12.04.1924
Neðri deild: 49. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í C-deild Alþingistíðinda. (2123)
70. mál, ritsíma og talsímakerfi
Jón Sigurðsson:
Jeg á lítilsháttar viðaukatill. við frv. þetta.
Um almennar athugasemdir nefndarinnar, sem ástæða væri til að drepa á, get jeg slept að tala. Hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ) hefir svarað þeim rækilega. En í nál. er talað um, að nefndin sje því mótfallin, að línur sjeu lagðar á öðrum svæðum en landsímastjóri hefir rannsakað. Jeg vil þá spyrja, hvort landsímastjóri hefir rannsakað línuna að Núpi, því ef svo er ekki, þá sje jeg ekki ástæðu til að taka hana sjerstaklega undan.
En viðvíkjandi þessari litlu línu, sem jeg legg til, að lögð verði, vil jeg taka það fram, að þar getur ekki verið um neina aðra leið að ræða.
Ætlast er til að hún verði lögð frá aðallinunni yfir Laxárdalsheiði, í afskekta sveit, Laxárdalinn, sem liggur inn af Skaganum, sem er svo útúrskotin, að þegar heiðin er ófær vegna fannfergi, verður aðeins farið á sjó, en það er líka torsótt. Og óskað er eftir síma af því, að hann er í mörgum tilfellum ómissandi, t. d. þegar um læknishjálp, eða þó ekki sje nema um læknisráð, er að ræða. Línan verður ekki lengri en 10–12 km., og ætlast jeg til, að hún verði lögð að efsta bænum í sveitinni, Skíðastöðum, sem er stórt og myndarlegt heimili, eða með öðrum orðum, að henni verði aðeins komið yfir heiðina. Ef til vill finnst mönnum einkennilegt, að miðað sje við, að línan sje lögð frá Heiði. Þar er engin stöð nú sem stendur, en Heiði liggur rjett undir Kolugafjalli, og virðist hentugra að hafa þar eftirlitsstöð og skiftistöð, heldur en þurfa altaf að sækja menn niður á Sauðárkrók.
Nefndin er meðmælt síma að Núpi, enda er þar skólaheimili, sem hefði þörf á honum, og sveitin nyti góðs af. Þar eru líka hreppstjóri og prestur búsettir. (HK: Og fleiri heiðursmenn).