinn en málfærsluna fyrir hæstarjetti. En þetta tvent er, eins og allir geta sjeð, ósambærilegt. Málafærslumenn eru ekki fulltrúar þjóðarinnar eins og þingmenn, heldur eru þeir aðeins fulltrúar þeirra einstaklinga, sem gefa þeim umboð til þess að flytja mál fyrir sig, og þeir einstaklingar eiga hægt með að fá aðgang að ræðum málfærslumanna sinna, þótt þær sjeu ekki prentaðar. En hinsvegar er alt viðvíkjandi hæstarjetti, sem máli skiftir fyrir þjóðina, prentað, dómar og forsendur þeirra. Þess er líka að gæta, að ef á að spara á þinghaldinu, eins og sjálfsagt er, þá má finna svo margar aðrar leiðir til þess en þá, sem hæstv. fjrh. ætlast til að sje farin. Það mætti t. d. stytta umræðupartinn með því að takmarka ræðutíma þingmanna, eða með flokkasamtökum um það, að í hverju máli töluðu aðeins framsögumenn frá hverjum flokki, svo og frá nefndunum. Slík samtök hefðu átt að komast á þegar á þessu þingi, og jeg vonast fastlega eftir því, að slík samtök komist á þegar á næsta þingi. Jeg mundi fúslega fylgja slíkum breytingum, eins og jeg vil fylgja öllum breytingum, sem miða að því að göfga þingið, svo það megi ná aftur því áliti og því trausti, sem það hafði áður hjá þjóðinni, en þessi brtt. hæstv. fjrh. stefnir áreiðanlega í öfuga átt. En það er annar sparnaður, sem þingið getur komið í framkvæmd, og þó um leið verndað heiður sinn, og það er með því að framkvæma það eina, sem kjósendur hafa beðið mjög eindregið um, sem er að fækka þingum og hafa þing aðeins annaðhvert ár. Það er bæði sparnaður, sem mikið um munar, og það er sparnaður, sem þjóðin hefir beðið um. Og þó að hæstv. fjrh. þyki það bera vott um fljótfærni, þá leyfi jeg mjer að endurtaka það, að það muni spara ríkinu um 400 þús. kr., ef það er nú þegar samþykt, í stað þess að fresta því til næstu kosninga. Það mundi spara tvö þing. Stjórnarskrárbreytingin yrði samþykt á næsta þingi. Og í byrjun þess þings yrði lagt fram fjárlagafrv. fyrir árið 1926; svo væri hægt að bæta við fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1927, eftir að stjórnarskráin væri staðfest. Og ef þetta kynni að verða álitið að koma í bága við stjórnarskrána, að útbúa þannig í einu fjárlög fyrir tveggja ára tímabil, þá væri ekki annað en að skjóta inn í hina nýju stjórnarskrá ákvæði um stundarsakir, sem leyfði þetta.

Jeg skal svo ekki orðlengja um þetta, en jeg vil þó geta þess, að jeg hafði varla búist við slíku vantrausti á núverandi stjórn frá sjálfum fjrh., að hún gæti ekki leyst af hendi jafneinfaldan hlut og að útbúa fjárlög fyrir tveggja ára tímabil. Það hefir lengst af verið gert, meðan þingið hefir haft fjárráðin. En það verður auðvitað mjög mikill sparnaður að því að hafa þing aðeins annaðhvert ár, og jeg er sannfærður um, að það er hægt að koma í gegn á þessu þingi frv. um slíka breytingu á stjórnarskránni, ef góður vilji er með hjá öllum háttv. þm., þrátt fyrir ákvæðið í 28. gr. þingskapanna.