28.03.1924
Neðri deild: 35. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í C-deild Alþingistíðinda. (2072)

91. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Magnús Jónsson:

Það lítur helst út fyrir, að þeir, sem leiddu þetta í lög 1919, hafi verið í meira lagi skammsýnir og ekki haft margar rjettar hugsanir í sínu höfði. Það er rjett hjá hv. 1. þm. N.-M. (HStef), að þingið hefir ákveðið kennurum allrífleg laun og dýrtíðaruppbót. En þingið fann, að það gat ekki verið rjett að skella þessum útgjöldum yfir á sveitirnar, og ríkissjóður varð að taka á sig mikil útgjöld til þess að halda þessu kerfi uppi. Það fellur um sjálft sig, sem hv. 2. þm. Eyf. (BSt) vitnaði í, er verið hafði áður en launalögin voru ákveðin. Það er eigi sambærilegt samkv. lögunum frá 1907 og eftir að þingið sjálft hefir ákveðið launin, því að alt fyrirkomulag var þá annað.

Ef þessu er velt yfir á sveitarfjelögin, liggur undanþága 3. gr. frv. beint við, ef sveitirnar treysta sjer ekki að rísa undir þessu. Hæstv. atvrh. (MG) sagði, að í frv. væri reistur múr um það, að sveitirnar varpi þessu eigi af sjer. En hver ræður hjer? Með undanþágunni geta menn kastað þessu af sjer, með því að slá því föstu, að hægt sje að sjá fyrir fræðslu á annan hátt. Skólanefndunum er hjer með bent til þess, að þær skuli færa sjer þessa undanþágu vel í nyt, og þeim er gefið vald til þess, Ef lögin væru undanþágulaus, mætti segja, að skólanefndirnar væru bundnar. En eftir því sem frá þessu er gengið í frv., eru þetta hrein fjörráð við gildandi fræðslukerfi.

Jeg get ekki fallist á, að þetta sje ekki mentamál. Ákvæðin um laun kennaranna eru auðvitað ekkert sjerlegt mentamál, en hitt, hvort hjer sje verið að veitast að fræðslumálakerfinu eða ekki, er algert mentamál. Þetta mál er ekkert fjárlagamál, og þó það sje aðalstarf fjvn. að ráðstafa fje, er hún jafnan bundin af lögum um hver einstök atriði; vilji hún fá grundvelli laganna breytt, verður hún að snúa sjer til annara nefnda. Fjvn. á aðeins að fást við fjármálin, en það væri illur siður að leggja út á þessa braut, án þess að spyrja aðrar nefndir til ráða. En leiðast er, að þessu skuli öllu slegið upp í grímudansleik. Mjer þykir því gott, er einn leikendanna hefir þegar kastað grímunni, að nokkru leyti, en það var hv. þm. Str. (TrÞ). Hann sagði, að tilgangurinn með þessu frv. væri sá að koma sem mestum útgjöldum á bæjarfjelögin. Þetta er því aðeins til að koma gjöldunum á bæina. Reykjavíkurbær kostar nú á annað hundrað þús. kr. til kenslunnar. Það má vel vera, að eitthvað sje kent þar, sem ekki er nauðsynlegt til að fullnægja fræðslulögunum, en það kemur málinu ekkert við, þó að skólanefndir bæjanna tengi ýmsa aðra kenslu við sjálfa barnafræðsluna af „praktiskum“ ástæðum, enda eru kröfur fræðslulaganna lágmarkskröfur.

Það er líkt með þetta frv. sem annað frv., sem kom fyrir nokkrum árum frá sömu nefnd (fjvn). En þá bar nefndarmönnum ekki saman um tilgang frv. Hv. þm. Dala. (BJ) taldi engan sparnað að því, heldur væri frv. til þess eins að bæta fræðsluna, en hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ) taldi það hreint sparnaðarmál. Nú leggja sumir aðaláhersluna á 3. gr., og undanþáguna megi ekki missa, en aðrir leggja aðaláherslu á að færa gjaldabyrðina til. En jeg held, að best sje að vita í hverju máli, út í hvað er stefnt með því. Og um þetta mál er það að segja, að það getur enginn sparnaður að því orðið, nema hann sje að finna í 3. gr., að velta byrðinni á sveitafjelögin og bæina og láta þá svo losa sig við kennarana með 4 mánaða fyrirvara.