14.03.1924
Neðri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í C-deild Alþingistíðinda. (2267)
39. mál, kosningar til Alþingis
Jörundur Brynjólfsson:
Eins og nál. á þskj. 102 ber með sjer hefir mig greint á við hv. meirihl. um tvö aðalatriði.
Fyrra atriðið lýtur að því, hvernig atkvæðaseðill eigi að líta út til þess að vera tekinn gildur. Eins og segir í nál. hefir meirihl. í því efni vikið að því orðalagi, sem er í kosningalögum Reykjavíkur, þ. e. lögum nr. 11, 18. maí 1920. Þar er svo að orði komist, að kjörseðill verði ógildur, ef kjósandi hefir sett kross við fleiri en eitt nafn, skrifað nafn sitt á seðilinn, sett á hann strik eða rispu eða önnur slík einkenni, er „geti gert seðilinn þekkjanlegan.“ En í 36. gr. almennu kosningalaganna er komist ákveðnar að orði um þetta, og þar sem greinin er mjög stutt, leyfi jeg mjer að lesa hana upp, með leyfi hæstv. forseta. Greinin hljóðar svo:
„Engin merki má á seðilinn gera önnur en að stimpla yfir auða reitinn, hvorki rispu nje blýantsstrik nje önnur slík einkenni, ergert geta seðilinn þekkjanlegan frá hinum seðlunum. Finnist slíkt merki á seðli við atkvæðatalninguna á eftir, eða ef stimplað er út fyrir ytri brún svarta borðans, er slíkur seðill ógildur.“
Eins og heyra má af þessu orðalagi, þá er ætlast til þess, samkv. kosningalögunum, að allir seðlar, sem bera einhver einkenni, umfram stimpilinn, sjeu gerðir ógildir. Fellur mjer vel, að svo skýrt sje tekinn allur vafi af því, hvernig gildur seðill eigi að líta út, og sje jeg síst ástæðu til að gerð sje breyting í þá átt, að seðill geti verið þannig úr garði gerður, að álitamál kunni að vera, hvort gildur skuli teljast eða ekki. Því altaf geta orðið skiftar skoðanir um, hvort það, sem umfram er stimpilfarið, sje gert til að gera seðilinn þekkjanlegan frá öðrum eða ekki. Og þeir, sem ekki geta greitt atkvæði eftir lögum þessum, verða að gjalda þess í því, að atkvæði þeirra verði gert ógilt. Jeg mæli því eindregið með því, að þetta ákvæði kosningalaganna fái að standa óbreytt.
Jeg vil svo stuttlega víkja að öðru atriðinu, sem jeg var ekki ásáttur hv. meirihl. um, þ. e. um gildi seðla í tvímenningskjördæmum. Hingað til hefir það verið föst regla, að þeir seðlar væru gerðir ógildir, sem aðeins einn væri kosinn á, þegar tvo átti að kjósa. Þessu vill hv. meirihl. allshn. breyta þannig, að kjósandi sje ekki skyldur til að kjósa nema einn. Þetta tel jeg mjög óheppilega tillögu. Fyrst og fremst er með því raskað algildri venju, því þótt kosningalögin segi ekki beinlínis, að tvo skuli kjósa, þá veit jeg ekki til, að kjörstjórnir nokkursstaðar á landinu hafi skilið þetta ákvæði nema á einn veg, þann, að sá seðill væri ógildur, þegar einn væri kosinn, en tvo ætti að velja, alveg eins og að sá seðill væri ógildur, þegar fleiri væru kosnir en tveir, ef kjósa ætti aðeins tvo. Getur því ekki leikið neinn vafi á í þessu efni, og mun jeg greiða brtt. á þskj. 128 atkvæði mitt, svo þetta sje skýrt hjer eftir.
Annars má benda á það, að ef þessi brtt. nefndarinnar yrði samþykt, þá gæti það haft þau áhrif, að maður með sáralitlu fylgi yrði kosinn, jafnvel sá, sem einna minst fylgið hefir, því svo gæti á staðið í kjördæminu, að einn frambjóðandinn hefði þar yfirgnæfandi fylgi, en menn alment hirtu ekki um neinn hinna. Í stað þess ef að kjósendurnir vissu það, að seðill þeirra yrði gerður ógildur, ef þeir kysu aðeins einn, þá myndu þeir kjósa tvo, þá sem þeir teldu besta, og gæti þannig alt annar orðið fyrir kjöri en sá, sem kosinn yrði, ef seðlar þeir, sem einn væri aðeins kosinn á, yrðu teknir gildir.
Svo má og drepa á það, að þegar kjósendum er leyft að kjósa aðeins einn, en tvo á að kjósa, þá þýðir það atkvæði, sem frambjóðandinn fær einn, í raun og veru tvö atkvæði, því enginn hinna frambjóðendanna fær þá atkv. á móti. Er atkv. þannig í raun og veru tvígilt, og tel jeg það óheppilegt. Vera má, að sumir telji, að kjósendum eigi í þessu efni að vera jafnfrjálst að kjósa einn eins og þeir mega láta vera að kjósa nokkurn. En jeg lít öðruvísi á. Svo framarlega sem kjósandi vill velja sjer fulltrúa, á honum ekki að leyfast að gera það aðeins að hálfu leyti. Annaðhvort á hann að láta vera að kjósa, eða velja jafnmarga fulltrúa og eiga að vera fyrir kjördæmið.
Ennfremur virðist mjer raskað leynd kosninganna með þessu, því hægara er að vita um, hvernig menn hafa kosið, þegar aðeins einn er kosinn, og er þá brotin meginregla og tilgangur kosningalaganna.
Enn verð jeg að taka fram eitt atriði, þó jeg geri ekki mikið úr því, þá er það samt hugsanlegt, að aðeins einn yrði kosinn í tvímenningskjördæmi. Og væri slíkt ótækt, að lögin gerðu engar ráðstafanir til að hindra, að það gæti hent, heldur gæfu jafnvel tækifæri til þess, að svo mætti verða.
Auk þess, sem jeg hefi nú tekið fram, virðast mjer þessi atriði þess eðlis, að löggjafarvaldið ætti ekki að fara breyta gildandi ákvæðum. Þau eru orðin nokkuð gömul og hafa gefist allvel, en breytingarnar virðast fyrirfram bera það með sjer, að þær verði alls ekki til bóta, heldur þvert á móti.
Um aðrar brtt. skal jeg ekki fjölyrða. Jeg skrifaði undir nál. með fyrirvara, sem var aðallega um þessi 2 atriði, sem jeg hefi nú minst á.