06.03.1924
Neðri deild: 16. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 974 í C-deild Alþingistíðinda. (2485)
34. mál, sendiherra í Kaupmannahöfn
Magnús Guðmundsson:
Jeg vildi segja nokkur orð út af ummælum háttv. 3. þm. Reykv. (JakM), að stjórnin hafi lofað því í byrjun að hækka laun sendiherrans (JakM: Styðja að því!), eða styðja að því. Þvert á móti. Þetta má sanna með skjölum, þar sem sendiherrann viðurkennir þetta sjálfur. (JakM: Þetta er ekki rjett!) Það þýðir ekki fyrir háttv. þm. að berja höfðinu við steininn. Jeg get ef til vill sannað þetta með brjefi við 3. umr.
Viðvíkjandi ræðu háttv. 1. þm. Árn. (MT) skal jeg geta þess, að það er ekki nauðsynlegt að taka hjer upp heimild til þess að setja fjárveitingu á fjárlög. Auðvitað ræður Alþingi í hvert skifti, hvað skuli gert. En það er nokkuð annað að fella lögin alveg úr gildi. Þá talaði þessi háttv. þm. (MT) um það, að málið gæti beðið, þangað til það kæmi í ljós, hvort sendiherrann ætlaði að segja af sjer. Það kemur áreiðanlega bráðlega í ljós. En málið er heldur ekki komið út úr þinginu (Forsrh., SE: Nýja stjórnin bíður!), þótt það sje samþykt hjer. Jeg skal ekkert segja um nýju stjórnina, en það er ólíklegt, að hún afgreiði á 3–4 dögum mál, sem gamla stjórnin hefir legið lengi yfir.