12.03.1924
Neðri deild: 21. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í C-deild Alþingistíðinda. (2391)

68. mál, aðflutningsbann á ýmsum vörum

Jón Baldvinsson:

Það er alls ekkert óeðlilegt í því, að mönnum verði það á að renna augunum aftur í tímann og athugi, hvað áður hafi gerst í þessu máli. Það er eðlilegt, að menn leiti þar eftir reynslu fyrri ára; því innflutningsbönn höfum vjer áður haft, og af reynslunni má margt læra. Menn hafa drepið á afstöðu Alþingis til þessa máls á fyrri þingum, og það orðið að deiluefni. En jeg hygg, að enginn vafi geti leikið á um vilja Alþingis í þessu máli 1921. Það mál er svo skýrt í hugum margra þm. enn, og það verða að teljast útúrsnúningar, ef menn vilja fá annað út en það, að þingið vildi fella niður öll þau höft á innflutningi, er þá voru, ásamt skömtun á nauðsynjavörum. Mjer þykir undarlegt, hvernig hv. 1. þm. Skagf. (MG) læst vilja misskilja þennan þingvilja. Því jeg veit ekki betur en sú stjórn, sem hann átti sæti í, beitti sjer fyrir þessum þingvilja og framfylgdi honum á þrennan hátt: 1) stjórn hans tók af skömtunina, 2) lagði niður viðskiftanefndina, og 3) dró úr framkvæmd innflutningshaftanna með reglugerð, sem hún gaf út.

Hún hefir því í verkum sínum sýnt, að hún fylgdi þingviljanum frá 1921. Þegar hann (MG) er að tala um, að það hefði mátt spara margar milj. kr. með framkvæmd innflutningshaftalaganna frá 8. mars 1920, er það sagt út í hött, vegna þess, að það er alveg víst, og það veit hann vel sjálfur, að þingið ætlaðist ekki til, að bannaður yrði innflutningur eftir þeim lögum.

Þá var það annað atriði, sem hv. þm. (MG) mintist á út af orðaskiftum hans við hv. 3. þm. Reykv (JakM), að við hefðum ekki getað ráðið verði íslenskra afurða á erlendum markaði. Þetta hefir oft verið sagt áður, en mjer finst nú samt, að við gætum þar hafa haft hönd í bagga, og ráðið að minsta kosti nokkru um verðið á afurðum okkar á erlendum markaði, þótt vjer eigi getum ráðið þar öllu. Að þessu er og vikið í brjefi frá Landsbankanum, sem kafli var lesinn úr hjer í deildinni. Þar er svo litið á þetta mál, að eigi sje það skipulag á afurðasölunni, sem vera bæri.

En það, sem aðallega kom mjer til þess að taka til máls í þetta sinn, voru nokkur ummæli hv. 1. þm. Reykv. (JÞ). Það var að vísu ekki neitt nýtt, sem þar kom fram, því hefir oft verið haldið fram áður, en jeg tel rjett að mótmæla því, í hvert skifti, sem það er sagt, vegna þess, að jeg tel það þjóðinni skaðlegt, en það var að mæla bót lággenginu. Fyrst talaði hv. þm. (JÞ) um kaupþörfina á ýmsum erlendum vörum, og fer jeg ekki út í það, þótt hann nefndi til ýmsar vörur, svo sem byggingarefni o. s. frv. En síðan talaði hann um kaupgetu manna árið 1919, hversu mikil hún hafi þá verið, og að þá hefðu menn keypt fyrir gullkrónur, og frá þessum tíma stafaði öll sú kreppa, sem síðan hefði orðið. Taldi hann, að nú þyrfti að uppræta leifar af þeirri fölsku kaupgetu landsmanna. Þegar þetta er skoðað í sambandi þið það, sem þessi hv. þm. hefir áður haldið fram, verður að álíta, að hann haldi, að íslenska krónan standi nú í hærra verði en sannvirði hennar sje. Hann virðist því álíta, að enn þurfi að fella krónuna í verði og enn lækka kaup og náttúrlega minka kaupgetu. Hv. þm. (JÞ) hefir áður, oft mjög, talið lággenginu margt til gildis. Það væri svo hentugt til þess að lækka kaupgjald og kostaði ekki svo mikil umsvif, eins og í algengum kaupdeilum. Gengislækkun komi yfir án þess almenningur viti af, eða átti sig á því fyrst í stað. En þeir, sem flytja út vörur, hafi hagnaðinn, en þó því aðeins, að kaup manna hækki ekki sem gengislækkuninni svarar. — Jeg gríp tækifærið til að mótmæla þessari kenningu um ágæti lággengisins, og það ekki síður fyrir þá sök, að þessi hv. þm. (JÞ) kann að geta, eftir því sem nú lítur úr fyrir, haft allmikil áhrif á það, hvernig fer um gengi peninga vorra. Ef stjórnarvöldin eru sammála um ágæti lággengisins, er það afarauðvelt þeim að fella það. Hitt er erfiðara, að stöðva það eða festa. En það er nú skoðun flestra, að það eigi að vera takmark vort í fjármálunum að stöðva fyrst gengið og síðan að leitast við að smáhækka það. Frv. það, sem hjer ræðir um er fram komið vegna þess, að hv. flm. þess (HStef), vildi reyna þá leiðina, til þess að stöðva verðfall íslensku krónunnar. Jeg skal fúslega viðurkenna það, að tilgangur hv. flm. er góður, sá, að reyna að halda uppi verðgildi ísl. krónunnar, en spurningin verður þá um það, hvort þessi sje leiðin, sem til bóta liggi í þessu máli.

Það hafa komið fram tvær leiðir. Önnur leiðin er sú, að hækka tollinn á ýmsum vörum. Hin er algert aðflutningsbann. Er hvorug leiðin góð, að mínu áliti, og mundu sjálfsagt nokkuð auka dýrtíðina í landinu.

Jeg vil nú benda á þriðju leiðina, sem nær báðum þessum takmörkum, að hefta innflutning og takmarka verðhækkunina. Sú leið er, að ríkið taki meginhluta verslunarinnar í sínar hendur. Að vísu veit jeg það, að margir eru hjer innan veggja, sem vilja draga úr starfsemi landsverslunarinnar á allan hátt. Og illu heilli hefir það tekist að draga saman starfsemi verslunar ríkisins. Nú tel jeg það heppilegast að auka hana svo, að hún yrði eins yfirgripsmikil og á stríðsárunum. Myndu landsmenn með því móti fá talsvert ódýrari vörur en ella, og ríkissjóður jafnframt geta verið vel haldinn af. Þetta álít jeg það besta ráð, sem við eigum nú völ á. Að hækka tollana er neyðarúrræði, og myndi það reynast ennþá skaðlegra um innflutningshöft, því það myndi verða til þess að auka dýrtíðina í landinu enn meira en höftin.

Jeg verð því frekar að hallast gegn þessu frv. Þó skal jeg ekki vera móti því, að það fái að ganga til nefndar. Verði það látið fara lengra, þá kemur náttúrlega ekki til mála að ýmsar af þeim vörutegundum, sem þar eru tilgreindar, verði bannaðar, skal jeg t. d. nefna klæðnað og skófatnað, sem landsmenn geta ómögulega án verið. Jeg skil vel þá kröfu hv. flm. til stjórnarinnar, að óska þess, að hún setji höft til bráðabirgða gegn innflutningi, svo ekki verði alt fylt af vörum meðan stendur á afgreiðslu og umræðum málsins. En skyldu ekki stærri og efnaðaðri kaupmennirnir þegar vera búnir að búa sig undir þetta, og búnir að ná inn vörum, sem þeir svo auðvitað, í skjóli hafta, gætu selt með háu verði.

Annars verð jeg að segja það, að eftir þá reynslu, sem við fengum af framkvæmd innflutningshaftanna 1921, þá get jeg ekki haft neina trú á slíkum ráðstöfunum. Og enn verri trú hefi jeg á þeim, ef sú stjórn, sem er falið að framfylgja þeim, er þeim andvíg, eins og mundi verða, ef einlit kaupmannastjórn tæki nú við völdum.