14.03.1924
Neðri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í C-deild Alþingistíðinda. (2271)
39. mál, kosningar til Alþingis
Björn Líndal:
Jeg er íhaldsmaður í íhaldsflokki, enda vil jeg ekki breyta lögum, sem vel hafa reynst, að ástæðulausu. Jeg er háttv. 2. þm. Reykv. þakklátur fyrir það, sem hann hefir lagt hjer til í íhaldsáttina, enda mun hann vera meiri íhaldsmaður en hann sjálfan grunar. Sumar þær breytingar, sem hjer er um að ræða, eru bara lögskýringar, og er það gott, þegar lögin eru óskýr áður. Jeg tel þessa breytingu, að skifta megi hreppi í tvær kjördeildir, eindregið til bóta, en hinu er jeg aftur mótfallinn, að kjördeginum verði breytt. Get jeg þar fyllilega skrifað undir ræðu hv. 2. þm. Reykv. Jeg tel heppilegast, að kosningar fari fram á þeim tíma, sem fólk er ekki svo önnum kafið, að það hafi þó einhvern tíma aflögu til þess að ræða alþjóðarmál. Tel jeg af tvennu betra, að fáir kjósi, ef þeir hafa haft tækifæri til að setja sig inn í dagskrármál þjóðarinnar, heldur en að múgur manna safnist að kjörborðinu, sem enga þekkingu hefir á því, sem gera skal og forðast skal.
Viðvíkjandi þessu atriði, hvort kjörseðill úr tvímenningskjördæmi skal talinn gildur, ef aðeins einn er kosinn, þá skal jeg taka það fram, að jeg hallast á þá sveifina, að ekki sje sanngjarnt að neyða kjósendur til að kjósa nokkurn mann á þing. En þetta er gert, ef ógild er kosning eins manns í tvímenningskjördæmi. Í einu kjördæmi voru t. d. í framboði við síðustu kosningar tveir menn úr Framsóknarflokknum, tveir úr Borgaraflokknum, en aðeins einn jafnaðarmaður. Það liggur í augum uppi, að þarna var úr vöndu að ráða fyrir vesalings jafnaðarmennina í kjördæminu.
Jeg vil að lokum endurtaka það, að jeg tel mjög óheppilegt og illa ráðið, að breyta kosningadeginum frá því, sem nú er. Sá dagur hefir reynst ágætlega valinn til þessa. Og þótt fyrir geti komið, að erfitt verði í örfáum kjördæmum að sækja kjörfund þennan dag, þá verður ekki sá dagur fundinn, sem öllum kjósendum landsins er hagkvæmastur.
Það er að vísu gott, að sem flestir kjósi, en hitt er þó meira virði, að þeir, sem kjósa, kjósi af viti.