14.03.1924
Neðri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í C-deild Alþingistíðinda. (2279)
39. mál, kosningar til Alþingis
Halldór Stefánsson:
Það hafa þegar orðið alllangar umræður, enda er hjer um að ræða mikilsverð mannrjettindi. Það eru aðallega þrjár breytingar á kosningalögunum, sem felast í frv. okkar flm. Fyrsta breytingin er skifting hreppa í tvær kjördeildir, og hefir þeirri breytingu verið vel tekið, bæði af hv. nefnd og einstökum hv. þm., og þarf jeg því ekki að ræða um það atriði frv. Önnur aðalbreyting frv. er færsla kjördagsins, og hefir nefndin einnig tekið því atriði vel, en einstakir þm. hafa lagt á móti því. Jeg þarf ekki að nafngreina þá hv. þm., en læt mjer nægja að víkja nokkrum orðum að helstu mótbárunum, sem fram hafa komið gegn þessu atriði.
Það er viðurkent af andmælendum þessarar breytingar, að hún yrði sveitabúum í hag, en jafnframt er því haldið fram, að hún væri til óþæginda mönnum, sem búa við sjó eða í kauptúnum. Gagnvart þessu vil jeg minna á það, að síðan þessi kjördagur var ákveðinn í lögunum, hafa kjósendur fengið þá rjettarbót að mega kjósa utan kjörstaðar síns. Síðan er það orðið auðvelt mönnum að neyta kosningarjettar síns, þótt ekki sjeu þeir staddir á kjörstað sínum á kjördegi. Þeir geta annað tveggja kosið áður en þeir fara að heiman, eða þá, ef þeir hafa gleymt því eða vanrækt, kosið þar, sem þeir eru staddir á kjördegi.
Þá hefir því verið haldið fram, að þó að kjördagurinn sje í sjálfu sjer ekki ver settur að vori til, sje þó undirbúningstíminn verri að vorinu, vegna anna. Jeg álít aftur á móti, að það sje enginn sjerstakur tími, sem kallast geti undirbúningstími undir kosningar. Allur ársins hringur jafnt er undirbúningstími undir kosningar. Menn eiga og þurfa að vera viðbúnir að ganga til kosninga á hverjum tíma sem er, á grundvelli þeirra skoðana, sem menn hafa myndað sjer um þjóðmálin. Ef það er meint, að ekki sje eins auðgert að koma við verklegum undirbúningi (agitationum) á þessum anna-tíma, þá má vera, að eitthvað sje hæft í því. En jeg fyrir mitt leyti met ekki mikils þessháttar undirbúning, nje vil mæla með honum. Enn hefir það verið fært fram, að atkvæðisrjettar sje lítt neytt utan kjörstaðar, þótt heimild sje til þess, og getur líka verið, að eitthvað sje hæft í því. En þegar litið er til þess, hvernig kosningarrjettar hefir verið neytt undanfarið í sveitum, hlutfallslega við kaupstaði, sjest glögt, að kosningarrjettar er yfir höfuð betur neytt í kaupstöðum og kauptúnum en til sveita, og hafa þessvegna þessar mótbárur lítið gildi. Það má deila um það, hvaða tími sje mestur annatími á árinu, og skiftir það ekki máli. Úr því að almenningi er ætlaður þessi rjettur, kosningarrjetturinn, þá má ekki minna vera en að kjördagur sje ákveðinn á þeim tíma, að sæmilega sje trygt, að menn geti neytt þessa rjettar síns, ef menn vilja, og að almenningur sje ekki svo þjakaður af daglegu striti og álögum, að menn geti ekki varið einum degi eða dagstund til að neyta hans. Þegar ákveðinn hefir verið kjördagurinn til landskjörsins, þá hefir verið litið á þetta atriði líkt og við flm. gerum, því að hann er ákveðinn um mjög líkt leyti.
Nokkrir hv. þm., hafa lagst á móti breytingunni um kjörgögnin, en þær mótbárur, sem þar hafa komið fram, hafa verið fremur lítilsverðar. Háttv. frsm. (JK) hjelt því fram, að menn væru orðnir þessum kjörgögnum sæmilega vanir, og væri það því aðeins til þess að gera truflun að vera að breyta til í þessu. En menn eru einnig vanir því að nota blýant, og einmitt það getur valdið truflun að nota hvorttveggja, og eins og bent hefir verið á, getur það komið fyrir, að almennar kjördæmakosningar og landskjör fari fram sama dag, og þá getur það verið til truflunar að nota mismunandi kjörgögn á sama stað og í sama herbergi, við báðar kosningarnar. Núverandi kjörgögn hafa ýmsa ókosti, sem auðvelt væri að losna við, ef menn vilja. Stimpillinn er óalgengt áhald, sem margir kjósendur hafa máske aldrei sjeð, og brestur því leikni og kunnáttu í því að nota hann, þó eigi sje það vandi í sjálfu sjer. Enda hefir reynslan þegar sýnt það, að margir kjósendur eru hikandi við að nota þá, og telja það vera vandasamt. Þó að þessi áhöld sjeu í sjálfu sjer ekki margbrotin, geta þau auðveldlega bilað, og er þá ekki ætíð hægt að bæta úr því í flýti. Stimpillinn er handfang með álímdu togleðri, og er það vel hugsanlegt, að límið geti bilað, og ef enginn annar stimpill er til, getur farið svo, að hætta verði við kosninguna, eða þá að reyna að bæta úr þessu á einhvern annan hátt, sem þó getur orðið athugavert. Þá getur og verið, að stimpilblekið þrjóti, og hvað tekur þá við? Þó að segja megi, að við því megi sjá með nægri fyrirhyggju, þá er því ekki hægt að neita, að það er ekki alstaðar og altaf sýnd sú fyrirhyggja í þessu efni, sem þörf er á; getur þetta því vel komið fyrir. Það er og einn ókostur við þessi kjörgögn, að það eru svo margir hlutir, sem gert geta atkvæðaseðilinn ógildan, ef þau eru notuð. Það þarf að þerra seðilinn, og blekslettur geta lent á borðið og farið á næsta seðil, án þess að kjósandinn athugi það, en alt þessháttar má skoða sem merki á seðlinum, og getur gert hann ógildan. Viðvíkjandi stimpilpúðunum er það að segja, að þeir eru geymdir ónotaðir í 4 ár, og þegar til þeirra á að taka, er blekið orðið glerhart, og þó það megi takast að lina það eitthvað upp, verður púðinn altaf slæmur til notkunar. Blýantarnir hafa enga af ókostum þeim, sem taldir hafa verið hjer á undan, en þeir hafa þann kost, að allir eru vanir að nota þá, og eftir hætti leiknir í því að fara með þá.
Þetta var það, sem jeg vildi sagt hafa viðvíkjandi brtt. okkar flm. En þá verð jeg og að fara nokkrum orðum um brtt. nefndarinnar. Þá er fyrst brtt. um einkjörið, þ. e., þegar aðeins er einn maður kosinn í tvímenningskjördæmi. Brtt. er í tvennum skilningi hugsunarlega röng. Ef kjósandinn kýs aðeins einn í stað tveggja, er hann má kjósa, neytir hann eigi rjettar síns nema til hálfs, en þó er atkv. hans talið sem heilt atkv. þeim frambjóðanda, sem það tilfellur, á móts við meðframbjóðendur hans. Úr þessu mætti bæta með því að reikna þannig greidd atkv. aðeins sem hálf atkvæði. Hin hugsunarvillan, sem þó ekki hefir neina verklega þýðingu, er sú, að ef aðeins einum frambjóðanda í tvímenningskjördæmi eru greidd atkvæði, getur svo farið, þó eigi sje það líklegt, að aðeins einn maður hljóti þar kosningu. Fer æði illa á því að hafa þannig löguð ákvæði í lögum, sem leitt geta — hugsunarlega — til annars en til er ætlast í lögunum. Eða þá hitt, að annar þingmaðurinn verði kosinn með óhæfilega fáum atkvæðum, og þó að engin takmörk sjeu við því sett, hvað atkvæðin megi vera fæst, er það þó allóviðkunnanlegt, ef þetta kæmi fyrir. Í öðru lagi yrði þessi brtt., ef samþ. yrði, til þess að vinna á móti þeirri leynd, sem til er ætlast að sje yfir kosningunum. En að kosningarnar eru hafðar leynilegar, er gert til þess, að fremur sje hægt að fyrirbyggja, að hægt sje að hafa óeðlileg áhrif á kosningarnar. Jeg er ekki með þessu að mæla sjerstaklega með leynd kosninganna, því mjer finst hún vera að mörgu leyti óviðkunnanleg, þó hún sje e. t. v. nauðsynleg. Með þessu væru gefnar ástæður til meiri undirróðurs við kosningar. Verði þessi brtt. samþ., án þess að breytt verði 33. gr. kosningalaganna, verður þetta að mótsögn í lögunum. Það þarf því að breyta orðalagi þeirrar greinar, til þess að samræmi komist á í lögunum, ef þessi till. yrði samþ.