16.04.1924
Efri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (218)

1. mál, fjárlög 1925

Jónas Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að fara fáeinum orðum um nokkra einstaka liði í brtt. hv. fjvn. Fyrst er það þá 6. brtt., um að lækka laun aðstoðarlæknisins á Ísafirði úr 1800 kr. í 1500. Nú liggur fyrir frv. um það að leggja þetta embætti niður, þar sem landlæknir hefir gefið upp, að þessi maður hefði þarna ekkert að gera og hefði ekki haft um mörg ár. Lít jeg svo á, að hv. fjvn. hefði að ósekju mátt ganga lengra en hún gerði.

Jeg er ekki sammála hæstv. forsrh. um 8. brtt., við 12. gr. 13 c. Mjer virðist, að þeir, sem standa að byggingu læknishússins í Borgarfirði, hafi farið mjög skynsamlega að með því að velja stað þar, sem reksturinn yrði fremur ódýr. Allir vita, að hitakostnaður veldur miklu um dýrleika slíkra stofnana. Borgarfjarðarhjerað á forgangsrjett til styrks vegna þess, hve málið er vel undirbúið og af því, að hjeraðsbúar hafa sýnt svo mikla fórnfýsi í að leggja fje til fyrirtækisins.

Jeg vil mjög eindregið fylgja styrk til Steindórs Björnssonar. Nokkrir hafa álitið hann ranglátan, en jeg mótmæli því. Þegar launalögin verða endurskoðuð, hlýtur það að koma til greina, hvort menn hafa þunga fjölskyldu eða ekki. Í sjálfu sjer er engin sanngirni í því, sem nú á sjer stað, t. d. að kennarar við barnaskólann hjer hafi allir jöfn laun, fjölskyldumenn og einhleypt fólk. Þjóðfjelaginu ber miklu meiri skylda til að styrkja fjölskyldumenn. Jeg vil mæla með brtt. sem fordæmi.

Næst vil jeg víkja að till. um að festa ungan mann, Kristin Ármannsson, við mentaskólann. Hefi jeg gott eitt um manninn sjálfan að segja. Hitt er vafasamt, hvort rjett er að stofna embættið nú. En þar sem um dugandi mann er að ræða, mun jeg greiða atkvæði með till., úr því sem komið er.

Hæstv. forsrh. mintist á, að hann sæi ekki ástæðu til að minka styrk til tímakenslu í mentaskólanum. Kemur hjer fram það, sem jeg mintist á í sameinuðu þingi, að skólinn er altaf að stækka, en þing og stjórn gera alls ekkert til að stöðva sig á þessari hálku; miklu frekar hið gagnstæða. Aftur á móti er feldur niður styrkur til að gefa út kenslubækur handa alþýðuskólum. En hver slík bók hjálpar mörg þúsund heimilum. Þetta er ranglátur sparnaður. Jeg vil beina því til hæstv. stjórnar, að hún reyni að finna ráð svo fljótt sem, unt er til þess að stilla í hóf með kostnað við mentaskólann.

Mjer þykir leitt, að hv. 1. landsk. þm. (SE) er ekki viðstaddur, af því jeg vildi segja örfá orð út af ummælum hans um styrkinn til samningar orðabókar, sem hefir verið hækkaður. Því var haldið fram, að maður þessi hefði gefið upp embætti sitt í sveit, að hann hefði verið dreginn úr því eins og sauður úr rjett. Jeg vil spyrja: Hver dró hann? — Mjer dettur ekki í hug, að nokkur hv. þm. haldi í raun og veru, að það verði nokkurntíma nokkurt gagn að þessari fyrirhuguðu orðabók. Þeir málfræðingar, sem jeg hefi borið þetta undir, álíta þetta verk einskisvirði. Það er bitlingur og ekkert annað.

Jeg hefi hugsað mjer að bera fram þingsályktunartill. síðar, um að stjórnin láti hæfa málfræðinga rannsaka þetta mál fyrir næsta þing, hvers virði þessi vinna er. En jeg fyrir mitt leyti lít svo á, að þessi orðabókarsamning sje frá upphafi ekkert annað en bitlingur. Sá, sem byrjaði á henni, gaf út eitt hefti. Prófessor einn við háskólann leit yfir það hefti í jólafríinu og fann fyrirhafnarlítið, að vanta myndu um 1000 orð í það hefti. Þannig er frágangurinn. Má kalla, að þetta sje að gera gys að vísindunum. Laun þessa manns eru einskonar eftirlaun og spurningin er, hvort þingið telur sig bundið að greiða þau.

Það er orðinn vani á hverju þingi að ræða meira og minna um Árna Th. Pjetursson. Hv. 1. landsk. þm. (SE) gaf mjer tilefni til að minnast á hann nú. Er jeg sammála hv. fjvn. þessarar deildar um, að styrkurinn ætti að vera lokastyrkur, ef hann þá á að greiðast. Það nær engri átt að kaupa menn út úr embættum, sem ekki eru færir að gegna þeim sökum ofdrykkju; skoða síðan þingið bundið að launa þessa menn áfram, án tillits til þess, að þeir sjálfir hafa velt sjer úr embætti með hegðun sinni. Árnamálið verður að skoða sem prófstein á það, hvort þingið vill gera þeim jafnt til, sem standa vel í stöðu sinni, og þeim, sem eru óhæfir.

Mestu máli skiftir um 38. brtt., að síðari málsgrein 23. gr. falli niður. Það eru þessi orð, sem Nd. setti inn í:

„Bankastjórninni er ennfremur heimilt að greiða til veðdeildarinnar af öðru fje bankans tveggja ára vexti og afborganir af veðdeildarláni til Skeiðaáveitufjelagsins.“

Saga þessa máls er á þá leið, að fyrir 8 árum rjeðust bændur á Skeiðum í hina fyrstu stóru áveitu hjer á landi. Málið var undirbúið og rannsakað, fyrst af útlendum verkfræðingi, síðan innlendum sjerfræðingi, Sigurði Thoroddsen, síðan af hæstv. núverandi fjrh., Jóni Þorlákssyni. Voru gerðar mælingar og áætlanir af þessum tveimur sjerfræðingum landsins. Áætlunin nam rúmlega 100 þús. kr. En hver varð niðurstaðan í framkvæmdinni? Verkið kostaði 430 þús. Enginn hefði dottið í hug að leggja út í fyrirtækið, hefðu sjerfræðingar landsins sagt hið sanna um kostnaðinn fyrir fram. Það sorglegasta í þessu máli er það, að óhöppin við verk þetta eru að kenna vítaverðri framkomu verkfræðinganna. Er nokkur meining að skoða landið óbundið um þetta mál? Hjer hefir heil sveit lagt út í þjóð þrifafyrirtæki, byggjandi traust sitt á sjerfræðingum ríkisins. Áætlun þeirra reynist röng, — kostnaðurinn ferfaldast rúmlega. Stórfeld vanræksla er á undirbúningi málsins. Hver verður afleiðing þessa? Sú, að ef sveit þessari verður ekki rjett hjálparhönd, hljóta bændurnir að flosna upp af jörðum sínum. Í stað þess að fyrirtækið skyldi verða blessun fyrir hjeraðið, hlýtur að reka að því, verði lögmáli laganna fylgt, að hver einasti bóndi á Skeiðum verður að flýja jörð sína. Í þessari till., sem var fram borin af hv. 2. þm. Árn. (JörB), var ekki farið fram á annað en að Landsbankanum, sem hefir lánað mest af þessu fje, veittist heimild til að gefa bændum eftir vexti og afborganir af lánunum í tvö ár, meðan þeir væru að auka bústofn sinn. Menn kalla það óviðkunnanlegt að skipa bankanum fyrir, en það er alls ekki gert með þessari heimild. En jeg býst við, að bankastjórnin noti heimildina, — henni verði ekki ljúft að ganga að bændunum.

Til þess að gefa mönnum nokkra hugfró, vil jeg benda á það, að bæði Landsbankinn og Íslandsbanki hafa orðið að gefa eftir stórar upphæðir — líklega miljónir — til óheppinna útvegsfyrirtækja, t. d. togara. Má líkja Skeiðaáveitunni við togarakaup á árunum 1920–21. Og jeg sje ekkert eftir Landsbankanum, þó að hann þurfi að hjálpa einu fyrirtæki í sveit, sem hugsanlegt er, að beri sig ekki, þegar hann er bundinn við fjölda dýrari fyrirtækja fyrir hinn atvinnuveginn og miðar eins og Íslandsbanki vextina við óhöpp útvegsins. Jeg skil nú ekki, að háttv. nefnd geti haldið tillögu sinni til streitu, þegar hún hefir heyrt, hvernig í þessu máli liggur. Trúi jeg því ekki öðru en hún taki till. aftur og athugi málið betur.

Þá vil jeg leyfa mjer að minnast örfáum orðum á þær einstöku brtt., sem jeg á við þessa umr. fjárlaganna, og skal jeg þá fyrst minnast á þá síðustu, en það er XIII. brtt. á þskj. 394, um að Ólafi Hvanndal myndamótara verði veittur 3 ára greiðslufrestur á rentum og afborgunum af eftirstöðvum af viðlagasjóðsláni, að upphæð kr. 4334. Er jeg þakklátur hv. fjvn. fyrir, að hún ætlar að styðja tillögu þessa, með lítilli breytingu. Þarf jeg því ekki að fara um hana mörgum orðum, en vil aðeins geta þess, að maður þessi er sá eini á landinu, sem hefir áhöld til að gera prentmyndir. En svo lítinn arð gefur þessi atvinnugrein, að það er einungis fyrir áhuga mannsins á starfinu að hann er ekki fyrir löngu farinn að gefa sig annaðhvort að sjóróðrum eða búskap, eða öðru því starfi, sem betri arð gefur. Eins og kunnugt er, er myndagerð þessi til mikilla hagsbóta fyrir alla þá, er gefa út blöð eða bækur og á myndum þurfa að halda til slíkra hluta.

Jeg hefi nýlega átt kost á að athuga myndir þessar, og sje jeg ekki annað en þær sjeu eins góðar og betri en erlendar myndir af þessu tægi. En vitanlega hafa þær þótt dýrar, og er ekki nema eðlilegt, að svo sje, þar sem jafnlítill markaðar er fyrir slíkar myndir sem hjer. Vonar nú maður þessi, að ef hann fái 3 ára greiðslufrest á láni þessu, þá muni hagur hans batna svo á þeim tíma, að hann yrði þá orðinn færari um að borga eftirstöðvar þessar.

Þá á jeg brtt. á þskj. 394,XII, um 500 kr. ellistyrk til Þórdísar júbil-ljósmóður. Kona þessi mun vera ein af þeim ljósmæðrum, sem einna best hefir hugsað um starf sitt af ljósmæðrum þessa lands og einna best kunnandi í starfi sínu af ljósmæðrum þeim, sem lært hafa hjer heima. Mestan hluta æfi sinnar hefir hún haft að launum frá 40 til 60 kr. á ári, og eru slík laun ekki mikil fyrir það mikla starf, sem hún hefir unnið. Hún hefir starfað með þremur læknum, þeim Guðm. Guðmundssyni lækni í Stykkishólmi, Ásgeiri Blöndal og Gísla Pjeturssyni lækni á Eyrarbakka, og allir gefa þeir henni hin sömu ágætu meðmæli. Nú er hún hnigin mjög á efri aldur, biluð að heilsu og svo fátæk, að hún hefir ekki efni á að láta af starfi sínu, nema því aðeins, að hún fái annarsstaðar að einhvern lífeyri. Jeg held nú, að það sje líkt ástatt um þessa konu og Hítardalshjónin, að rjett sje að láta hana fá lífeyri. Að minsta kosti er það rjettara en að láta Árna Theódór Pjetursson fá heiðurslaun, mann, sem hefir brotið af sjer hylli sinna yfirmanna og er til minkunar fyrir sína stjett. (SE: Þar er um loforð að ræða). Um loforð! Mjer er ekki kunnugt um, að þar liggi neitt loforð fyrir. Að minsta kosti hefi jeg engu lofað, því að jeg beitti mjer á móti þessu í fyrra, og er því ekki hægt að saka mig um ósamkvæmni.

Annars vil jeg, að vel sje gert við dugandi menn, hvort heldur það eru karlar eða konur. Þá á að launa vel, hvort það er með ellistyrk eða á annan haft, en dragast aftur á móti ekki með drykkjuræfla og liðljettinga.

Jeg á hjer tvær brtt. ásamt hv. þm. Vestm. (JJós), en um þær skal jeg ekki tala nú, því að hann mun tala fyrir þeim. Jeg ætla heldur ekki að svo stöddu að gera athugasemdir við brtt. hv. þm. Snæf. (HSteins). Læt það bíða, þar til hann hefir talað fyrir þeim.