20.03.1924
Neðri deild: 28. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í C-deild Alþingistíðinda. (1872)

82. mál, samvinnufélög

Bernharð Stefánsson:

Jeg ætla ekki að fara út í neinar deilur um mál þetta. Mjer skilst, að í samvinnulögunum sje um tvö meginatriði að ræða. Í fyrsta lagi, hvaða rjettar fjelögin njóti innan þjóðfjelagsins, og í öðru lagi, hvaða skipulag eigi að vera innan fjelagsins sjálfs. Þjóðfjelagið hefir hið fyrra í hendi sjer. En hvað hitt snertir, þá er þar um að segja, að skipulagsákvæði samvinnulaganna voru sniðin eftir því, sem fjelögin sjálf höfðu komið á hjá sjer, eftir því sem reynslan kendi. Ef á annað borð ætti að fara að hrófla við skipulagsgrundvellinum, þurfa því að koma fram um það ríkar og ákveðnar óskir frá fjelaganna hálfu, því löggjafarvaldið byrjaði áður á grundvelli þeim, er fjelögin sjálf höfðu lagt. Nú hafa aðeins komið óskir um þetta frá einu fjelagi, og ef ætti að taka þær til greina, þyrftu að vera brýnar ástæður fyrir þeim. En þær ástæður hefi jeg ekki heyrt, enda þótt jeg hafi hlustað á háttv. þm. Borgf. Hann segir í framsöguræðu sinni, að með samábyrgð í öllu fjelaginu hefðu óreiðumenn átt hægara með að vinna fjelögunum tjón, en deildir hefðu betra eftirlit með slíku. Má vel vera, að svo sje, enda er ekkert því til fyrirstöðu samkvæmt samvinnulögunum, að deildarábyrgð sje innbyrðis, enda hefir það átt sjer stað víða í samvinnufjelögum. Það er því aðeins ábyrgðin út á við, sem hjer er um að ræða, og reynslan hefir sýnt, að fjelögunum er það nauðsynlegt vegna lánstraustsins, að hún sje fyrir alt fjelagið. Væri þessi breyting gerð á samvinnulögunum, má búast við, að sum fjelögin noti sjer hana, og þá einkum þau verst stæðu. Því það er nú einu sinni svo, að þeir, sem lent hafa í kröggum, vilja gjarnan reyna nýjar leiðir, í þeirri von, að þeim muni farnast betur næst, jafnvel þó sú von sje veik og á litlu bygð. Þetta gæti orðið til þess, að skuldir fjelagsins, er fyrir voru áður en breytingin er gerð, yrðu innheimtar allóvægilega, og gæti það haft alvarlegar afleiðingar. Hv. flm. (PO) hjelt því fram, að frv. rýrði ekki lánstraust fjelaganna. En jeg vil halda hinu gagnstæða fram. Jeg hygg, að sameiginleg ábyrgð sje altaf fyrsta og fremsta skilyrðið fyrir góðu lánstrausti.

Jeg skal ekki fara langt út í það, sem hv. þm. Ak. (BL) sagði, en vildi þó í fám orðum minnast á það helsta, sem mjer fanst athugavert í ræðu hans. Hann fann samvinnufjelögunum ýmislegt til forátttu og taldi þau hafa orðið til þess að auka mjög skuldir bænda og gera þá ósjálfstæðari og hefðu yfirleitt bundið þeim þyngri byrðar en svo, að þeir gætu undir þeim risið. Til þess nú, að þessi kenning hans fái staðist, er ekki nóg að benda á, að bændur í samvinnufjelögunum og fjelögin sjálf sjeu skuldug, heldur þarf að bera efnahag þeirra bænda, sem í samvinnufjelögunum eru, saman við efnahag þeirra bænda, sem fyrir utan þau standa, og sýna fram á, að hann sje yfirleitt lakari. Hitt er út af fyrir sig engin sönnun. Eins og menn vita, þá hafa nú undanfarið gengið alveg óvenjulegir tímar, svo mjög mörgum hefir veist það erfitt að komast skuldalaust yfir mestu erfiðleikana. Og þó jeg hafi engar skýrslur fyrir hendi um skuldir bændanna, þá þori jeg að fullyrða, að efnaleg afkoma bænda í samvinnufjelögum er síst lakari en hinna. Og í minni sveit, þar sem jeg er kunnugastur þessum efnum, þá mun hagur þeirra fáu, sem utan við kaupfjelagið þar standa, vera yfirleitt verri en hinna, sem þeim fjelagsskap eru.

Þá skildist mjer sem hv. þm. (BL) teldi sig vera samvinnumann. Vil jeg ekki efast um, að hann sje það, hvað hugarfarið snertir. Líka talaði hann um, að hann og hans skoðanabræður vildu bæta samvinnufjelagsskapinn. Jeg trúi því einnig, að honum gangi gott eitt til, hvað það snertir, enda er mjer ótamt að ætla öðrum illar hvatir, þó þeir hafi aðra skoðun en jeg á einhverju málefni. En eitt hefir mjer jafnan fundist einkennilegt við slíka samvinnumenn, nefnilega það, að fæstir þeirra eru í nokkru fjelagi með samvinnusniði. Ef þeir hefðu áhuga fyrir þessum málum, þá fyndist mjer liggja næst, að þeir stofnuðu með sjer samvinnufjelag, sniðið eftir þeirra eigin hugmyndum, og sýna okkur hinum, hver fyrirmynd það geti orðið. Því það er nú einu sinni svo, að menn sannfærast betur af því að sjá hlutinn sjálfan og ákveðnar staðreyndir, heldur en af tómum hugmyndum og spádómum um það, hvernig þetta og þetta gæti orðir, ef því væri hagað svo og svo.

Jeg vil nú ekki orðlengja þetta frekar, en vil að lokum undirstrika það, sem jeg tók fram í upphafi ræðu minnar, að því aðeins ætti þessi breyting rjett á sjer, að mikill hluti þeirra, sem hlut eiga að máli, hefðu óskað hennar.