02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

1. mál, fjárlög 1925

Pjetur Ottesen:

Háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ) gat þess í sambandi við það, sem jeg vjek að samgmn. út af því, að Akranes hefði fallið niður, að ekki væri venjulegt að telja upp alla viðkomustaði út af fyrir sig. Stundum hefir brugðið út af þessu. Nú hefir hv. nefnd t. d. talið alla viðkomustaði við Faxaflóa nema Akranes; hjer gat því ekki verið um annað að ræð en dæmalaust flaustur hjá nefndinni eða hún ætlaðist alls ekki til, að báturinn kæmi við á Akranesi. Út af þeim samanburði, sem hv. þm. N.-Ísf. gerði á Djúpbátnum og Borgarnesbátnum, þá vil jeg segja það, að það munu vera nokkur áhöld um þá vegalengd, sem Djúpbáturinn fer; getur verið, að hann hafi fleiri viðkomustaði en Borgarnesbáturinn, en póstflutningarnir eru algerlega ósambærilegir.

Jeg álít, að skýrsla um ferðir bátanna ætti að vera skilyrði fyrir styrk og að allar áætlanir slíkra báta væru samþyktar af stjórnarráðinu. Það er engin meining að veita fje í þessu eða öðru skyni án þess að vita, hvernig með það er farið.