27.03.1924
Efri deild: 30. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (1950)

21. mál, stjórnarskipunarlög

Guðmundur Ólafsson:

Jeg og háttv. 1. þm. Eyf. (EÁ), höfum leyft okkur að koma fram með breytingartillögur á þskj. 169, og breytingartillögu við þær á þskj. 189, um að umboð landskjörinna alþingismanna falli niður. Við umræður þær, sem orðið hafa hjer í hv. deild um stjórnarskrárbreytinguna, hefir því verið haldið fram af hálfu okkar Framsóknarflokksmanna, að líklegast myndi málinu til framgangs, að aðrar breytingar kæmu ekki fram við stjórnarskrána en þær, sem þjóðin hefir óskað eftir og sjáanlega hefðu mikinn sparnað í för með sjer, svo sem þinghald annaðhvert ár. Í samræmi við þessa skoðun bárum við Framsóknarflokksmenn í þessari háttv. deild, þegar í þingbyrjun, fram frv., sem innihjelt þessa breytingu á stjórnarskránni, og að ráðherrarnir skyldu aðeins vera 2, eins og nú hefir verið síðastliðið ár. Jafnhliða bar háttv. 4. landsk. (JM), núverandi hæstv. forsrh., fram frv. um sama efni, þar sem farið var fram á fleiri og gagngerðari breytingar, svo sem að ráðherra sje aðeins einn, með landritara, og kjörtímabil alþingismanna sje lengt um þriðjung, það er landskjörinna þingmanna úr 8 árum upp í 12 ár, og kjördæmakosinna úr 4 í 6 ár. Þar sem nú háttv. deild hefir við tvær umr. samþ. frv. hv. 4. landsk. (JM), með þeirri breytingu einni, að landritarinn fjelli niður, og þar sem ætla má, eftir því sem fram hefir komið, að mikill áhugi sje fyrir því, hjá tveimur stærstu flokkum þingsins, að koma fram þeim breytingum á stjórnarskránni á þessu þingi, er gerðu kostnaðinn við þinghaldið til stórra muna minni en verið hefir undanfarin ár, þá virðist ekki fjarri lagi að athuga, hvort ekki gæti verið um fleiri sparnaðartillögur að ræða, sem þjóðinni, frá stjórnarfarslegu sjónarmiði, gæti ekki orðið til tjóns, þó að samþyktar yrðu. Til þessháttar sparnaðarráðstafana tel jeg óhikað brtt. okkar hv. 1. þm. Eyf. (EÁ), um að umboð landskjörinna þingmanna sje lagt niður, og tölu þingmanna þannig fækkað úr 42 niður í 36.

Hvað þessa ráðgerðu fækkun þingmanna snertir, get jeg búist við, að mörgum háttv. deildarmönnum þyki of skamt gengið, miðað við fátækt og fámenni þjóðar vorrar, og vildu því gjarnan ganga lengra í þessu efni og fækka einnig kjördæmakjörnum þingmönnum eitthvað, en þar mun kjördæmaskifting landsins verða algerlega til fyrirstöðu um ófyrirsjáanlegan tíma. Alt öðru máli er að gegna með landskjörnu þingmennina; þeir eru aðallega kosnir af sömu kjósendum og kjördæmakjörnir, þótt með annari kosningaaðferð sje, og eru því einskonar ábætir á kosningarjett eldri kjósenda landsins, svo að með afnámi þeirra mætti heita, að tekið væri jafnt af öllum, og þó lítið. Með því þyrfti heldur ekkert að raska þeirri kjördæmaskiftingu, sem nú er.

Jeg get tæplega búist við, að sú mótbára komi fram gegn þessari breytingu, að Alþingi yrði ekki fullkomlega starfshæft, þó að hún yrði samþykt, því að varla mun með rökum verða sýnt fram á, að löggjöf síðari þinga hafi verið vandaðri en hún var áður, þá er þingmenn voru ekki nema 36, eins og við leggjum til, að þeir verði framvegis. Eftir því sem næst verður komist, myndi ríkissjóði sparast 15–16 þús. kr. árlega við þessa breytingu, ef þing er haldið á hverju ári, en vitanlega talsvert minna, ef breytingin um fækkun þinga gengur fram. En ekki er minna um vert, hve mikill sparnaður yrði að þessu fyrir þjóðina í heild.

Við landskjörið 1922 kusu 11962 kjósendur. Ef gert er nú ráð fyrir 6 kr. dagkaupi til hvers þeirra, sem síst mun ofhátt, miðað við þann tíma, sem kosningin fór fram á, nemur vinnutapið eitt á kjördaginn 71772 kr. Ef nú samt að dagkaupið þykir of hátt reiknað, má bæta við töluna því fje og þeim tíma, sem fer til „agitationa“. Þessu, og reyndar miklu meiru, er þjóðin látin kosta til 4. eða 6. hvert ár, til þess að kjósa aðeins þrjá menn til Alþingis Til viðbótar við hinn gífurlega kostnað, sem þannig er lagður á þjóðina, verður svo ríkissjóður að leggja fram fje, svo þúsundum skiftir, við hverjar landskosningar. Þetta endurtekur sig svo alt af 4. eða 6. hvert ár, ef brtt. okkar verður ekki samþykt.

Jeg hefi altaf greitt atkvæði á móti lengingu kjörtímabilsins, en ef brtt. okkar verður samþykt, veit jeg ekki hvað jeg geri; býst þó fremur við að greiða atkv. með því, því að þá sleppum við við mesta meinið, sem af því getur leitt, hið óhæfilega langa kjörtímabil landskjörinna þingm.

Sje jeg svo ekki ástæðu til að fara um brtt. þessar fleiri orðum nú, og vænti, að háttv. deild samþykki þær.