11.04.1924
Neðri deild: 48. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í C-deild Alþingistíðinda. (2332)
54. mál, vinnutími í skrifstofum ríkisins
Pjetur Þórðarson:
Mjer þykir ekki ólíklegt, að dagskráin verði samþ., því hún heimtar ekki mikið, og finn því ástæðu til að fara nokkrum orðum um málið.
Hún er stutt og hógvær — dagskráin — og er aðalefni hennar að beina aðgæslu ríkisstjórnarinnar að því að hafa eftirlit með opinberum skrifstofum. Bæði frv., sem fyrir liggur, og nál. beina aðgæslu hæstv. stjórnar ákveðið í eina átt, þá, að hafa gott eftirlit með því, að ekki sje unnið of lítið eða of stutt á þessum opinberu skrifstofum. En jeg vildi beina athygli hæstv. stjórnar að því, hvort ef til vill væri ekki of litlir starfskraftar á sumum skrifstofunum til að annast öll störfin. Jeg hefi góðar og gildar ástæður til þessa, og vil jeg leyfa mjer að nefna eitt dæmi þess. Dæmið er um skrifstofu hins íslenska brunabótafjelags. Hreppur minn hefir sveitabrunatrygging, og geldur auðvitað venjulegt iðgjald í sjóð þess fjelags. Árið 1922 var það iðgjald sent eins og venjulega til fjelagsins. Svo leið langur tími, en engin kvittun kom. Sendi þá oddvitinn fjögur brjef þess efnis, að spyrjast fyrir um, hvort iðgjaldið hefði ekki komið til fjelagsins. Svar kom ekki við brjefunum það ár, og heldur ekki eftir áramótin. Snemma árs 1923 varð dálítill brunaskaði í sveitinni, og var þá farið að eins og venja er til, og skilríki send Brunabótafjelagi Íslands og krafist ábyrgðarinnar, sem það á að greiða að lögum. Árið leið út, án þess að svar kæmi frá fjelaginu eða kröfunni væri sint. Þá talaði oddviti við skrifstofuna og spurðist fyrir um málið, og vissi hún ekki, hvort brjefin, iðgjöldin nje krafan hefði komið, og veit það víst ekki enn. Jeg get ekki ímyndað mjer, að þetta komi af öðru en því, að starfskraftarnir á þessari skrifstofu sjeu of litlir. Jeg hefi sjálfur talað við gjaldkerann, eða einn mann þarna, og enga niðurstöðu fengið í málinu. En ef alla þessa vansmíði leiðir af því, að starfskraftarnir sjeu of litlir, finst mjer fylsta ástæða til að beina athygli hæstv. stjórnar að því, að hún sjái um, að ekki sje of mikið lagt á skrifstofumennina.
Um málið sjálft eða dagskrána hefi jeg lítið meira að segja. Mjer liggur þó næst skapi að greiða atkv. með frv. Vitanlega getur það verið álitamál, hvort ákveða eigi vinnutímann með lögum, því það er virðingarvert, að menn vinni fram yfir ákveðinn vinnutíma, þegar þörf krefur, eins og hv. þm. V.-Sk. (JK) drap á. En frv. virðist heldur ekki taka fyrir það, því þar er sagt, að vinnutíminn skuli vera „alt að“ þetta, þ. e. ekki minni. Hitt er ekki bannað, að hann sje lengri.