02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

1. mál, fjárlög 1925

Magnús Torfason:

Jeg fór ekkert verulega út í það í fyrri ræðu minni, hvort skerðing landhelgissjóðs og frestun eða niðurfall á prentun umræðupartsins, væri breyting á gildandi lögum. Það er blátt áfram af því, að mjer er öldungis ómögulegt að skilja þann hugsanagang, sem þar er á bak við. Nú er svo mikið víst, að árangurinn af till. þessari verður alveg sá sami, hvort sem hún væri bein lagabreyting eða ekki. (JK: Þetta er ekki rjett!). Jú, hvortveggja þeirra gildir fyrir fjárhagstímabil, önnur hindrar framkvæmdir, en hin heimilar að taka fje til framkvæmda um eitt fjárhagstímabil. Viðvíkjandi þessu deiluatriði vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa fáein orð úr Stjórnlagafræði Íslands eftir prófessor Lárus H. Bjarnason, bls. 238. Það hljóðar þannig:

„Árangurinn af undanfarandi hugleiðingum um afstöðu fjárlaga til annara laga er þá sá, að það er ekki rjett að gerbreytingu á gildandi lögum með fjárlögum umfram heimildina til bráðabirgðahækkunar á lögmæltum gjöldum, sbr. niðurlag 2. málsgr. 25. gr. stjórnarskrárinnar. Þess vegna er skylda beggja aðilja löggjafarvaldsins, konungs og Alþingis, og hvorrar deildar um sig, að sporna við því af fremsta megni, að slíkar breytingar verði gerðar.“

Nú hefi jeg í dag litið í danska stjórnmálafræði eftir prófessor Matzen. Hann heldur því sem fastast fram, að fjárveitingarvaldið megi ekki breyta gildandi lögum. Ástæðurnar, sem jeg hefi fært fram, eru einmitt í samræmi við þetta. Prófessor Matzen segir jafnvel, að á sama standi, undir hvaða formi tillögurnar komi fram. Eins og jeg tók fram áður, get jeg ekki annað sjeð en að þetta sje svo skýr breyting á lögum og hægt er. (JK: Hvaða lögum er breytt?). Landhelgissjóðslögunum.

Út af því, sem sagt var um þessa skyssu 1919, skal jeg benda á, að jafnvel óbreyttur oddviti hafði haft vit á að neita að borga hið hækkaða tillag með sjúklingum á Kleppi. Aðstandendur hafa ekki treyst sjer til að heimta þetta af oddvita, enda leikur enginn vafi á því, að dómur hefði fallið hreppnum í vil.