28.03.1924
Neðri deild: 35. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í C-deild Alþingistíðinda. (2067)

91. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Frsm. minnihl. (Bernharð Stefánsson):

Ýmsir hafa nú talað um þetta mál, og vildi jeg fara um það nokkrum orðum enn, þó að jeg geti ekki athugað svo ræður sumra þeirra, sem á undan hafa talað, sem skyldi, því að jeg hefi ekki hlýtt á þær allar. Sjerstaklega vildi jeg þá minnast á aldursuppbótina, því að mjer finst varhugavert að varpa henni yfir á skóla- og fræðsluhjeruð. Tel jeg það blátt áfram geta orðið til þess að skaða fræðsluna og koma af stað misrjetti, að það skólahjerað eða fræðsluhjerað, sem þessi eða hinn kennari starfar í, eigi að greiða honum þessa uppbót. Gæti það orðið til þess, að gömlum og reyndum kennurum yrði hafnað, en yngri kennarar látnir sitja fyrir. Væri jafnvel ekki óhugsandi, að reynt yrði að losna við eldri kennarana, þegar aldursuppbót þeirra væri orðin svo há, að sveitum eða bæjum þætti það of þung byrði. Skyti þá nokkuð skökku við, þar sem aldursuppbótin á einmitt að vera viðurkenning fyrir vel unnið starf. Verður það líka að álítast skaði fyrir fræðsluna, ef reynsla kennaranna er annars að nokkru metin. Og allir vita það, að menn, sem komnir eru yfir æskuárin og hafa þungt heimili, þurfa meira sjer til lífsviðurværis en ungir menn og einhleypir.

Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) ljet það í ljós, að honum fyndist frv. hv. fjvn. koma aftan að fræðslulögunum, þó að lítið bæri á. En verði brtt. okkar við frv. samþyktar, þá álít jeg, að frv. verði ekki barnafræðslunni skaðlegt.

Fræðslulögin eru eldri en lögin um skipun kennara. Hin fyrri eru frá 1907, hin síðari frá 1919. Eftir fræðslulögunum höfðu skóla- og fræðslunefndir alveg í hendi sjer skipun kennara og fult vald til þess að segja þeim upp. Og þrátt fyrir þetta voru uppfylt skilyrði um lögskipaða fræðslu, engu síður en nú. Jeg sje því ekki, að ákvæðið um að skóla- og fræðslunefndir geti losnað við óþarfa kennara sje neitt hættulegt.

Aftur á móti ætla jeg ekki að halda fram brtt. hv. fjvn. Jeg segi það eins og er, að mjer líkar hún ekki allskostar. Mjer finst of langt farið, þar sem kveðið er svo á, að stjórnaráðið sje skyldugt til að segja upp kennurum, ef óskað er, og fræðslu- eða skólanefndir telji þá óþarfa. Jeg vildi, að gengið væri algerlega úr skugga um, að þeir væru óþarfir, áður en þeim væri sagt upp. Það er ekki nóg að telja þá óþarfa. Það þarf að vera víst, að þeir sjeu það. Ætla jeg svo að láta hjer staðar numið um þetta mál.