15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í C-deild Alþingistíðinda. (2132)

70. mál, ritsíma og talsímakerfi

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Hæstv. atvrh. (MG) hefir sýnt fram á það, að nefnd getur af breyttum ástæðum orðið að breyta afstöðu til mála, eins og fjvn. gerði nú nýverið og allar nefndir hafa oftlega gert, og þarf jeg ekki að fara meir inn á það. Annars á jeg bágt með að skilja, hve áfjáðir sumir hv. þm. eru að fá þessar símalínur samþ. nú; höfuðgamanið getur vart orðið annað en að sjá þær á pappírnum, því eins og þegar hefir verið tekið fram, þá getur engin af þessum línum orðið lögð á næsta ári. Meðal annars skortir undirbúning í hjeruðunum, því þau verða að leggja til mestan skerf kostnaðarins.

Að því er snertir línuna að Núpi, skal jeg endurtaka það, að nefndin hefði vissulega lagt til, að hún yrði samþ. nú, þar sem aðeins er um eina leið að ræða að því er línustæði snertir, en þar sem nefndin telur fullvíst, að með því að samþ. þessa línu komi fjölda margar aðrar línur, sem nefndin að svo stöddu ekki vill samþykkja að lögleiddar verði, þá verður hún nú af þeim ástæðum að leggjast móti þeirri línu, enda engu spilt um lagningu á línunni, þar sem fullvíst er, að hún verður alls ekki lögð á næstu árum. Hinsvegar ætti hv. flm. að vera fróun í því að hafa skýlaust loforð um fylgi við málið, þegar að því kemur, að til framkvæmda sje undið.