14.03.1924
Neðri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í C-deild Alþingistíðinda. (2273)
39. mál, kosningar til Alþingis
Sveinn Ólafsson:
Jeg get verið háttv. allshn. sammála að mestu leyti um 6 fyrstu brtt. á þskj. 102. Tel jeg þær yfirleitt vera til bóta. Eitt tel jeg þó athugavert við fyrstu brtt., en það er, að af henni verður ekki sjeð, að það sje hreppsnefndin, sem á að eiga upptökin að skiftingu hreppsins í kjördeildir, heldur lítur svo út sem það sje sýslunefnd. Auðvitað er hugsunin sú, að hreppsnefnd óski skiftingar, en sýslunefnd ákveði hana, en þetta kemur ekki ljóslega fram. Nefni jeg þetta hv. nefnd til athugunar.
Þá breytingu, sem hv. nefnd hefir gert um færslu kjördagsins, tel jeg til bóta. Aðalgallinn á því að hafa kjördag í 11. viku sumars er sá, að ef þinghald yrði aftur fært til sumars, eins og vera ætti, þá mundi tími nokkuð naumur milli kjördags og þingfarar. En mörgum mun þykja nægur tími að hugsa um þann galla, þegar að því rekur, að sumarþing verði tekin upp á ný.
Jeg skal, út af orðum háttv. 2. þm. Reykv. (JBald), taka það fram, að það er ekki rjett, að það hafi aldrei komið að sök, að kjördagur er á haustnóttum. Jeg man eftir þó nokkrum dæmum þess að kjósendur hafa orðið að sitja heima vegna þess, að veður hefir ekki leyft annað, og ein tvö dæmi þekki jeg til þess, að mjög fáir af kjósendum komust á kjörstaðinn. Verður aldrei hægt að girða fyrir að slíkt geti komið fyrir, en næst því verður komist með því að hafa kjördaginn á þeim tíma, sem dagar eru langir og nætur eru bjartar.
Þá kem jeg að 7. brtt. nefndarinnar, og horfir alt öðruvísi við um hana. Á hana get jeg enganveginn fallist. Jeg get ekki fundið, að breytt sje til bóta í 36. gr. kosningalaganna á þann hátt, sem nefndin leggur til, þannig, að í stað orðanna: „er gert geta seðilinn þekkjanlegan frá hinum seðlunum,“ komi: „er ætla má að gert sje til þess að gera seðilinn þekkjanlegan.“ — Hjer er sett loðið og tvírætt orðalag í staðinn fyrir glögt og greinilegt orðalag, og þykir mjer það síður en til bóta, þótt það að vísu sje tekið eftir yngri lögum, sem sje lögum um kosningar í Reykjavík frá 1920. Þar hygg jeg að þetta orðalag hafi komist inn hreint og beint af vangá, og orðatiltækið ruglar fremur en skýrir hugmyndina.
Í öðru lagi er sú tillaga nefndarinnar, að ákveða það, þvert ofan í 33. gr. kosningalaganna, að gilda skuli seðill í tvímenningskjördæmi, þó aðeins einn sje kosinn á seðlinum. Jeg verð að líta svo á, að 33. gr. taki þó af allan vafa í þessu efni, svo ekki þurfi skýringa við. Með leyfi hæstv. forseta vil jeg leyfa mjer að lesa upp þau orð gr., sem að þessu lúta: „ — — — og stimplar alveg yfir reitinn, sem er fyrir framan nafn þess, eða nöfn þeirra, ef fleiri eru en einn, sem á að kjósa.“ Mjer þykir undarlegt, að upp hefir komið vafi á því, hvernig þetta beri að skilja, enda óhætt að fullyrða, að tiltölulega fáar kjörstjórnir hafi vilst á þessu. Annars er það um þessa brtt. að segja, að ef hún nær fram að ganga, þá er hún svo greinilegt brot á þeirri leynd, sem yfir kosningunum á að vera, að verra getur tæpast verið. Það er nærri ugglaust ráð til að geta keypt atkvæði og gefið merki um það, hversu kjósandinn kýs, ef þetta er leyft. Þetta hefir að nokkru verið tekið fram af öðrum, og skal jeg því ekki fjölyrða um það frekar, en aðeins bæta því við, að ef þessi breyting verður gerð, þá virðist mjer liggja nærri, að um það geti orðið deilt, hvort þessi eða hinn maður, sem kosið hafi einn í tvímenningskjördæmi, ætti ekki þá að ráða yfir 2 atkvæðum handa skjólstæðingi sínum. Þetta gæti leitt til þess, að á 2. eða 3. þingi hjer frá kæmi fram brtt. við kosningalögin af nýju, og farið fram á, að heimila slíkum kjósendum að gefa sama frambjóðanda 2 atkv., en af því gæti svo leitt, að aðeins einn yrði kosinn í tvímenningskjördæmi, eða þá annar mannanna með örfáum atkvæðum. (BL: Eru nokkur takmörk fyrir því, hvað þm. geta komið með vitlaus frv. á þingi?) Síðustu till. nefndarinnar á þskj. 102 sje jeg mjer heldur ekki fært að fylgja, en eins og þegar er fram tekið, þá álít jeg 4 þær fyrsttöldu til bóta og fylgi þeim hiklaust.