14.04.1924
Efri deild: 48. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í C-deild Alþingistíðinda. (2237)
102. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. l. hl. (Ingvar Pálmason):
Frá fyrsta hluta fjhn. er framsaga í þessu máli óþörf. Fyrst og fremst af því, að hv. 5. landsk. (JJ), sem hafði framsögu í næsta máli á undan, um seðlaútgáfurjett ríkisins, hefir tekið þetta mál til meðferðar um leið. Vil jeg ekki þreyta hv. deild á endurtekningum á hans ræðu. En jeg vil benda á það, að þó að við tveir nefndarmenn teljum miklar líkur til, að málið verði ekki útrætt á þessu þingi, álítum við það brýna þörf, að málið komi fyrir báðar deildir. Það hefir ekki svo lítið að segja, að hæstv. stjórn gefist tækifæri til að athuga þessi mál sem best, og að hún hafi fyrir sjer allar upplýsingar, sem fram koma í þinginu, svo hún geti tekið endanlega ákvörðun um málið og lagt fyrir næsta þing. Jeg tel það galla, að ekki er tími til fyrir hv. þm. að taka málið til rækilegrar athugunar og skýra afstöðu og stefnu sína í málinu. Jeg hefði talið það mikinn styrk fyrir stjórnina, ekki síst, þegar komið hefir til tals að leggja málið undir úrskurð útlendra fjármálamanna. Skildist mjer þannig á hv. 2. þm. G.-K. (BK), að stjórnin ætti að byggja á þeim úrskurði frv. það, sem hún legði fyrir næsta þing. Jeg er ekki bankafróður maður, og jeg veit, að með þessu lagi mætti fá miklu meira bankavit en frá mjer og mínum líkum. En þar sem þingið á að hafa síðasta orðið, og gert er ráð fyrir, að umsögn þess verði þyngst á metunum og ráði úrslitum, tel jeg illa farið, að hv. þm. hafi ekki átt kost á að láta uppi álit sitt einmitt á þessu þingi, þó að tíminn til næsta þings yrði svo notaður til frekari undirbúnings á málinu.
Að öðru leyti hefi jeg ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið, þar sem hv. 5. landsk. (JJ) hefir gert grein fyrir afstöðu okkar að mestu leyti; en það, sem jeg hefi tekið fram, er einnig eitt aðalatriðið, sem gerir það að verkum, að við höfum ekki getað orðið hinum öðrum hlutum nefndarinnar samferða um þetta mál, að vísa því umræðulaust til stjórnarinnar.