06.03.1924
Neðri deild: 16. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í C-deild Alþingistíðinda. (2493)

34. mál, sendiherra í Kaupmannahöfn

Frsm. (Jón Þorláksson):

Jeg hefi nú þegar talað þrisvar í máli því, sem nú er til umr., en þar sem hæstv. forseti (BSv) leyfir nær öllum að tala að vild og hæstv. forsrh. (SE) notar sína ótakmörkuðu heimild til þessa, að taka til máls, og þó um önnur málefni sje, þar sem er háskólafrv. mitt, bið jeg hæstv. forseta að leyfa mjer einnig að víkja að því máli. Jeg hefi þar komið með tillögur um embættafækkun, þannig, að jeg ætlast til, að konungur noti vald sitt til þess að færa menn til í embættum, einkum er embætti losna. Nú gaf hæstv. forsrh. (SE) þá skýringu á þessu, að grískudósentinn hjeldi embætti sínu þangað til hann fjelli frá eða færi úr því á annan hátt. En jeg hefi nú svo mikið álit á hr. Bjarna Jónssyni, að það sjeu til mörg embætti önnur, sem hann sje vel fær til að gegna, og geri jeg ráð fyrir, að embætti það, er hann hefir nú, muni geta losnað á þennan hátt. En viðvíkjandi máli því, sem hjer liggur fyrir, þá var eitt atriði í ræðu háttv. 1. þm. Árn. (MT), sem jeg þurfti sjerstaklega að svara, en mun þó geyma það til 3. umr.