15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í C-deild Alþingistíðinda. (2137)
70. mál, ritsíma og talsímakerfi
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vil spyrja hv. þm. Borgf., hvort hann geti lagt fram umsögn Lunddælinga um það, hvort stöðin eigi að vera á Hóli fremur en Lundi. Mjer er ekki kunnugt um neina slíka umsögn. Og eg er viss um, að þeir vilja heldur, að hún sje á Lundi, sem í þúsund ár hefir verið miðstöð dalsins.