31.03.1924
Neðri deild: 38. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (2022)

87. mál, einkasala á tóbaki

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg ætla mjer ekki að kappræða við hv. 3. þm. Reykv. (JakM), en miklar eru ýkjur hans, ef hann hyggur, að hjer sje deilt um fríverslun eða ekki. Í flestum löndum Norðurálfunnar er einkasala á tóbaki, enda þó fríverslun ráði í landinu. Hann sagði nú, að gengið undanfarin ár hafi engin áhrif haft á verslunina. En áður sagði hann hið gagnstæða. Ágóðinn af versluninni hefir verið milli 220–230 þús. kr. síðastliðið ár. Kvað þm. mig hafa gefið rangar skýrslur, er jeg hefði neitað því, að verslunin hafi veitt kaupmönnum lán. Yfirleitt er tóbakið ekki sent kaupmönnum nema gegn póstkröfu. Þori jeg þó ekki að fullyrða, hvort 1–2 kaupmenn utan Reykjavíkur hafi ekki fengið lán; annars veit jeg, að fáeinir menn hjer í Rvík fá lán, þó aðeins gegn fullum tryggingum. Hann neitaði því, að einkasalan hefði gefið þær tekjur, sem við var búist í byrjun. Til þess að sanna, að jeg fer hjer með rjett mál, vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp fáein orð úr ræðu frsm. fjhn. 1921. Hann segir þá svo: „Fjárhagsnefnd vill þó, að frv. nái að ganga fram óbreytt. Er þar nálægt 200 þús. kr. tekjuauki trygður“, o. s. frv.

Hefir þannig komið í ljós, að fengist hafa á síðastl. ári þær tekjur, sem búist var við. Að tekjurnar hafa ekki orðið meiri, kemur af sífeldri hækkun á tóbaki, og getur álagningin ekki orðið eins mikil eins og ella hefði orðið.

Um samanburð á launum vil jeg ekki fara út í, því að það mál mun síðar koma til umræðu. En jeg vil benda hv. 3. þm. Reykv. (JakM) á, að það er hægt að halda uppi stofnun eins og Landsbankanum, þótt yfirmennirnir fái miklu hærri laun en við nokkra aðra stofnun hjer.

Skildist mjer á háttv. 3. þm. Reykv. (JakM), að jeg hefði átti að beita mjer fyrir birtingu reikninganna. Tel jeg það nægilegt að birta reikningana á Alþingi, svo að hverjum þm. gefist kostur á að sjá þá. Getur þá hver þeirra sem vill fengið þá birta í skjalaparti Þingtíðindanna. Legg jeg ekki mikið upp úr blaðafregnum um frönsku einkasöluna; tel jeg þær vera kviksögur, sem ekki sje vera mark á takandi.

Brigslyrðum til mín persónulega svara jeg engu.