22.04.1924
Neðri deild: 53. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í C-deild Alþingistíðinda. (2172)

96. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Sigurjón Jónsson:

Jeg vil með fáum orðum gera grein fyrir því, hversvegna við, sem erum hjer í meirihl. í sjútvn., gátum ekki gengið inn á það að veita þessu frv. fylgi. Það hefir ekki komið eins skýrt fram hjá hv. frsm. (ÁF) og hv. þm. Ak. eins og skyldi.

Ástæðan til þess er sú, að með þessu frv. er verið að gera upp á milli innlendra og erlendra skipstjóra, setja önnur ákvæði um þá heldur en gilda gagnvart útlendum skipstjórum. Það er að misnota vald, ef fara á að beita alt öðrum refsiákvæðum gagnvart innlendum en útlendum mönnum. Hjer er að vísu talað um að taka skipstjórnarrjettinn undantekningarlaust af þeim skipstjórum, sem gerast sekir við þessi lög. En þessu verður að breyta og setja „innlendum skipstjórum“ í staðinn. Því við getum ekki tekið þetta leyfi af útlendingum. Við getum sett íslenskan skipstjóra í fangelsi, en jeg efast um að við komum til að beita því ákvæði gagnvart útlendum skipstjórum. Það var þetta, sem fyrst og fremst vakti fyrir okkur í meirihl. sjútvn. Með frv. þessu virðist okkur vera gengið inn á þá braut að láta innlenda skipstjóra eiga við strangari reglur að búa heldur en hina útlendu stjettarbræður þeirra. Jeg veit það, að hv. flm. (PO) og hv. þm. Barð. vita, að okkur þykir ekki síður sárt en öðrum að geta ekki varið landhelgina gegn ágangi togaranna. En slíkt frv. sem þetta nær áreiðanlega ekki tilgangi sínum. Ef sett eru svo ströng ákvæði, að atvinnu- og ærumissir liggi við, ef brotið er, þá má búast við því, að fremur verði sjeð í gegnum fingur við lögbrjótana en áður. Hjer á þessu þingi hafa sektarákvæðin verið skerpt. Og jeg álít, að ekkert vinnist frekar við það, að samþykkja þetta frv. í tilbót.