19.03.1924
Efri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (1920)
65. mál, Alþingistíðindi, niðurfelling umræðuparts
Forsætisráðherra (S. E.):
Út af þeim ummælum háttv. 1. þm. Rang. (EP), að ekki væri ástæða til að ræða þetta mál, af því að svo margir væru flutningsmenn þess, vil jeg taka það fram, að við andstæðingar þess viljum gera alt, sem í okkar valdi stendur, til þess að reyna að koma því fyrir kattarnef. Gæti því vel verið, að einhver hinna 8 flm. snerist, eftir að hafa heyrt okkar skýru rök gegn því. Og þann mann teldi jeg meiri eftir en áður. Og ennþá er tími til að láta samviskuna vakna, svo að mál þetta verði drepið hjer nú þegar, því að það væri sparnaður, því að jeg er viss um, að það verður gert, er það kemur til Nd.