15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í C-deild Alþingistíðinda. (2401)

68. mál, aðflutningsbann á ýmsum vörum

Klemens Jónsson:

Hv. frsm. meirihl. og minnihl. hafa þegar talað. Mætti því í raun og veru láta staðar numið með umræður, og ganga til atkvæða. Þó umræður verði langar og margorðar, býst jeg ekki við, að þær leiði í ljós neitt nýtt í þessu máli, og skyldi jeg fúslega sleppa því að ræða málið, ef aðrir hv. þm. vildu gera það sama. (ÁF: Jeg vil gera það sama! JAJ: Jeg vil gera það sama!) Ef hv. deild er fús til þess, þá er jeg reiðubúinn. (Þögn). — Það lítur ekki svo út sem allir vilji falla frá orðinu, og held jeg því áfram.

Jeg endurtek, að jeg býst ekki við, að hjer verði tekið fram neitt annað en það, sem hefir heyrst áður, ekki einungis á þessu þingi, heldur einnig oft áður. Jeg geri ekki heldur ráð fyrir, að jeg muni koma fram með neitt nýtt í málinu. En jeg hlýt, vegna fyrri stöðu minnar, að gera nokkra grein fyrir minni afstöðu til málsins, og svara því, sem komið hefir fram gagnvart mjer sem fyrverandi atvinnu- og samgöngumálaráðherra. Ræður, sem haldnar verða til og frá um þetta mál, munu vart breyta skoðun nokkurs þm. í hv. deild, því eftir því sem jeg veit best, liggja fyrir samningar innan flokkanna í þessu máli. Geri jeg því ráð fyrir, að hver þm. haldi sinni skoðun fram, hvað sem á gengur.

Jeg get gengið inn á röksemdaleiðslu og almennar aths. háttv. meirihl. í nál. hans, í aðalatriðum; við erum í raun og veru á sama máli. Jeg get einnig fullkomlega skrifað undir það, að í lögum frá 8. mars 1920 felst næg heimild til að takmarka og banna innflutning, Enda hefi jeg sýnt þetta í verki, því annars hefði jeg ekki sjeð mjer fært að gefa út reglugerð um það efni fyrir mánuði síðan. En það gerði jeg að vilja og ósk þingsins, á meðan málið var ekki útkljáð endanlega.

Jeg skal taka það fram, út af blaðagrein um þetta efni, að reglugerðin sje óbreytt frá þskj. 88, að þetta er alls ekki svo; auk þeirra vörutegunda, sem þar eru taldar, er bætt við ýmsum tegundum, sem nú eru bannaðar samkv. reglugerðinni frá 1921. Þetta sýnir að minsta kosti það, að sum blöðin hafa ekki einu sinni gert sjer það ómak að lesa málið niður í kjölinn, ekki nent að bera reglugerð mína saman við frv. Þetta sýnir líka nákvæmni og samviskusemi þeirra.

Þó jeg hafi gefið þessa viðurkenningu um heimild stjórnarinnar frá 1920, verð jeg þó að álíta ný, ákveðin lög miklu æskilegri í þessu efni. Jeg persónulega treysti hæstv. atvrh. til að standa við loforð sín um það að beita höftum, eins og fært þykir ríkissjóðs vegna, og það því fremur sem mjer skildist á hæstv. ráðherra, að hann teldi það geta orðið „kabinet“-spursmál að beita þeim frekara. (Atvrh., MG: Alveg rjett!) En hæstv. ráðherra er ekki einráður um þessi mál; hann þarf að bera sig saman við embættisbræður sína um það. Jeg hygg, að jeg fari ekki með getsakir, þó jeg segi, að hæstv. fjrh. (JÞ) sje ekki sjerlega hlyntur innflutningshöftum. Um hæstv. forsrh. (JM) er ekki kunnugt í þessu efni; mjer vitanlega hefir hann ekkert látið uppi, hvorki til nje frá. En 1920, þegar haftalögin voru til umr., var hann alls ekki hrifinn af þeirri hugmynd. En margir menn, bæði utan þings og innan, hafa skift um skoðun síðan. 1921–22 var meirihl. þm. andvígur höftum, en nú er meirihl. þeim hlyntur. Má því vel vera, að hæstv. forsrh. (JM) hafa einnig skift skoðun. Tímarnir breytast og hugsunarhátturinn. Kann því vel að vera, að hæstv. atvrh. (MG) fái nægan styrk frá embættisbræðrum sínum. En ef það bregst, er tvísýnt, hvernig haftapólitíkin fer. Lagavegurinn yrði því miklu tryggari leið. Almenningur þarf líka strax að geta gengið út frá, hvað sje bannað og ekki bannað.

Jeg skal að vísu játa, að lagaleiðin hefir einnig sína ókosti, svo sem hæstv. atvrh. hefir tekið fram. Aðalókosturinn er, að lögin eru ósveigjanleg og ekki hægt að gefa neinar undanþágur. Aftur á móti er það hægt með reglugerð að undanskilja ýmsar tegundir, sem tíminn kann að sanna að eru nauðsynlegar, og yfir höfuð að sveigja til. Eins og hæstv. atvrh. tók fram, er það bót málsins í því, sem minnihl. fer fram á, að ríkisstjórnin geti falið landsverslun að flytja bannvörur, sem skortur kynni að verða á. Þetta fyrirkomulag tel jeg mjög heppilegt, og vona, að hæstv. atvrh. beiti þessum ákvæðum, jafnvel þótt frv. yrði ekki að lögum.

Hæstv. atvrh. (MG) kvað undanþágur nauðsynlegar. Það kann að vera rjett, en það er óþægilegt fyrir stjórnina. Hefði jeg átt að vera atvrh. áfram, myndi jeg miklu heldur hafa kosið að hafa lög bak við mig, heldur en aðeins reglugerð. En það er virðingarvert af hæstv. atvrh. að vilja taka á herðar sjer þann vanda og ábyrgð, sem samfara er því að framfylgja höftum með reglugerð einni. Enginn vafi er á því, að hann fær ótal beiðnir, sem koma honum í vanda. En hann er maður á góðum aldri og mun taka sjer þetta ljettara þessvegna.

Því hefir verið haldið fram, að höftunum hafi verið fremur linlega framfylgt í minni stjórnartíð, og sjerstaklega upp á síðkastið. Þetta er algerlega rangt, eins og jeg þegar hefi margoft tekið fram. Reglugerðinni hefir aldrei verið eins stranglega framfylgt í minni stjórnartíð og frá því í október s. l. Fyrra ráðherraár mitt var henni framfylgt af sama manni og var í innflutningsnefndinni og nákvæmlega á sama hátt sem fyr, og eftir því sem þingið hafði lagt fyrir stjórnina að framfylgja henni.

Þá eru nokkur einstök atriði. Jeg gat þess, að jeg hefði sett reglugerðina til þess að enginn innflutningur gæti átt sjer stað á óþarfavöru, meðan málið var ekki endanlega útkljáð, en þó var alls ekki meining mín að banna framvegis skilyrðalaust allar vörutegundir, sem þar eru nefndar, og tók jeg fram, að jeg myndi ekki greiða því atkv. í þinginu. Nokkrar af þeim eru taldar upp sem leyfðar í brtt. frá minnihl., t. d. höfuðföt, skófatnaður o. s. frv.

Hæstv. atvrh. (MG) sagði, að frv. færi sumpart of langt og sumpart of skamt. Jeg er honum sammála um, að það er ómögulegt á stuttum tíma að finna nákvæmlega út, hvað skal banna og hvað leyfa. Og vafalaust yrði langsótt að vinsa úr og velja um vörur, og erfitt að fá samkomulag milli þingmanna. Jeg kannast við, að þetta er ókostur, sem mundi fylgja þessum lögum.

Bendingar þær, sem hæstv. atvrh. (MG) hefir gefið um þessi efni, vil jeg athuga til 3. umr., því jeg vona, að frv. fái að ganga svo langt. Jeg er reiðubúinn að taka upp í frv. hverja þá breytingu, sem er á rökum bygð. Hæstv. atvrh. fanst hart að banna innflutning á kaffibæti; hann gæfi af sjer góðar tolltekjur, og hinsvegar yrði bannið til að gefa kaffibætisverksmiðjunni hjer alt of mikla vernd. Má vera, að verksmiðjan fullnægi ekki þörf vorri, þó að líklega mætti gera hana svo úr garði. Yrði sjálfsagt að leggja tolla á hana. Það er alls ekki meiningin að vernda iðnað einstaks manns án alls endurgjalds. Hæstv. atvrh. (MG) gat þess um vindlinga, að þeir gæfi miklar tolltekjur, því sú tóbakstegund væri mjög notuð. Þetta mun rjett vera, og það er einmitt það, sem vakir fyrir mjer, að þessarar tegundar er geysimikið neytt bæði af konum og körlum, ekki síst unglingum, en hún mun vera skaðlegasta tóbakstegundin, sem til er, og einmitt þessvegna er líka ástæða til að banna innflutning hennar. Hann skýrði frá, að strax væri farið að panta áhöld til að búa til vindlinga. Þeir verða aldrei reykjandi; þeir verða ekki til táls fyrir unga fólkið.

Þá eru legsteinarnir. Þeir hafa hreint og beint gleymst. Sömuleiðis marmari. Yfirleitt er jeg hæstv. atvrh. (MG) sammála, nema hann álitur reglugerðarformið hentugra, þó það sje vandasamara. Jeg álít vandaminna að hafa lög, og betra fyrir þjóðina að vita þegar, hvað sje leyft og hvað bannað.

Það hefir bólað á þeirri skoðun hjer í þinginu, svo sem hv. frsm. minnihl. tók fram, að frv. sje árás að kaupmönnum. Þetta er mjög fjarri sanni, já, fullkomin staðleysa. Jeg veit af eigin reynslu, að margir ágætir kaupmenn skilja þessa ráðstöfun vel og finst hún eðlileg. Fleira ætla jeg ekki að segja um þetta mál að svo stöddu.

Hv. frsm. meirihl. (JAJ) virtist ekki samþykkur orðum mínum um það, að bæjarfjelög og sýslufjelög ættu að vera einráð með fjármál sín. Hann vildi, að ríkið hefði þar eftirlit. Hæstv. fjrh. (JÞ) hefir haldið hinu sama fram. Jeg verð þó enn að halda fram minni skoðun sem rjettri. Jeg hefi haldið þessu sjerstaklega fram um bæjarfjelögin, en þó einhver vafi kunni að vera um þau, þá er alls enginn vafi um sýslufjelögin. Í sveitarstjórnarlögunum, eins og þau komu frá milliþinganefnd og voru lögð fyrir þingið, voru ákvæði um það í 81. gr., að samþykkis stjórnarráðsins þurfi til ýmissa þýðingarmikilla athafna, t. a. m. lántöku. En þessi grein var feld burtu á þinginu 1905, með þeirri „motiveringu“, að sýslunefndirnar ættu að hafa einræði um þessi atriði.