19.03.1924
Efri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í C-deild Alþingistíðinda. (1916)
65. mál, Alþingistíðindi, niðurfelling umræðuparts
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg vil að eins leyfa mjer að mótmæla þeirri ásökun háttv. 5. landsk. (JJ) á okkur forseta Alþingis, að við höfum ekki sýnt sparsemi við ráðningu starfsmanna þingsins. Því að fyrst og fremst hefir kaup þeirra allra verið lækkað frá því í fyrra, og auk þess hafa þeir aldrei verið jafn fáir og nú, síðan þingmönnum var fjölgað í þá þingmannatölu, sem nú er.