14.04.1924
Neðri deild: 50. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í C-deild Alþingistíðinda. (2355)
54. mál, vinnutími í skrifstofum ríkisins
Sigurjón Jónsson:
Brtt. mín er aðeins falin í því, að í 1. gr. standi 7 stundir í stað 8. Jeg er alls ekki ánægður með frv., þar sem mjer finst í alla staði óviðurkvæmilegt að ákveða, að styst sje unnið 8 tíma. Jeg veit það, að á skrifstofum ríkisins er oft og tíðum unnið talsvert lengur en ákveðið er. En á flestum þeirra mun hinn venjulegi vinnutími vera frá 10–6 daglega, að einum tíma frádregnum til matar. Hefi jeg komið með þessa brtt., þar sem jeg veit, að mörgum þykir það ærið nóg að vinna 7 tíma á skrifstofum, þar sem sú vinna er þreytandi og lamandi. Annars sje jeg enga ástæðu til að fara um till. fleiri orðum, þar eð málið var rætt mikið við 2. umr. og hv. flm. frv. mun þegar hafa náð aðaltilgangi sínum, sem jeg lít svo á að hafi verið að brýna fyrir ríkisstjórninni að halda starfsmönnunum vel að vinnu.