02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (199)

1. mál, fjárlög 1925

Jón Kjartansson:

Jeg hafði ekki búist við því að þurfa að standa upp aftur, enda hefði jeg ekki þurft þess vegna brtt. minna, því að þeim hefir yfirleitt verið vel tekið. En hv. 2. þm. Reykv. (JBald) blandaði inn í þetta mál ritstjóraskiftum Morgunblaðsins, í sambandi við till., er snertir fráfarandi ritstjóra. Háttv. þm. sagði, að Íhaldsflokkurinn stæði á bak við þessi ritstjóraskifti og að vegna hans hefðu þau orðið. En jeg get frætt hv. þm. á því, að Íhaldsflokkurinn kom þar hvergi nærri, því að ritstjóraskiftin voru ráðin löngu áður en flokkurinn var myndaður. Jeg var ekki einu sinni orðinn þingmaður þegar það kom til orða, að jeg yrði ritstjóri, hvað þá heldur, að jeg væri genginn í íhaldsflokkinn, sem ekki var þá til. Jeg skal ennfremur fræða hv. þm. á því, að fyrverandi ritstjóri Morgunblaðsins fór mikið fyr frá en jeg hafði búist við, og var það sök okkar núverandi ritstjóra blaðsins. Vegna árása þeirra, sem við urðum fyrir út af þessu frá andstæðingum blaðsins, óskuðum við eftir, að ritstjóraskiftin færu fram sem fyrst. Við kunnum því illa að verða svívirtir af óvönduðum blaðamönnum og hafa engin tök að svara fyrir okkur. Að Morgunblaðið sje flokksblað Íhaldsflokksins er ekki rjett, en hitt er satt, að jeg er flokksmaður í Íhaldsflokknum og hefi því líkar skoðanir á ýmsum þjóðmálum sem flokksbræður mínir þar. Jeg get vel skilið það, að hv. þm. öfundi Morgunblaðið af því að flytja ræður hæstv. fjrh. Hans blað fær aldrei slíkar greinar, sem vonlegt er.

Þá vildi jeg leyfa mjer að segja nokkur orð út af brtt. hæstv. fjármálaráðherra, sem. mest hefir verið deilt um, viðvíkjandi umræðuparti Alþt. og landhelgissjóðnum. Báðar þessar till. eru bornar fram í sparnaðarskyni. Mun jeg eingöngu snúa mjer að till. um umræðupart Alþingistíðindanna. Það hefir komið fram sú skoðun hjá ýmsum hv. deildarmönnum, að þetta yrði ekki borið undir atkvæði, af því að það kæmi í bága við 52. og 28. gr. þingskapanna og gildandi lög. En jeg er á þeirri skoðun, að báðar ástæðurnar sjeu rangar. Hin fyrri vegna þess, að hjer er ekki um neina lagabreytingu að ræða. 52. gr. þingskapanna segir aðeins, að umræður í þinginu skuli prentaðar, en segir ekkert um það, hvenær það skuli gert, nje að ekki megi fresta prentuninni eitt ár. Að þessi brtt. hæstv. fjrh. komi í bág við lagafrv. það, sem nýlega var felt hjer í þessari hv. deild, og þannig sje brot á 28. gr. þingskapanna, er ekki rjett. Hjer er aðeins farið fram á, að prentun á ræðu parti Alþt. sje frestað um 1 fjárhagstímabil, og er engum lögum breytt með því. Ef frv., er lá fyrir hjer á dögunum, hefði verið samþykt, þá hefði mátt fella niður prentun á umræðupartinum á þessu ári. En þó að þetta verði samþykt, þá er ómögulegt að fella prentunina niður nú á þessu ári, heldur einu ári seinna, því að fjárlögin gilda fyrir 1925. — Það sem skilur þessa till. frá sjerstökum lagafrv., er ennfremur það, að verði hún samþykt og forsetar Alþingis komast að þeirri niðurstöðu, að heppilegt sje vegna sparnaðar að fella niður prentun umræðuparts Alþt. 1925, þá þarf ekki lagaboð til þess að taka upp prentun aftur; það kemur af sjálfu sjer 1926. Fjárlög gilda aðeins eitt ár, en ef Alþingi hefði samþykt lagafrv., sem hjer var á ferðinni nýlega, þá hefði þurft nýtt lagafrv. til þess að nema lögin úr gildi — lagafrv., sem hefði orðið að fara sinn eðlilega gang gegnum þingið. Er jeg viss um, að hæstv. forseti vísar þessu ekki frá. Athugasemdin er án efa lögleg og kemur ekki í bág við neitt.