21.03.1924
Neðri deild: 29. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í C-deild Alþingistíðinda. (2039)

91. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Þegar fjvn. var með frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1925, vildi hún skera af útgjaldaliðunum eins og framast væri unt, en hún rak sig brátt á það, að það voru ekki margir liðir, sem hægt var að sneiða af svo nokkru munaði, sökum þess, að þar var um því nær eintóm lögskipuð gjöld að ræða. Einn af þeim liðum, sem nefndinni þótti of háir, var laun barnakennara. En hún sá sjer ekki fært að koma fram sparnaði á þeim lið með öðru móti en því að breyta lögunum um skipun barnakennara og laun þeirra. Sumir í nefndinni vildu gera þetta á þann hátt að vekja upp frv. frá 1922 um frestun á framkvæmd þessara laga, en á það gat meirihluti nefndarinnar ekki fallist. Ofan á varð svo í nefndinni að bera fram þetta frv., sem gengur út á það að koma nokkru af þessum gjöldum á bæjar- og sveitarsjóðina, á þann hátt, að dýrtíðaruppbótin greiðist af sömu aðiljum og í sama hlutfalli og launin sjálf. Það kom fram till. þess efnis á þinginu 1922, en náði þá ekki fram að ganga. Þetta er í rauninni alls ekkert ósanngjarnt, því varla er hægt að finna neina skynsamlega ástæðu fyrir því, að dýrtíðaruppbótin skuli greidd af öðrum en grundvallarlaunin. Nefndinni þótti það rjett, að um leið og bæjar- og sveitarsjóðum væru lagðar þessar kvaðir á herðar, þá fengju þeir um leið meira íhlutunarvald um það, hve margir kennarar skyldu hafðir, þó auðvitað innan þeirra vjebanda, að fræðslunni verði þó haldið uppi á viðunandi hátt. Kveður 3. gr. frv. á um þetta. — Jeg er þó þeirrar skoðunar, að það sje rjettast að breyta þessari grein þannig, að það verði ríkisstjórnin en ekki bæja- og sveitarstjórnirnar, sem segi upp þeim kennurum, sem óþarfir eru, og með 4 mánaða fyrirvara í stað 6. En auðvitað ætti stjórnin að gera þetta eftir till. fræðslu- og skólanefnda. Jeg er að vísu ekkert á móti því, að tillit verði tekið til ráðlegginga fræðslumálastjóra í þessum efnum, en tel þó rjettast, að aðallega verði þar farið eftir tillögum fræðslu- og skólanefnda.

Sje jeg svo ekki ástæðu til að fara lengra út í málið, á meðan ekki koma fram neinar raddir til andmæla.