06.03.1924
Neðri deild: 16. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í C-deild Alþingistíðinda. (2475)

34. mál, sendiherra í Kaupmannahöfn

Jakob Möller:

Það var rjett hjá hv. þm. Ak. (BL), að jeg bjóst við, að um þetta mál hefði verið rætt í Íhaldsflokknum, þó að jeg hins vegar giskaði ekkert á afstöðu flokksins til þess. Annars vil jeg þakka hv. þm. fyrir ummæli hans. Jeg geri ráð fyrir, að eftir að þau eru fram komin, sje tilgangslaust að bera fram spurningu, sem mjer hafði flogið í hug, hvort Íhaldsflokkurinn mundi beitast fyrir, að fjárveiting til sendiherrans yrði feld niður af fjárlagafrv. Eftir orðum hv. þm. Ak. (BL) geri jeg ráð fyrir, að það hafi ekki komið til tals í flokknum.

Jeg er annars sammála hv. þm. Ak. (BL) um það, að það er blátt áfram hneisa fyrir þjóðina að leggja þetta embætti niður. En satt að segja, er jeg hættur að þora að eiga orðastað um, hvort hitt og þetta sje þjóðinni til vanvirðu. Það hefir ekki reynst svo giftudrjúgt að leggja sóma eða hneisu á vogarskálina, þegar peningar eru annarsvegar.

Háttv. frsm. (JÞ) kvað nú eitt aðalatriðið fengið, sem ætlað var að ná með stofnun embættisins. En þó að embættið hafi staðið í 2–3 ár, hygg jeg, að það muni fljótt gleymast, ef það er lagt niður aftur og falið starfsmanni í utanríkisráðuneytinu danska. Þetta hafði mjer annars ekki komið til hugar. Jeg hugði, að sjerstökum manni mundi falin þessi störf, og að hann þyrfti þá, að sjálfsögðu, að fá laun fyrir. Jeg heyri, að hæstv. forsrh. (SE) er mjer samdóma um það, að tæpast geti komið til mála, að slá þessum tveim störfum saman, en verði frv. samþ., verður það vitanlega viðtakandi stjórn, sem þetta ákveður.

Hv. frsm. (JÞ) var að reyna að gera hlægilegt, að talað væri um, hve mikið græddist við það annarsvegar að halda slíkum stöðum. Það þótti mjer ódýr röksemd, að vitna í manninn, sem átti að græða, þangað til hann var kominn á höfuðið. Slíkt tel jeg neðan við það að vera svaravert. Það er oft, að menn koma með slíkt glamur, þegar þeir vilja komast hjá að svara aðalatriðunum, en jeg hugði, að hv. frsm. (JÞ) teldi það fyrir neðan virðingu sína.

Að öðru leyti skal jeg ekki orðlengja um málið. Hvort aðalstaðhæfing mín er rjett, að brtt. nefndarinnar sjeu komnar fram í því skyni að komast í kringum málið, án þess að leggja embættið niður, verður reynslan að skera úr.