31.03.1924
Neðri deild: 37. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í C-deild Alþingistíðinda. (2291)
39. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Jón Kjartansson):
Það var aðeins viðvíkjandi ótta hv. 2. þm. Reykv. (JBald) við aukaþing. Jeg skil ekkert í því, að þessi mótbára skuli koma frá honum, sem þykist bera hag alls almennings og alþýðu fyrir brjósti. Jeg skil ekki í því, að hann geti þá verið á móti því, að almenningur fái að dæma um málin eða segja sitt álit, hvort þingið er orðið stjórninni mótfallið, eða stjórnin vill leita vilja alþýðu.
Þetta er lítilfjörleg mótbára, sem engu tali tekur. Eins er það vitanlegt, að konungur kallar ekki saman aukaþing, nema eftir beiðni stjórnarinnar, svo hún hefir í rauninni valdið í þessu máli.
Annars ætla jeg mjer ekki að ræða einstakar gr. Það var gert við 2. umr. Jeg hefi og þegar skýrt frá skoðun allshn. á brtt.; tel því ekki, að frekari umr. hafi neitt að þýða, heldur verði leitað atkv.