16.04.1924
Efri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

1. mál, fjárlög 1925

Guðmundur Ólafsson:

Jeg skal ekki vera langorður. Það hefir óneitanlega mátt vera hv. fjvn. mikið gleðiefni alt það lof, sem hún hefir hlotið fyrir starf sitt að þessu sinni. Hefir hún aldrei, að jeg man eftir, fengið jafnmikið lof og nú. Má það þó heita kynlegt, þar sem bersýnilega er þó um stefnubreyting hjá hv. nefnd að ræða, í þá átt að spara miklu meira en áður hefir verið gert.

Það, sem kom mjer til þess að standa upp, var ekki frekar en vant er, að jeg ætti hjer brtt., er snerti kjördæmi mitt, heldur það, að jeg á hjer brtt. með 2 hv. þm., sem sje hv. 6. landsk. þm. (IHB) og hv. 1. þm. Rang. (EP), á þskj. 394, X, við 16. gr. 18. Þegar jeg og hv. 6. landsk. lögðum það til í fjvn., að Bandalagi kvenna yrði veittur styrkur, þá vildum við binda hann við það, að hann yrði jafnhár og styrkurinn til Sambands norðlenskra kvenna, eða 500 kr. En er komið var með brtt. til mín, hafði styrksupphæðin verið sett 800 kr. Er jeg sá, að svo hafði verið gert, þvert á móti því, sem jeg hafði ætlast til, setti jeg 500 kr. til vara, sem er sú upphæð, er jeg get greitt atkvæði; finst sanngjarnt að báðum þessum fjelögum sje ætlaður jafn styrkur.

Gerði jeg það ekki af því, að jeg áliti 800 kr. of háan styrk; en vegna þess, að hv. Nd. vildi ekki láta fjelagið hafa neitt, þá sá jeg því síður ástæðu til að gera því hærra undir höfði en fjelaginu fyrir norðan. — Hv. 6. landsk. þm. talaði annars svo vel fyrir brtt., að jeg hefi engu þar við að bæta. Eins og hv. deildarmenn hafa heyrt, þá hefir þetta fjelag unnið ótrúlega mikið og þarft starf, enda býst jeg við, að hv. deild láti ekki fjárlagafrv. fara svo frá sjer, að því verði ekki veittur einhver styrkur.

Þá vildi jeg minnast nokkrum orðum á eina brtt. hv. fjvn. á þskj. 376, sem sje 10. brtt., við 13. gr., um 300 kr. styrk til dragferju á Blöndu. Vildi jeg aðeins geta þess, að þó að í brtt. standi „nýr liður“, þá ber þó ekki að skilja það svo, að þessi fjárveiting sje alveg ný, því að hún var veitt yfirstandandi ár, en stendur í fjáraukalögum. Jeg varð svo seinn fyrir með þessa styrkbeiðni í fyrra, að fjárveitingin komst ekki inn í fjárlögin, og var hún því sett í fjáraukalögin. Dragferjan á Skjálfandafljóti fjekk þá fyrst styrk, og þótti mjer og hv. deild þá sjálfsagt, að veittur væri jafnhár styrkur til dragferjunnar á Blöndu, enda er enginn vafi á því, að það er eins mikil þörf á dragferju á henni og á Skjálfandafljóti. Að vísu er brú á Blöndu, en hún er, eins og menn vita, niður við sjó, og er það mjög mikill krókur fyrir fjölda manna að fara þangað til þess að komast yfir ána. Er því mikil umferð yfir hana á dragferjunni. Býst jeg við, að hv. deildarmenn hafi ekki á móti þessum styrk og að þeir sjái það, að hjer er ekki nema um sanngjarna kröfu að ræða. Finst mjer það æðikynlegt, að hv. fjvn. Nd. skyldi ekki taka þennan styrk upp, því að í nefndinni voru þó menn, sem voru öllum aðstæðum kunnir. (Atvrh. MG: Það lá engin beiðni fyrir um það). Jú, — en meiri hluti nefndarinnar stóð á móti því, að hún væri tekin upp.

Jeg skal geta þess, að jeg er ósamþykkur einni brtt. hv. fjvn., sem sje 31. brtt., við 16. gr. 17, um heimilisiðnað. Vil jeg í því efni halda mjer við niðurstöðu hv. Nd„ að af styrknum sjeu greiddar 2000 kr. til ungfrú Halldóru Bjarnadóttur. Býst jeg við, að allir hljóti að viðurkenna, að hún hefir allra manna mest unnið að framgangi þessa mikilvæga máls, og er því vel makleg þessa styrks.

Þá vildi jeg minnast nokkrum orðum á brtt. þær, er hv. 1. þm. Rang. (EP) talaði fyrir. Hann gerði það ítarlega og af meiri móð en nokkur annar hv. þm. fyrir till. sínum, en mjer fanst hann komast að fremur slæmri niðurstöðu. Eftir því, sem mjer skildist á hv. þm., þá hefir vegamálastjóri lagt það til, að styrkurinn til flutningabrauta yrði hækkaður um 25 þús. kr. vegna Holtavegarins. En eftir því, sem hv. þm. upplýsti, þá hljóta þessi 25 þús. að duga svo að segja ekkert; því að hv. þm. sagði, að vegur á 4 km. kafla hafi kostað 90 þús. kr., en hjer er um 12 km. að ræða, sem þarf að endurbyggja, svo að menn geta sjeð, að 25 þús. hrökkva skamt. Jeg get ekki að því gert, að mjer ógnar slíkur kostnaður, og þó að þessum 25 þús. yrði bætt við þær 75 þús. kr., sem upphæð þessi er áætluð nú, nægði það aðeins til þess að leggja 1/3 vegarins, þá er jeg í vafa um, hvort jeg yrði með því eða móti, að jafndýr vegur yrði lagður á þessum tíma. (EP: Það er ætlast til, að teknar sjeu 50 þús. af þessum 75 þús. til flutningabrauta til þessa vegar). Það er þá hætt við, að þá verði rýrt viðhaldið á öðrum brautum. Jeg skal endurtaka það, að jeg er mjög óánægður með þessa till., meðal annars af því, að þó að vegir ef til vill þurfi að vera dýrari í þessum hjeruðum en öðrum hjeruðum landsins, þá er tíminn til slíkra vegagerða mjög óhentugur nú. En jeg skal játa það, að jeg tel nauðsynlegt að gera svo við veginn austur, að bílar geti farið um hann.