14.04.1924
Neðri deild: 50. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í C-deild Alþingistíðinda. (2358)

54. mál, vinnutími í skrifstofum ríkisins

Þórarinn Jónsson:

Mjer þótti mjög vænt um það, að hv. 4. þm. Reykv. (MJ) kom fram með nýjar upplýsingar í þessu máli. Suma dagana er, eftir því sem mjer skildist á honum, lítið eða ekkert unnið, en fjöldi starfsmanna miðaður við þá vinnu, sem inna þarf af hendi, þegar mestar eru annirnar. Sje þetta svona, held jeg, að þetta frv. mitt hafi fyllilega verið tímabært. Býst jeg við, að allir sjái, að slíkt fyrirkomulag nái ekki nokkurri átt. Altaf ætti hjer í bænum að vera hægt að fá nóga menn til að vinna á skrifstofunum, þegar mest er að starfa, án þess að þeir menn yrðu fastir starfsmenn. Hjer í bænum er fjöldi af færum mönnum á þessu sviði, og munu ekki allir hafa þær annir, að ekki þægju þeir tímavinnu hjá ríkinu, þegar það þyrfti á þeim að halda. Jeg get verið þakklátur hv. 4. þm. Reykv. (MJ) og vona, að hv. þdm. sjái, að þetta frv. á fult erindi.