16.04.1924
Efri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (230)
1. mál, fjárlög 1925
Sigurður Jónsson:
Jeg er víst sá eini þm. í þessari hv. þd., sem á enga brtt. og þarf því ekki um slíkt að tala. Jeg gæti að vísu talað fram og aftur eins og aðrir um till. hv. fjvn. og hv. þm., en jeg ætla að sleppa því að mestu og láta atkvæði mitt eitt ráða, því jeg held, að þessar löngu og — maður má ekki segja það — leiðinlegu ræður breyti lítið atkv. manna.
Já, jeg sagði „að mestu“, því það er ein brtt., sem hv. 1. landsk. (SE) ber mjög fyrir brjósti, sem jeg verð að drepa á. Hv. 1. landsk. þm. kvað till. borna fram af því að þessi umrædda ljósmóðir hefði unnið hjarta sitt. En því minnist jeg á þetta, að jeg ætla að fylgja hæstv. forseta (HSteins) í því, að koma með samskonar brtt. um ljósmóður í mínum hreppi við 3. umr., ef þessi verður samþykt. Sú ljósmóðir hefir starfað í 54 ár, og jeg skil ekki í því, hvernig hv. þdm. fara að amast við henni, ef þeir taka þessa á arma sína. Jeg ætla því að búast við, að þessi brtt. verði feld hjer í deildinni.