15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í C-deild Alþingistíðinda. (2139)
70. mál, ritsíma og talsímakerfi
Jón Auðunn Jónsson:
Ummæli háttv. þm. Str. sanna það, að ekki er vert fyrir hv. þdm. að samþykkja nýjar línur, nema fram hafi farið rannsókn á símasvæðinu, svo trygging sje fyrir því, að öllu sje hagað sem best og notin fyrir almenning sjeu sem mest af línunum, um leið og gætt er allrar hagsýni um kostnað við lagning símanna. Og þó jeg sje kunnugur staðháttum á Vesturlandi, þá er ekki svo um alla. Og mjer er það ljóst, að ef þetta frv. nær fram að ganga í þessari hv. deild, þá mun það taka miklum breytingum hjá hv. Ed. og verða þannig þrætuepli milli deildanna. Og það er þó sannarlega annað þarfara að gera með tíma þingsins en vera nú að karpa um símalínur, sem ekki verða bygðar fyr en eftir mörg ár; þar við bætist, að víða er brýnni þörf á símum en þeim, sem hjer er um að ræða.
Háttv. flm. (ÁÁ) sagði, að það stæði sjerstaklega á um símann að Núpi, því það línustæði þyrfti ekkert að athuga, það væri sjálfgefið. En landsímastjóri hefir nú sagt, að hann sæi heldur enga örðugleika á því að leggja línurnar, sem um getur á þskj. 360 og 387. En þetta þarf þó að athuga, bæði hvað lagningar kosta, og eins getur verið um fleiri bæi að ræða, þar sem komið getur til mála, að stöðvarnar sjeu settar. Þetta á þó ekki við um símann að Núpi. Jeg vænti því, að hv. þdm. samþ. till meirihl. samgmn. í þessu máli.