26.04.1924
Efri deild: 55. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í C-deild Alþingistíðinda. (2502)
34. mál, sendiherra í Kaupmannahöfn
Forsætisráðherra (JM):
Það er kunnugt frá fyrri þingum, að jeg vil hafa sendiherra í Kaupmannahöfn. En jeg mun þó geta fært nefnd þeirri, sem væntanlega fær frv. þetta til meðferðar, heim sanninn um það, á hvern hátt við, í bili, getum komist af með þetta embætti á ódýrari hátt, og mun sýna henni plögg þar að lútandi. Mun vera hægt að spara kostnað við embætti þetta jafnmikið og hv. Nd. ætlast til, og þó halda lögunum óbreyttum. Vona jeg, að frv. gangi til allshn., að umr. lokinni, og að mjer gefist kostur á því að leggja fyrir þá hv. nefnd þau gögn, sem jeg hefi í málinu.
Að öðru leyti lít jeg líkum augum á mál þetta eins og hv. 1. landsk. (SE), en sje ekki ástæðu til að ræða það frekar nú.